Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur

Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar rekur menningarstofnanir, sundlaugar og íþróttamannvirki.

Sviðið styður við listir, íþróttir og barnamenningu og stendur að fjölbreyttum viðburðum og hátíðum. Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar leggur rækt við mannlífið í borginni á fjölbreyttan hátt með rekstri menningarstofnana og íþróttamannvirkja, ásamt því að styðja við grasrótina í listalífinu, íþróttum og barnamenningu. Sviðið skipuleggur hátíðir í borginni og styður við fjölmarga viðburði og hátíðir sem lífga upp á lífið í borginni allt árið um kring.

🌞 Almyrkvi á sólu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum! 🌞
11/08/2026

🌞 Almyrkvi á sólu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum! 🌞

🌞 Almyrkvi á sólu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum! 🌞

Í tilefni af almyrkva á sólu verður opið í garðinum til kl. 19:00 miðvikudaginn 12. ágúst.
Við höfum fengið um 800 sólmyrkvagleraugu sem verða í boði fyrir gesti okkar í afgreiðslunni á meðan birgðir endast.
Til að skapa notalega og rólega sólmyrkvastemningu verður slökkt á tækjum frá kl. 17:00.
Athugið að venjulegt aðgangsgjald gildir.
Verið hjartanlega velkomin! 🌒🐑🐐🌞

✨Listakonan Dariia Tumanova opnar áhugaverða sýningu á Borgarbókasafninu Spönginni föstudaginn 7. ágúst.
06/08/2026

✨Listakonan Dariia Tumanova opnar áhugaverða sýningu á Borgarbókasafninu Spönginni föstudaginn 7. ágúst.

*English below* 🎨🚗✨ Spennandi sýning opnuð í Spönginni
Listakonan Dariia Tumanova opnar áhugaverða sýningu á Borgarbókasafninu Spönginni föstudaginn 7. ágúst.

Yfirskrift sýningarinnar er Í ljóma liðinna tíma, en á henni gefur að líta vatnslitamyndir þar sem fornbílar eru í forgrunni. Myndirnar fanga þó meira en fegurð fornbíla því sýningin er í raun óður til menningar, minninga og fortíðarinnar sem okkur hættir til að sveipa á ákveðnum ljóma.

Sýningin opnar á föstudag kl. 16:30.

🎉 Öll hjartamlega velkomin!

🔗 Nánar: https://borgarbokasafn.is/events/701876

//

🎨🚗✨ An Exciting Exhibition to Open at Spöngin Library

Artist Dariia Tumanova will open a new exhibition at Spöngin City Library on Friday, 7 August.

Titled In the Glow of Bygone Days, the exhibition features watercolour paintings in which classic cars and the distinctive world surrounding them take centre stage.

More than simply celebrating the beauty of vintage automobiles, the exhibition is a tribute to the past and the nostalgic glow with which we so often remember it.

The exhibition opens on Friday at 4:30 pm.

🎉 Everyone is warmly welcome!

🔗 Learn more: https://borgarbokasafn.is/en/events/701876

06/08/2026

Síðustu tívolí tónleikar sumarsins fara fram í dag þann 6. ágúst!

05/08/2026

❤️🧡💛💚💙💜 Gaman er að segja frá því að allir starfsstaðir Menningar- og íþróttasviðs hafa hlotið Regnbogavottun Reykjavíkurborgar. Þar með eru allar sundlaugar borgarinnar, öll söfn Borgarbókasafnsins, Listasafns Reykjavíkur og Borgarsögusafns, auk annarra starfsstaða sviðsins, komin með vottunina og erum við afar stolt af því.

Gleðilega Hinsegin daga!❤️🧡💛💚💙💜

🏳️‍🌈 Fimmtudaginn 6. ágúst verður innsetningin Hreiðrið: sögur um að tilheyra opnuð á annarri hæð Borgarbókasafnsins Gró...
04/08/2026

🏳️‍🌈 Fimmtudaginn 6. ágúst verður innsetningin Hreiðrið: sögur um að tilheyra opnuð á annarri hæð Borgarbókasafnsins Grófinni. Þar munu gestir og gangandi geta hlýtt á áhrifamiklar frásagnir af því hvað það þýðir að tilheyra.

*English below* 🏳️‍🌈🪺🎧 Hinsegin fólk opnar sig í Hreiðrinu
Fimmtudaginn 6. ágúst verður innsetningin Hreiðrið: sögur um að tilheyra opnuð á annarri hæð Borgarbókasafnsins Grófinni. Þar munu gestir og gangandi geta hlýtt á áhrifamiklar frásagnir af því hvað það þýðir að tilheyra.

Í tilefni Hinsegin daga verður kastljósinu beint sérstaklega að reynslu og röddum hinsegin fólks.

Hér eru á ferð einlæg viðtöl, annað hvort á íslensku eða ensku, níu talsins, sem eru jafn ólík og þau eru mörg, en eiga þó það sameiginlegt að hreyfa við hlustendum og varpa ljósi á mikilvægi þess að finna sér stað í samfélaginu.

Opnun Hreiðursins verður núna á fimmtudaginn 6. ágúst frá klukkan 16:00 til 18:00.

💛 Sjáumst!

//

🏳️‍🌈🪺🎧 LGBTQIA+ Voices in The Nest

On Thursday, 6 August, the installation The Nest: Stories of Belonging opens on the second floor of Grófin City Library. Visitors are invited to listen to powerful personal stories exploring what it means to belong.

As part of Reykjavík Pride, the installation shines a spotlight on the experiences and voices of LGBTQIA+ people.

The installation features nine heartfelt interviews, recorded in either Icelandic or English. Each story is unique, yet they all share a common thread: they invite listeners to reflect on the importance of finding a place where we feel we belong.

Join us for the opening of The Nest on Thursday, 6 August, from 4:00–6:00 pm.

💛 See you there!

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur:

Shortcuts

Share