Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálfstæðisflokkurinn Velkomin á síðu Sjálfstæðisflokksins. Viltu ekki auglýsingar frá Sjálfstæðisflokknum? Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður 25. maí 1929.

Leiðb: https://xd.is/auglysingar-fra-sjalfstaedisflokknum/
Opinn vettvangur áhugasamra um flokkinn og landsmál.
Ómálefnalegum og dónalegum skrifum verður eytt sem og grafískum áróðri. Ekki er um að ræða lista yfir félagsbundið Sjálfstæðisfólk. Öllum er frjálst að líka við síðuna, og hafa margir áhugasamir um þjóðmál, samfélagsmál og flokk gert það. Sjálfstæðisflokkurinn kann að beina auglýsingum

sérstaklega í þennan hóp. Þeir sem ekki vilja sjá auglýsingar flokksins geta fylgt hlekk hér að ofan. Grundvallarstefnumál og hugsjónir Sjálfstæðisflokksins koma fram í sjálfstæðisstefnunni sem flokkurinn hefur fylgt frá upphafi. Sjálfstæðisstefnan er hvorki langorð né flókin heldur veitir hún leiðbeiningar um nokkur mikilvæg atriði sem er nauðsynlegt að taka mið af, vilji menn tryggja frelsi og framþróun í þjóðfélaginu. Hún gefur sig ekki út fyrir að vera nákvæm forskrift að fullkomnu ríki enda lifa slík fyrirmyndarríki sjaldnast sjálfstæðu lífi utan kennisetninga og fræðikerfa.

Þegar Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn sameinuðust árið 1929 undir merkjum nýs flokks, Sjálfstæðisflokksins, var kveðið á um tvö meginatriði sem flokkurinn skildi hafa að leiðarljósi. Annars vegar var því lýst yfir að undanbragðalaust yrði að vinna að því að landið yrði sjálfstætt þegar skilyrði væru til þess samkvæmt sambandslögunum. Hins vegar sagði að flokkurinn ætlaði: „Að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum.“

Þessi kjarnyrta stefnuyfirlýsing hefur fylgt flokknum allar götur síðan og verið hans leiðarljós. Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins er stefna flokksins í einstökum málaflokkum mótuð, eins og sjá má á öðrum stað á síðunni auk þess sem samþykkt er sérstök stjórnmálaályktun á hverjum landsfundi. Landsfundi flokksins sitja landsfundarfulltrúar, sem valdir eru af aðildarfélögum flokksins um land allt og hafa allir fulltrúar atkvæðisrétt á landsfundi varðandi stefnumótun og kjör í embætti flokksins. Undanfarin 18 ár hafa orðið miklar breytingar í íslensku samfélagi, sem er nú orðið opnara og frjálsara en áður. Kjör almennings í landinu hafa batnað mikið á þessu tímabili, kaupmáttur aukist verulega og atvinnuleysi verið með því minnsta sem þekkist í heiminum. Þrátt fyrir að miklir erfiðleikar hafi fylgt falli bankakerfisins á Íslandi í október 2008, er sá árangur sem náðst hefur ekki til einskis.

Á næstu misserum verður atvinnulífið byggt upp á nýjan leik og íslenska þjóðin mun koma sterkari út eftir á. Þrátt fyrir að ríkisvaldið hafi tímabundið þurft að stíga inn í rekstur veigamikilla fyrirtækja er skýrt að mati Sjálfstæðisflokksins að slíkt sé ekki heillavænlegt til langframa og verður losað um eignarhald ríkisins aftur um leið og færi gefst. Forysta Sjálfstæðisflokksins:

Formaður Sjálfstæðisflokksins: Bjarni Benediktsson
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Ritari Sjálfstæðisflokksins: Vilhjálmur Árnason
Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins: Þórður Þórarinsson
Formaður Sveitarstjórnarráðs: Ragnar Sigurðsson
Formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna: Nanna Kristín Tryggvadóttir
Formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins: Kristinn Karl Brynjarsson
Formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna: Halldór Blöndal
Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna: Viktor Pétur Finnsson

18/08/2026

Sérsambönd Sjálfstæðismanna; Samband ungra Sjálfstæðismanna, Samtök eldri Sjálfstæðismanna, Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins og Landssamband Sjálfstæðiskvenna, auk Félags sjálfstæðismanna um fullveldismál, standa að baráttufundi kl. 17:30, þriðjudaginn 18. ágúst, í Tónabíói, Skipholti 33. Yfirskrift fundarins er: Frjálst Ísland, fullvalda þjóð.

