Vinstrihreyfingin - grænt framboð

Vinstrihreyfingin - grænt framboð Vinstrihreyfingin – grænt framboð er vinstriflokkur sem leggur höfuðáherslu á jöfnuð og sjálfbærni. Hvorugt fær staðist án hins þegar til framtíðar er litið.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill beita sér fyrir róttækum þjóðfélagsumbótum almenningi til hagsbóta, hefja vernd náttúru og umhverfis til vegs á Íslandi og treysta byggð um allt land. Hreyfingin er samstarfsvettvangur og baráttutæki þeirra, sem vilja útrýma kynjamisrétti og tryggja jafnrétti, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð í samfélaginu. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill byggja upp lýðræði

slegt og réttlátt þjóðskipulag grundvallað á virkri þátttöku almennings. Hreyfingin hafnar alræði markaðshyggjunnar og vill varðveita sjálfstæði þjóðarinnar og forræði yfir eigin auðlindum. Vinstrihreyfingin­ – grænt framboð vill binda enda á hersetu í landinu og aðild að hernaðarbandalagi, en leggur áherslu á að eiga gott og friðsamlegt samstarf við allar þjóðir, vernda náttúru og umhverfi landsins og tryggja sjálfbæra þróun samfélagsins. Vinstrihreyfingin - grænt framboð telur sígildar áherslur vinstristefnunnar um jöfnuð og félagslegt réttlæti, róttæk umhverfisverndarsjónarmið og kröfur um sjálfbæra þróun eiga og verða að fara saman. Lífskjör og velferð núlifandi kynslóða mega ekki byggja á því að náttúrugæðum sé spillt og gengið á rétt þeirra sem á eftir koma. Á sama hátt felst það í heilsteyptri umhverfisverndarstefnu að skammtímahagsmunir, neysluhyggja og gróðafíkn víki fyrir verndun umhverfis og varðveislu náttúrugæða. Verkefnið er að lyfta gildum raunverulegra lífsgæða, skapa samfélag réttlætis og jafnaðar í góðri sátt við lífríkið allt og móður jörð

Gleðilega hinsegin daga ! Stöndum með mannréttindum og umburðarlyndi. Vinnum gegn bakslaginu í viðhorfi gagnvart mannrét...
04/08/2026

Gleðilega hinsegin daga ! Stöndum með mannréttindum og umburðarlyndi. Vinnum gegn bakslaginu í viðhorfi gagnvart mannréttindum hinsegin samfélagsins. Lifi fjölbreytileikinn ! ❤️🌈🏳️‍⚧️

Til hamingju öll með Hinsegin daga sem hefjast í dag !

Heil vika sem minnir okkur á fegurðina í fjölbreytileikanum, á mikilvægi þess að við sýnum öllum umburðarlyndi og virðingu og síðast en ekki síst á mátt og kraft ástar og kærleika ❤️

Virðingin og umburðarlyndið fyrir fjölbreytileikanum hefur ekki komið af sjálfu sér. Baráttufólk og stuðningsfólk þeirra hefur sýnt ótrúlega þrautseigju og kjark í gegnum áratugina sem hefur fært okkur betra, víðsýnna og fjölbreyttara samfélag þar sem borin er virðing fyrir mannréttindum allra.

En það eru blikur á lofti eins og við höfum séð undanfarin ár. Ekki bara í Berlín, Magdebourg, Ungverjalandi eða annars staðar þar sem ráðist hefur verið að fólki í gleðigöngum. Eða árásir gegn transfólki sem við sjáum því miður víða. Bakslaginu hefur skolað hingað til Íslands og inn í orðræðu stjórnmálafólks, inn í hugarheim ungs fólks og við sjáum það birtast í atlögu gegn hinsegin fánum og litskrúðugum tröppum. Jafnvel skipulagningu á eyðileggingu Gleðigöngunnar.

Sameinumst öll í því að stöðva bakslagið og stöndum með umburðarlyndi, virðingu og ekki síst með ástinni !
❤️🏳️‍⚧️🏳️‍🌈

(Mynd fengin af hinsegindagar.is)

23/07/2026

Atvinnuleysið hefur ekki verið meira síðan í heimsfaraldrinum segir aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, Henný Hinz. Um þetta ástand í atvinnumálum skrifaði ég grein í Morgunblaðið í byrjun júlí eins og lesa má hér neðar á síðunni 👇Þar kallaði ég eftir aðgerðum stjórnvalda. Hvar eru þær ?

