Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna

Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna Lífsbrú vinnur að sjálfsvígsforvörnum undir merkjum embættis landlæknis.

Markmið Lífsbrúar er að vinna að sjálfsvígsforvörnum í samræmi við samþykkta aðgerðaráætlun stjórnvalda.

Í kjölfar andláts – góður leiðarvísir fyrir aðstandendurÞegar ástvinur fellur frá getur verið erfitt að vita hvað á að g...
23/07/2026

Í kjölfar andláts – góður leiðarvísir fyrir aðstandendur

Þegar ástvinur fellur frá getur verið erfitt að vita hvað á að gera næst og hvert hægt er að leita eftir stuðningi.

Bæklingurinn Í kjölfar andláts – góð ráð fyrir aðstandendur, var unninn í samstarfi við Sorgarmiðstöð og inniheldur skýrar og aðgengilegar upplýsingar um fyrstu skrefin, hagnýt atriði, líðan í sorg og þann stuðning sem stendur til boða.

Bæklingurinn er einnig fáanlegur á ensku.

Hægt er að nálgast hann:

💛 rafrænt á netinu
💛 hjá Sorgarmiðstöð
💛 með því að senda beiðni á [email protected]

Við vonum að bæklingurinn geti reynst aðstandendum stuðningur og leiðarvísir á erfiðum tíma.

🔗https://assets.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1HXx608unbfOfVhgZP2Dny/e6a384ca3eeb57d7de2918dbb12ab1d8/I_kjolfar_andlats_A5_2025.pdf

Við hjá Lífsbrú heimsóttum Bergið Headspace í síðustu viku og áttum þar bæði ánægjulegan og dýrmætan fund þar sem við fe...
06/07/2026

Við hjá Lífsbrú heimsóttum Bergið Headspace í síðustu viku og áttum þar bæði ánægjulegan og dýrmætan fund þar sem við fengum tækifæri til að kynna starfsemina okkar.

Á fundinum ræddum við meðal annars mikilvægi samstarfs í sjálfsvígsforvörnum, hlutverk lágþröskuldaúrræða fyrir ungt fólk og fjölbreytt verkefni sem eru á döfinni hjá Lífsbrú og í vitundarvakningarátakinu Gulum september.

Það var sérstaklega ánægjulegt að fara yfir sameiginlega snertifleti í starfi Bergsins og Lífsbrúar og ræða tækifæri til áframhaldandi samstarfs. Meðal þess sem kom til umræðu voru fræðsla, vitundarvakning, viðburðir í Gulum september, úrræðamyndbönd og mikilvægi þess að ungt fólk og aðstandendur viti hvar hjálp er að fá.

Við erum þakklát fyrir hlýjar móttökur, gott samtal og þann mikla kraft sem býr í starfsemi Bergsins. Það er dýrmætt að sjá hversu öflugt starf er unnið þar í þágu ungs fólks.

Saman getum við eflt stuðning, aukið sýnileika úrræða og styrkt sjálfsvígsforvarnir.

30/06/2026

✨ Nú er fjórum af tuttugu og s*x aðgerðum í Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi 2025 – 2030 lokið. Þar á meðal er innleiðing nýrra ráðlegginga um ábyrga umfjöllun fjölmiðla um sjálfsvíg og fræðsla til fjölmiðlafólks og háskóla sem kenna blaðamennsku og fjölmiðlafræði.

✨ Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg getur skipt sköpum – hún getur aukið þekkingu, dregið úr fordómum og hvatt fólk til að leita sér aðstoðar þegar á þarf að halda.

✨ Þetta er mikilvægt skref í að efla sjálfsvígsforvarnir og styðja við upplýsta og örugga umræðu um geðheilsu og sjálfsvíg.

🔗 https://island.is/s/landlaeknir/frett/adgerdaaaetlun-til-ad-faekka-sjalfsvigum-fjorum-adgerdum-lokid

Að finna orðin 💛Það getur verið erfitt að vita hvað á að segja eða gera þegar einhver í kringum okkur hefur misst ástvin...
02/06/2026

Að finna orðin 💛

Það getur verið erfitt að vita hvað á að segja eða gera þegar einhver í kringum okkur hefur misst ástvin í sjálfsvígi.

Við viljum styðja, en stundum stöðvar óttinn við að segja eitthvað rangt okkur frá því að hafa samband. En oft skiptir mestu máli að sýna nærveru — að láta vita: ég er hér.

Bæklingurinn Að finna orðin er stuttur og hlýr leiðarvísir fyrir þau sem vilja styðja syrgjendur eftir sjálfsvíg. Þar má finna hjálplegar leiðir til að nálgast, hlusta og vera til staðar þegar orð vantar.

📘 Lesa bæklinginn hér:
https://assets.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/40jpxgOZiK0Qk0bohgn6RN/fa89b9de200e17819d04214417841ee4/EL_Ad_finna_ordin_A5_VEF.pdf

Stundum þarf ekki mörg orð. Stundum er nóg að vera til staðar. 💛

Semíkomman; lítið tákn með stóra merkingu.Í ritmáli er semíkomma notuð þegar setning hefði getað endað, en heldur samt á...
21/05/2026

Semíkomman; lítið tákn með stóra merkingu.

Í ritmáli er semíkomma notuð þegar setning hefði getað endað, en heldur samt áfram.

Þess vegna hefur semíkomman orðið sterkt tákn fyrir fólk sem hefur glímt við sjálfsvígshugsanir, sjálfsskaða eða djúpa vanlíðan. Hún minnir okkur á að sagan er ekki búin — þótt allt virðist óyfirstíganlegt á erfiðustu stundunum.

Semíkomman er hluti af kennimerki Lífsbrúar og vitundarvakningarátaksins Gulur september. Hún stendur fyrir von, áframhald og þá mikilvægu trú að lífið geti haldið áfram — með stuðningi, samtali og hjálp.

Við viljum minna á að engin þarf að standa ein með erfiðar hugsanir. Það er hægt að fá hjálp. Samtal getur skipt sköpum. Og sagan þín á sér framhald.

💛

Ef þú ert í bráðri hættu eða hefur áhyggjur af einhverjum, hringdu í 112.
Píeta-samtökin eru með síma 552 2218.

staðar

Gul hjól á góðri ferð 💛Við hjá Lífsbrú fögnum því að sjá gulan lit vekja athygli víða um bæinn og minna okkur á mikilvæg...
13/05/2026

Gul hjól á góðri ferð 💛

Við hjá Lífsbrú fögnum því að sjá gulan lit vekja athygli víða um bæinn og minna okkur á mikilvægi samtals, stuðnings og sjálfsvígsforvarna.

Takk fyrir fallega og áhrifaríka herferð, 🚲💛

Undirbúningur fyrir Gulan september er kominn á fullt 💛

Það er einstaklega ánægjulegt að sjá gul reiðhjól birtast víða um bæinn í tengslum við átakið Gul hjól – góð ferð, vitundarvakningu um að tekið sé eftir virkum vegfarendum, sem Reiðhjólabændur hafa sett upp samhliða Hjólað í vinnuna.

Herferðin hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli undanfarna daga og minnir okkur fallega á að Gulur september nálgast — vitundarvakning um sjálfsvígsforvarnir, samtal, stuðning og von.

Við hlökkum til að sjá gulan lit lýsa upp samfélagið með okkur í september.

📸 Mynd: Sigurður Jónas Eggertsson
💛

Address

Katrínartún 2
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share