Framsókn í Mosfellsbæ

Framsókn í Mosfellsbæ Framför – Framsýni – FRAMSÓKN

Við í Framsókn í Mosfellsbæ þökkum kærlega fyrir allan þann stuðning sem okkur var veittur í liðinni kosningabaráttu og ...
19/05/2026

Við í Framsókn í Mosfellsbæ þökkum kærlega fyrir allan þann stuðning sem okkur var veittur í liðinni kosningabaráttu og í kjörklefanum. 💚

Við erum afar stolt af öllum þeim árangri sem hefur unnist á síðastliðnu kjörtímabili og munum við halda áfram að vinna fyrir bæjarbúa af heilindum og ábyrgð.

Sérstakar þakkir fá þau sem lögðu hönd á plóg með einum eða öðrum hætti í kosningabaráttunni - við erum einstaklega heppin með okkar góða fólk.

Hlökkum til að eiga áframhaldandi samtal við íbúa Mosfellsbæjar á komandi kjörtímabili. 💚

Takk kærlega fyrir komuna og fyrir að kíkja við hjá okkur á popupinu. Það var virkilega ánægjulegt að hitta ykkur öll og...
15/05/2026

Takk kærlega fyrir komuna og fyrir að kíkja við hjá okkur á popupinu. Það var virkilega ánægjulegt að hitta ykkur öll og eiga góð samtöl saman.

Við vonumst til að sjá ykkur hress í kosningakaffinu okkar í FMOS á morgun frá kl. 10–16 og svo á kosningavökunni okkar á BlikBistro um kvöldið.

Vonandi hafi þið okkur í huga á morgun — þetta snýst um Mosó. 💚

15/05/2026

Höldum vegferðinni áfram - setjum X við B💚

"Á næsta kjörtímabili viljum við meðal annars halda áfram uppbyggingu á Varmársvæðinu með stúku- og þjónustubyggingu, kl...
14/05/2026

"Á næsta kjörtímabili viljum við meðal annars halda áfram uppbyggingu á Varmársvæðinu með stúku- og þjónustubyggingu, klára efstu hæð Brúarlands til að efla félagsstarf enn frekar og nýta aðra hæð Hlégarðs fyrir menningarstarfsemi. Þá viljum við halda áfram að þróa verkefnið Börnin okkar og bæta þjónustu bæjarins okkar enn frekar.

Ég trúi því að við séum á góðri leið og að með áframhaldandi ábyrgð, samvinnu og metnaði getum við gert Mosfellsbæ enn betri.

Ég vona að þú sjáir ástæðu til að halda þessari vegferð áfram með okkur.

Þetta snýst um Mosó – setjum X við B á kjördag."

Sævar Birgisson, 1. sæti á lista Framsóknar í Mosfellsbæ

Sævar Birgisson oddviti Framsóknar í Mosfellsbæ fer yfir nokkur verkefni sem hafa verið unnin á s.l. 4 árum

"Það gleður mig að heyra að opinberir aðilar vísa til Mosfellsbæjar sem fyrirmyndar í þjónustu við eldri borgara. Það er...
14/05/2026

"Það gleður mig að heyra að opinberir aðilar vísa til Mosfellsbæjar sem fyrirmyndar í þjónustu við eldri borgara. Það er staðfesting á því að við erum á réttri leið – og ég vil halda áfram á þeirri braut.

Fram undan vil ég sjá aukin kynslóðatengsl, því fjarlægðin milli kynslóða hefur aukist og einmanaleiki er raunverulegt vandamál. Eldra fólk á skilið samfélag sem styður það, hlustar og metur að verðleikum. Ég trúi því að tæknilausnir, ný hugsun og áframhaldandi uppbygging geti gert Mosfellsbæ að enn betra aldursvænu samfélagi.

Framsókn vill halda áfram að byggja á þeim sterka grunni sem lagður hefur verið á kjörtímabilinu."

Halla Karen Kristjánsdóttir, 2. sæti á lista Framsóknar í Mosfellsbæ

Halla Karen Kristjánsdóttir - skipar 2. sæti á lista Framsóknar í Mosfellsbæ við sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026

"Það sem hefur heillað mig við Framsókn er að flokkurinn treystir ungu fólki til ábyrgðar. Ef ég næ kjöri gæti ég orðið ...
14/05/2026

"Það sem hefur heillað mig við Framsókn er að flokkurinn treystir ungu fólki til ábyrgðar. Ef ég næ kjöri gæti ég orðið fyrsti bæjarfulltrúinn í Mosfellsbæ undir þrítugu og þar með yngsti í sögunni. Það sýnir kannski best hversu lengi unga fólkið í bænum hefur verið án raddar í bæjarstjórninni."

Leifur Ingi Eysteinsson, 3. sæti á lista Framsóknar í Mosfellsbæ

Leifur Ingi Eysteinsson - 27 ára - skipar 3. sæti á lista Framsóknar í Mosfellsbæ við sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026.

14/05/2026

Höldum vegferðinni áfram - setjum X við B á laugardaginn💚

12/05/2026

Afhverju ætti ungt fólk að kjósa Framsókn í Mosó?

Látum þetta gerast - setjum X við B💚

12/05/2026

Þetta snýst um börnin 💚

✅ Á þessu kjörtímabili hefur Framsókn í Mosó lagt mikla áherslu á endurnýjun leikvalla og skólalóða.
✅ Gert í samráði við starfsfólk og nemendur skólanna
✅ Mikilvægt lýðheilsumál, bæði á skólatíma og fyrir barnafjölskyldur dagsdaglega

XB í Mosó 💚

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir ritari Framsóknar ætlar að sækja okkur Mosfellinga heim á n.k. miðvikudag 21. janúar kl....
18/01/2026

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir ritari Framsóknar ætlar að sækja okkur Mosfellinga heim á n.k. miðvikudag 21. janúar kl. 20:00. Hlökkum til að sjá ykkur í hressandi BarSvari(PubQuiz) og eigum létt spjall við ritara Framsóknar.

Address

Mosfellsbær

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Framsókn í Mosfellsbæ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Framsókn í Mosfellsbæ:

Share