Okkar fólk í Múlaþingi stendur vaktina þó það sé sumar ! Fulltrúar VG og óháðra lögðu fram bókun þar sem þau leggjast ge...
07/07/2026

Okkar fólk í Múlaþingi stendur vaktina þó það sé sumar !

Fulltrúar VG og óháðra lögðu fram bókun þar sem þau leggjast gegn fyrirhuguðum framkvæmdum á vindtúrbínum við Fljótsdalsvirkjun. Þau munu svo birta sérstaka umsögn um málið ✅

Uppsetning tveggja vindmylla við Lagarfossvirkjun

01/07/2026

Sumarið er tíminn ! ☀️

En fyrir fólk án atvinnu er lítil sumarsæla. Að vera án atvinnu og með fjárhagsáhyggjur er ekki góð staða. Nýjustu tölur um atvinnuleysi sýna að atvinnuleysi eykst jafnt og þétt milli ára. Staðan í aldurshópnum 16-24 ára er alltof þung. Þegar við rýnum í tölurnar kemur í ljós í árstíðarleiðréttri mælingu Hagstofunnar að atvinnuleysi 16-24 ára er 13% í maí samanborið við 5% fyrir ári. Það þýðir að 5000 manns í þeim aldursflokki voru án atvinnu samanborið við 2000 manns á sama tíma í fyrra…
Til viðbótar við hátt hlutfall ungs fólks án atvinnu, skera Suðurnesin sig úr þegar kemur að landsvæðum þar sem hlutfall atvinnulausra er hæst. Þar þarf sértækar og samhæfðar aðgerðir.

Skrifaði (langa) grein um atvinnuleysið í Moggann í dag. Þar auglýsi ég eftir viðbrögðum frá ríkisstjórninni; skammtímaaðgerðum eða sértækum aðgerðum.

Atvinnuleysi er vont og hefur fjárhagslegar, félagslegar og andlegar afleiðingar fyrir einstaklinga og slæmar afleiðingar fyrir samfélagið. Til að vinna bug á atvinnuleysi dugar ekki sinnuleysi og fálæti ráðamanna heldur aðgerðir.

16/06/2026

Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir næstu 5 ár var samþykkt af meirihlutanum á Alþingi í gær.

Minnihluti hægrimanna mótmælti hástöfum því sem þau kalla umtalsverðar skattahækkanir, á meðan við vinstrimenn sjáum ekki nægjanlega útfærðar tekjuöflunarleiðir og alltof stífar aðhaldsaðgerðir.

Í áætluninni kemur því miður fram dapurleg sýn á grunnþjónustuna og samfélagið, á meðan fagstéttirnar benda sjálfar á að mönnunarvandi blasir við í kerfislega mikilvægum stéttum. Gert er ráð fyrir aðhaldsaðgerðum, fækkun ríkisstarfsmanna og ekki nægjanlegum metnaði í
uppbyggingu í lykilþjónustu.

Sérstaklega vekur áhyggjur að ekki sé gert ráð fyrir auknu fjármagni til framhaldsskóla á tímabilinu. Það er algjörlega óboðleg nálgun. Metnaðarleysið hvað varðar menntakerfið og niðurskurður á fjármagni í menntun ungs fólks á Íslandi er gríðarlegt áhyggjuefni.

Rauður þráður - sem jaðrar við þráhyggju - í gegnum áætlunina er að nú skuli fjárlög vera hallalaus. Það markmið er góðra gjalda vert þegar vel gengur. En þegar vaxtastig og verðbólga og atvinnuleysi hafa verið stöðugt yfir meðaltali og illa gengur að vinna á því, er hættan við þráhyggjuna um hallalaus fjárlög sú að ekki verði veitt nægjanlegt fjármagn til grunnþjónustu og við sitjum uppi með svo stífa aðhaldskröfu að niðurskurður bitni á grunnkerfunum.

Enda kemur það fram í áætluninni.

