Bókasafn ME

Bókasafn ME Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Bókasafn ME, Library, Tjarnarbraut 25, Egilsstaðir.

Virðingarbók dagsins er bókin Mannlaus veröld eftir Alan Weisman. Athyglisverð og sláandi hugvekja um áhrif mannskins á ...
24/09/2020

Virðingarbók dagsins er bókin Mannlaus veröld eftir Alan Weisman. Athyglisverð og sláandi hugvekja um áhrif mannskins á umhverfi sitt og hvað heimurinn gæti grætt á því að losna við okkur.

-Hvað yrði um öll mannvirkin og eiturefnin sem við höfum búið til?
-Hvernig myndi dýrum og gróðri farnast í mannlausri veröld?
-Höfum við unnið óbætanlegan skaða á lofti, hafi og jörð eða er heiminum viðbjargandi?

Virðingarbók dagsins:Veröld í vanda eftir Ara Trausta Guðmundsson, alþingismann, jarðvísindamann og rithöfund. Hún fjall...
22/09/2020

Virðingarbók dagsins:

Veröld í vanda eftir Ara Trausta Guðmundsson, alþingismann, jarðvísindamann og rithöfund.

Hún fjallar um fjölmargar hliðar umhverfismála – sumar óvæntar. Sérstök áhersla er á þá sýn sem blasir við hér á landi og tengsl hins staðbundna við hið hnattræna.

Í ljós kemur að náttúran og mismunandi viðhorf til hennar liggja í kjarna fjölmargra þeirra mála sem tekist er á um í íslensku samfélagi. Sátt og aukinn skilningur verða sífellt mikilvægari eftir því sem vandinn vex og er bókinni ætlað að benda á leiðir til þess að efla hvort tveggja.

Virðingarvika! Virðing fyrir okkur sjálfum, öðrum og einfaldlega virðing fyrir öllu umhverfinu.Af því tilefni verða dreg...
21/09/2020

Virðingarvika!
Virðing fyrir okkur sjálfum, öðrum og einfaldlega virðing fyrir öllu umhverfinu.
Af því tilefni verða dregnar fram bækur sem á einhvern hátt fjalla um virðingu eða skort á virðingu. Fyrsta bókin er Húsið okkar brennur eftir hina sænsku Gretu Thunberg.
Staldrið við á bókasafninu, gluggið í bókina hennar Gretu og spáið í boðskap hennar.

Í dag, 16. september er dagur umhverfisins. Af því tilefni er bók vikunnar bókin Veður og umhverfi eftir Unni Ólafsdóttu...
16/09/2020

Í dag, 16. september er dagur umhverfisins. Af því tilefni er bók vikunnar bókin Veður og umhverfi eftir Unni Ólafsdóttur veðurfræðing.

Veður hefur áhrif á okkur öll, enda eru fá tungumál eins auðug af orðum yfir veður og íslenskan.
Staldrið við á bókasafninu, gluggið í bók vikunnar og pælið í umhverfinu.
..við erum öll veðurfræðingar inni við beinið :)

Munið eftir bókasafninu í dag :)
08/09/2020

Munið eftir bókasafninu í dag :)

Það gleður bókavörðinn ótrúlega mikið þegar bækur skila sér eftir langa fjarveru.Bók vikunnar var að koma heim eftir mar...
07/09/2020

Það gleður bókavörðinn ótrúlega mikið þegar bækur skila sér eftir langa fjarveru.
Bók vikunnar var að koma heim eftir margra ára útlán. Ekki er vitað nákvæmlega hvar hún hefur haldið sig, eða hvert hún hefur ferðast en við tökum henni fagnandi. Því eins og fíllinn sjálfur á heima í sínu umhverfi á bókin um fílinn heima á bókasafninu :)

Bókavörður mælir þó frekar með að bókum sé skilað á réttum tíma 🤗

18/08/2020

Enn er laust í fjarnám hjá okkur í ME. Ertu búin/n að sækja um?
www.me.is

Úf af "dálitlu" verður útskriftarathöfnin með öðru sniði en venjulega. En nýtum möguleika tækninnar og njótum stundarinn...
23/05/2020

Úf af "dálitlu" verður útskriftarathöfnin með öðru sniði en venjulega. En nýtum möguleika tækninnar og njótum stundarinnar með útskriftarnemunum.
Til hamingju með daginn kæru útskriftarnemendur og fjölskyldur 🥰

Nemendur og aðstandendur athugið. 🎓💙💛

Vonandi gengur öllum vel að fóta sig í fjarnáminu. Mig langar að benda ykkur á vefinn góða leitir.is sem er algjörlega ó...
01/04/2020

Vonandi gengur öllum vel að fóta sig í fjarnáminu. Mig langar að benda ykkur á vefinn góða leitir.is sem er algjörlega ómissandi við heimildaleit og ritgerðasmíð.
Nú eru bókasöfn lokuð eins og svo margt annað, en á leitir.is eru tenglar á allskonar gagnlegt rafrænt efni, rafbækur, fræðigreinar, lokaritgerðir og margt annað.

Kíkið á leitir.is, prófið ykkur áfram, en verið ófeimin að hafa samband ef þið lendið í vandræðum á netfangið [email protected] eða í síma 471 2506.

Farið vel með ykkur krakkar mínir, muna að hreyfa sig, borða hollt, halda rútínu og hlýða Víði :)

Jæja krakkar mínir, tíminn líður. Þriðja spönn skólaársins er á enda. Eftir nokkra daga hefst ný spönn með nýjum áföngum...
25/02/2020

Jæja krakkar mínir, tíminn líður. Þriðja spönn skólaársins er á enda. Eftir nokkra daga hefst ný spönn með nýjum áföngum og áskorunum.
Á spannaskilum er alveg upplagt að skila bókasafnsbókum til að þær gleymist ekki. ...annars er mögulegt að bókavörður taki svona á móti ykkur.

Sara Björk Gunnarsdóttir er ein af okkar allra bestu fótboltamönnum. Hún hefur undanfarin ár leikið með FC Wolfsburg í Þ...
18/02/2020

Sara Björk Gunnarsdóttir er ein af okkar allra bestu fótboltamönnum. Hún hefur undanfarin ár leikið með FC Wolfsburg í Þýskalandi, en mun vera á förum þaðan. Sara Björk er fyrirliði landsliðsins og var valin íþróttamaður ársins 2018.
Saga hennar Óstöðvandi, sem kom út fyrir síðustu jól, er bók vikunnar á bókasafni ME :)

Bók vikunnar er Harry Potter og viskusteinninn í glænýrri, myndskreyttri útgáfu. Sama sagan og áður, tekin upp á æðra pl...
22/01/2020

Bók vikunnar er Harry Potter og viskusteinninn í glænýrri, myndskreyttri útgáfu.
Sama sagan og áður, tekin upp á æðra plan.

Address

Tjarnarbraut 25
Egilsstaðir
700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bókasafn ME posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Bókasafn ME:

Share

Category