Frummælendur eru Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og Júlíus Viggó Ólafsson, formaður SUS. Fundarstjóri er Stefán Einar Stefánsson.

„Að mínu mati er hér einungis um fyrsta frelsisskrefið í breyttum fánalögum að ræða. Það þarf að auka möguleika einstakl...
18/08/2026

„Að mínu mati er hér einungis um fyrsta frelsisskrefið í breyttum fánalögum að ræða. Það þarf að auka möguleika einstaklinga, stofnana og fyrirtækja á því að nota fánann mun oftar og víðar en nú er. Fólk á að fá að flagga þegar því hentar.

Sjálfsagt á að vera að nota fánann sem merki í auglýsingum, á vörum, skreytingum og þess háttar en fánanum að sjálfsögðu ætíð sýnd full virðing við notkun. Við þurfum ekki að leita langt út fyrir landsteinana að fyrirmyndum en Svíar, Norðmenn og Danir hafa fyrir löngu náð góðum tökum á notkun sinna þjóðfána. Þar er það ekki ríkið sem stjórnar því hvernig einstaklingar nota fánann.

Við eigum að gera íslenska fánanum enn hærra undir höfði og sýna þannig okkar sameiningartákni og íslenskri menningararfleifð virðingu og sóma. Treystum fólki og frelsum enn frekar íslenska fánann.“

Þú getur lesið alla grein Rósu í fyrstu athugasemd.

„EES-samningurinn er ekki gallalaus en hann er sannarlega mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands. Í gegnum hann fáum vi...
17/08/2026

„EES-samningurinn er ekki gallalaus en hann er sannarlega mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands. Í gegnum hann fáum við aðgang að yfir 450 milljón manna markaði og verðmætu evrópsku samstarfi en þurfum ekki að taka upp íþyngjandi regluverk sem hentar Íslandi illa, eins og t.a.m. varðandi fiskveiðar og landbúnað.

Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra vakti athygli á því með grein í Morgunblaðinu að EES-samstarfinu gæti verið glutrað niður með ESB-leiðangri ríkisstjórnarinnar. Ég tek undir með honum að þetta er áhættusöm vegferð fyrir samstarfið sem er, eins og við sem höfum gætt hagsmuna Íslands þekkjum, ekki fyrsta val ESB-ríkja til samstarfs við Ísland. ESB-ríkin vilja fá Ísland, enda góður biti. Er það vegna einskærrar góðvildar eða vegna þeirra eigin hagsmuna?

Ég vil standa vörð um EES-samninginn og segi því NEI 29. ágúst.“

Þú getur lesið alla grein Diljár í fyrstu athugasemd.

„Í stað þess að hækka og hækka skatta og gjöld, eins og nú er gert, hefur Sjálfstæðisflokkurinn lagt til að hægt sé að t...
17/08/2026

„Í stað þess að hækka og hækka skatta og gjöld, eins og nú er gert, hefur Sjálfstæðisflokkurinn lagt til að hægt sé að takast á við vandann með því að minnka umsvif ríkisins, leggja niður stofnanir, lækka skatta og gjöld, fella niður gjaldaflokka eins og vörugjöld á bifreiðar og kolefnisgjald og selja eignir til að minnka vaxtabyrði ríkisins. Í stað þriggja tekjuskattsþrepa kæmi eitt skattþrep, 35%. Allt til þess gert að blása lífi í atvinnulífið, létta byrðarnar hjá fólkinu í landinu og hvetja fólk til meiri atvinnuþátttöku þannig að almenningur finni að afrakstur vinnu hans sitji eftir í vasa hans, en ekki hjá hinum óseðjandi ríkissjóði.

Það er von mín að sú ríkisstjórn sem nú situr við völd verði eins og almyrkvinn. Hún vari stutt og síðan birti til aftur með bjartari framtíð fyrir íslenska þjóð.“

Þú getur lesið alla grein Jens í fyrstu athugasemd.

14/08/2026

Við sem þjóð stöndum sterkari utan Evrópusambandsins, sem glímir sjálft við miklar og erfiðar áskoranir. Við munum segja nei!