Aðhaldið á grunnþjónustuna kemur fram gagnvart ríkisstarfsmönnum og miðar ríkisstjórnin að þeim fækki um 1% á næsta ári og ríkisstofnunum fækki um 15% á kjörtímabilinu.

Þetta viðhorf ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokk fólksins í garð opinberra starfsmanna helst í hendur við áform ríkisstjórnar um afnám áminningarskyldu til opinberra starfsmanna sem t.a.m BSRB hefur mótmælt hástöfum.

Meirihluti fjármálanefndar Alþingis fagnar hagræðingaraðgerðum hjá hinu opinbera upp á 170 milljarða og tekur því miður undir viðhorfið til ríkisstarfsmanna og launakrafa þeirra og kjarasamningsgerða og segir m.a. í sínu áliti; …” Til langs tíma ættu launahækkanir ekki að vera umfram framleiðniaukningu. Vísbendingar eru um að nauðsynlegt sé að auka sérstaklega aðhald á þessu sviði.” Er það virkilega framlag meirihlutans á þingi að kvarta yfir því að kjör opinberra starfsmanna sé fullgóð og nú þurfi að stemma við launahækkunum þeirra ?

Þessi nálgun meirihlutans og ríkisstjórnarinnar ber vott um skort á virðingu fyrir þeim stofnunum og því starfsfólki sem heldur uppi heilbrigðis-, mennta-, velferðar- og öryggisþjónustu landsins. Að boða fækkun ríkisstarfsmanna á sama tíma og stjórnvöld viðurkenna sjálf að mönnun sé ein stærsta áskorun heilbrigðiskerfisins er augljóst misræmi í stefnu ríkisstjórnarinnar.

Málefnaflokkar heilbrigðismála eru allajafna langstærsti útgjaldaliður Ríkissjóðs hverju sinni. Ríkisstjórnin ætlar sér því miður ekki þá nauðsynlegu hækkun sem þarf í þá málaflokka og nær aukningin engan veginn upp í þá aðkallandi þörf sem heilbrigðismálin þurfa nauðsynlega á að halda.

Vinstri græn sendu inn umsögn við fjármálaáætlunina og þar gagnrýnum við markmiðið um hallalaus fjárlög og að í of ríkum mæli sé ætlun ríkisstjórnarinnar að nota samdrátt á gjaldahlið til að ná því,fremur en með réttlátri og sjálfbærri tekjuöflun.

Stíf aðhaldsstefna sem birtist í fjármálaáætlun ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokk fólksins, felur ekki í sér ábyrga hagstjórn heldur einfaldlega meðvitaða ákvörðun um að þrengja að almannaþjónustu.

( mynd fengin af vef BB )

11/06/2026

Ályktun UVG vegna nýsamþykkts frumvarps dómsmálaráðherra, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, um brottfararstöð fyrir fólk á flótta.

“Allra gagnrýniverðast er að með lögunum er heimilað að frelsissvipta börn vegna stöðu foreldra þeirra. Við erum því að ...
11/06/2026

“Allra gagnrýniverðast er að með lögunum er heimilað að frelsissvipta börn vegna stöðu foreldra þeirra. Við erum því að setja fólk og börn á bak við læstar dyr, ekki vegna þess hvað það hefur gert, heldur hver staða þess er í íslensku stjórnkerfi.”
Rósa Björk Brynjólfsdóttir
Hlekkur í greinina 👇👇

09/06/2026

Mig skortir satt að segja orð…

Eitt er að þingmenn Jafnaðarmannaflokks Íslands hafi látið þetta þingmál fara í gegnum þingið. Og það án breytingatillagna frá þeim sjálfum, heldur með breytingatillögum frá Sjálfstæðisflokknum…annað er að hreykja sér af því !

Er “breið sátt” um það í þjóðfélaginu að geta frelsissvipt börn og fjölskyldur þeirra í allt að 9 daga vegna stöðu foreldra þeirra ? Þvert á það sem innlendar og erlendar stofnanir og mannréttindasamtök ráðlögðu að gera.

Og hvaða “verndarpakka ESB” er hér vísað í ?

Address

Hallveigarstaðir, Túngata 14
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vinstrihreyfingin - grænt framboð posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Vinstrihreyfingin - grænt framboð:

Shortcuts

Share