Vatnsdæla Á Refli

  • Home
  • Vatnsdæla Á Refli

Vatnsdæla Á Refli heritage, experience, embroidery, Saga

02/09/2025

Takk Ingi Heiðmar Jónsson fyrir falleg orð í minn garð: Ný sögukorn:

Þann 29. ágúst nk kl 17:00 í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi fer fram afhending 46 metra langs refils sem segir sögu Vatn...
22/08/2025

Þann 29. ágúst nk kl 17:00 í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi fer fram afhending 46 metra langs refils sem segir sögu Vatnsdæla. Refillinn verður hengdur upp og gefst fágætt tækifæri til að sjá hann í allri sinni dýrð.

Byrjað var að sauma í refilinn 2011 og saumaskap lauk í lok árs 2024.

Þá verður einnig byrjað að safna fyrir byggingu yfir refilinn og í því tilefni verður uppboð á 12 myndum sem eru á reflinum.
Gísli Einarsson fréttamaður verður uppboðshaldari☺️

Hörkuduglegar stuðnings konur refilsins hafa saumað myndirnar og einnig verða fleiri miklu fleiri myndir sem verða til sölu. Allur ágóði fer beint til refilsins.
Hvetjum við einstaklinga og fyrirtæki til að bjóða myndarlega í myndirnar og um leið styðja við þetta stóra verkefni.

Verið innilega velkomin🥰
Má dreifa sem víðast😊

Nú er komið að því að afhenda refilinn sem segir Vatnsdælasögu! 🥰Uppboð á myndum frá reflinum verður til styrktar húsnæð...
16/08/2025

Nú er komið að því að afhenda refilinn sem segir Vatnsdælasögu! 🥰
Uppboð á myndum frá reflinum verður til styrktar húsnæðisbyggingar fyrir refilinn. Hvet einstaklinga og fyrirtæki til að taka myndarlega þátt í uppboðinu!
Uppboðshaldari verður Gísli Einarsson fréttamaður.
Verið velkomin, kæra stuðningsfólk🥰

18/07/2025

Komið þið sæl. Loksins koma fréttir!
Refillinn er tilbúinn og allt að verða klárt.
Afhending refilsins til samfélagsins í Austur Húnavatnssýslu fer fram þ. 29. ágúst nk. kl. 17:00 í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.

Dagskrá verður birt síðar.
Verið velkomin

Stórt skref tekið í dag. Refillinn klipptur úr grindinni og hún fjarlægð. Næst er að þvo refilinn💪Ef einhver vill nýta g...
11/02/2025

Stórt skref tekið í dag. Refillinn klipptur úr grindinni og hún fjarlægð. Næst er að þvo refilinn💪
Ef einhver vill nýta grindina undir nýjan refil eða eitthvað skemmtilegt, er bara að hafa samband☺️

Takk allir!Takið 29. ágúst frá því þá verður refill afhentur og ef vel tekst til mun hann verða hengdur upp til sýnis þa...
29/11/2024

Takk allir!
Takið 29. ágúst frá því þá verður refill afhentur og ef vel tekst til mun hann verða hengdur upp til sýnis þann dag☺️

Sunnudaginn 24. nóvember síðastliðinn voru lokaspor Vatnsdælurefilsins tekin í Kvennaskólanum á Blönduósi. Refillinn, sem er 46 metra langur og 50 sentímetrar að hæð, er hugmynd Jóhönnu Pálmadóttur á Akri. Lestu meira hér:
https://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=21557

25/08/2024

Kæru vinir Vatnsdælu á refli.
Nú er að koma að leiðarlokum í útsaumnum og erum við því búin að loka fyrir móttöku þeirra sem höfðu viljað sauma, því miður, (mjög skrýtið að skrifa svona skilaboð) en auðvitað eru þið áfram velkomin í kynningu á reflinum á meðan hann stendur uppi. Stefnt er að því í vetur að ganga frá honum, þ.e. hreinsa og sauma bak á hann og á meðan verður hann ekki til sýnis. Þið fáið að vita af því. Svo verður vonandi hægt að sjá hann uppsettann á góðum stað sem fyrst í framtíðinni en það er enn á huldu með það.
Þakka ykkur öllum sem komið hafa í saumaskap, ykkur sem komið hafa í heimsókn til að fræðast um refilinn og ykkur sem hafið stutt dyggilega við verkefnið með ýmsu móti á þessari 13 ára vegferð! Án ykkar hefði þetta ekki tekist!
Takk, takk, takk

Spennandi námskeið fyrir vefara
06/08/2024

Spennandi námskeið fyrir vefara

Námskeið í stafrænum vefnaði!

16/07/2024

13 ár í dag síðan við byrjuðum að sauma í refilinn og nú erum við á lokametrunum, þökk sé duglegum konum á svæðinu! Takk allir sem sett hafa spor sín í refilinn! Eitt spor eða fleiri, skiptir ekki máli því það er eins og í lífinu, það munar um hvert spor!

Kæru vinir Ingimundar gamla, við sendum ykkur hlýjar óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir heimsókn...
26/12/2023

Kæru vinir Ingimundar gamla, við sendum ykkur hlýjar óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir heimsóknir til refilsins, saumaskap og almenna skemmtun. Ingimundur gamli er reyndar er löngu dauður þar sem er verið að sauma nú og synir hams líka. Ingólfur barnabarn Ingólfs hefur staðið í miklu framhjáhaldi sem kostað hefur mannslíf. Ekki að spyrja að!
Nú stefnir allt í að saumaskap fari að ljúka og því vildi Ingimundur (hann hefur lag á því að senda skilaboð) segja við ykkur sem hafið lengi ætlað að koma til að sauma eða sjá á meðan vinnslu stendur: þið verðið að koma á næsta ári ef þið viljið uppfylla ætlun ykkar!
Sjáumst á nýju ári🎄🪡

Nú um helgina er fullt að gerast á slóðum Vatnsdæla. Hlaup, göngur, sagnaslóðir þræddar, nálar þræddar og saumað er í Re...
26/08/2023

Nú um helgina er fullt að gerast á slóðum Vatnsdæla. Hlaup, göngur, sagnaslóðir þræddar, nálar þræddar og saumað er í Refilinn, fyrirlestrar, Tinna-sýning, pöbbquizzzzzz, söngur og hvaðeina, enda vatnsdalshelgin góða á fullu.
Opið verður í refilinn aftur á morgun en þá á milli kl 13:00-15:00.
Verið velkomin!

Address


540

Telephone

+3548984290

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vatnsdæla Á Refli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

  • Want your organization to be the top-listed Government Service?

Share