„Áform ríkisstjórnarinnar um að mæta kostnaði við viðræður við Evrópusambandið með forgangsröðun og hagræðingu eru líka ...
13/08/2026

„Áform ríkisstjórnarinnar um að mæta kostnaði við viðræður við Evrópusambandið með forgangsröðun og hagræðingu eru líka áhugaverð í ljósi þess að ríkisstjórnin óskaði eftir hagræðingartillögum frá almenningi þegar hún tók við stjórnartaumunum svo sem áður segir. Tæplega 4 þúsund tillögur bárust og sneru margar þeirra að starfsmannahaldi ríkisins. Lítið hefur reyndar heyrst af hagræðingaraðgerðum ríkisstjórnarinnar, hvað þá varðandi starfsmannahald. En það er athyglisvert að stjórnvöld sjái þarna tækifæri til að hlaða þessum verkefnum á núverandi starfsmenn ráðuneyta og stofnana.

Staðreyndin er sú að viðræður um aðild að Evrópusambandinu eru bæði kostnaðarsamt og tímafrekt ferli. Eins fjölmargir hafa lýst sem komu að viðræðum Jóhönnustjórnarinnar, yrði stór hluti stjórnkerfisins upptekinn árum saman; mikið súrefni myndi fara í þetta svo notast sé við orðalag forsætisráðherra. Stendur vilji almennings til þess?“

Þú getur lesið alla grein Diljár í fyrstu athugasemd.

„Ríkisstjórnin mun auðvitað segja að hún vilji lægri vexti, enginn stjórnmálaflokkur segist vilja halda þeim háum. Í þei...
11/08/2026

„Ríkisstjórnin mun auðvitað segja að hún vilji lægri vexti, enginn stjórnmálaflokkur segist vilja halda þeim háum. Í þeim efnum duga orðin ein ekki. Athafnir og verk, sem ekki toga í öfuga átt, verða að fylgja.

Ríkisstjórn sem getur ekki tekið á eigin útgjöldum, lántöku og skuldasöfnun í dag verður ekki sjálfkrafa ábyrgari í ríkisfjármálum við inngöngu í Evrópusambandið.

Verðbólgubaráttan hefst ekki í Brussel eða Frankfurt. Hún hefst við ríkisstjórnarborðið á Íslandi. Þar hafði ríkisstjórnin tækifæri til að standa við loforðin. Hún kaus að gera það ekki.“

Þú getur lesið alla grein Guðlaugs í fyrstu athugasemd.

10/08/2026

Saga Sjálfstæðisflokksins er vörðuð stærstu áföngum Íslands í alþjóðasamskiptum og það er okkar mat að hagsmunum okkar Íslendinga er betur borgið utan Evrópusambandsins.🇮🇸

„Stafar áherslubreytingin kannski af því að ríkisstjórnin vill ekki að fólk sé minnt á að það hvorki hefur gengið né rek...
10/08/2026

„Stafar áherslubreytingin kannski af því að ríkisstjórnin vill ekki að fólk sé minnt á að það hvorki hefur gengið né rekið að lækka vexti, draga úr verðbólgu og efla atvinnulífi? Og það þrátt fyrir að vaxtalækkanaferli hafi verið hafið áður en ríkisstjórnin tók við stjórn landsins sem snérist svo í öfuga átt vaxtahækkana, ekki síst vegna þeirra eigin ákvarðana.

Þess í stað er öllum árum róið að því að slá ryki í augu fólks um að efnahagslausnirnar, sem landið þarf svo sárlega á að halda, sé ekki að finna hjá þeim sjálfum heldur í algjörlega óskilgreindri vegferð til ESB. Því miður mun ekkert vinnast með slíkri óskhyggju. Betra væri að ríkisstjórnin setti kíkinn við rétt auga.“

Þú getur lesið alla grein Hildar í fyrstu athugasemd.

Fjöl­breytni þrífst best í frjálsu sam­fé­lagi - Gleðilega Hinsegin daga!
08/08/2026

Fjöl­breytni þrífst best í frjálsu sam­fé­lagi - Gleðilega Hinsegin daga!

Address

Háaleitisbraut 1
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3545151700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sjálfstæðisflokkurinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Sjálfstæðisflokkurinn:

Shortcuts

Share