Spennistöðin

Spennistöðin Hafir þú áhuga á því að bóka spennistöðina endilega sendu póst á [email protected]

Gis Loksins félagsmiðstöð ! skilaði greinagerð árið 2011.

Spennistöðin er félags- og menningarmiðstöð íbúa Miðborgarinnar, fjölnotarými til kennslu í Austurbæjarskóla og aðsetur félagsmiðstöðvarinnar 100og1. Rekstur Spennistöðvarinnar er í höndum Skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar en sérstakt húsráð er ráðgefandi um reksturinn og skipuleggur notkun hússins þann tíma sem ekki er nýttur fyrir skólastarf og opnunartíma félagsmiðstöðvar. Aðgerðarhópur

var stofnaður í fundarherbergi Austurbæjarskóla í árslok 2009 með það að markmiði að vekja athygli á áratuga aðstöðuleysi skólans og félagsmiðstöðvarinnar. Eldri hugmyndir um nýtingu Vörðuskóla fyrir skóla- og frístundastarf höfðu verið slegnar af og engar nýjar tillögur bárust. Hópurinn ákvað að rifja upp hugmynd um nýtingu spennistöðvarinnar og kynna hugmyndina um uppbyggingu félags- og menningarmiðstöðvar, samnýtingu skóla-, frístundar og íbúa á þessu húsnæði. Ekki átti að fara í “2007” framkvæmd, heldur leyfa húsnæðinu að þróast og mótast af þörfum notenda hússins, byggja það upp í áföngum. Komið yrði á öflugu samstarfi einstaklinga og stofnana um samnýtingu húsnæðis og búnaðar í þágu barna, ungmenna og annarra íbúa hverfisins. Haldin voru málþing með fyrrverandi og núverandi nemendum, og íbúaþing í Tækniskólanum í samstarfi íbúasamtaka, hverfisráðs og foreldrafélaga leik- og grunnskóla í hverfinu. Fulltrúar foreldra og íbúa sendu ótal erindi og kynntu ráðamönnum málið. Úttekt á húsnæðinu var gerð 2010 og starfshópur Í.T.R. Hugmyndin var valin efst í sínum flokki á samráðsvefnum Betri Reykjavík árið 2012 og var fyrst úhlutað fjármagni á framkvæmdáætlun ársins 2013. Útbúin var skýrsla um spennistöðina þar sem lögð var áhersla á samnýtingu skólans og félagsmiðstöðvar á húsnæðinu ásamt því að þar gæti farið fram starfsemi á vegum íbúa í hverfinu. Farið yrði í lágmarksaðgerðir í fyrsta áfanga og lögð áhersla á fjölnota sal, framkvæmdir við húsnæðið ættu að taka mið af óskum notenda.

Í lok árs 2013 voru framkvæmdir hins vegar ekki hafnar og fóru nemendur, kennarar, foreldrar, starfsfólk 100og1 og íbúar í mikla kröfugöngu frá Skólavörðuholti og niður í Ráðhús til fylgja málinu eftir. “Þið fáið félagsmiðstöð” sagði þáverandi borgarstjóri, Jón Gnarr og Spennistöðin var formlega opnuð 28. nóvember 2014 við hátíðlega athöfn. Spennistöðin er húsnæði sem lengi hafði staðið autt og var áður í eigu Rafmagnsveitu Reykjavíkur, síðar Orkuveitu Reykjavíkur. Spennistöðin var byggð árið 1949 og eftir að ný spennistöð var reist við hlið Heilsuverndarstöðvarinnar var húsnæðið um árabil notað sem varahlutalager Orkuveitu Reykjavíkur. Sú notkun sem hafði í för með sér talsverða umferð þungavinnutækja sem féll mjög illla að staðsetningu hússins við skólann. Reykjavíkurborg keypti síðan spennistöðina af Orkuveitu Reykjavíkur. Nemendafélag og foreldrafélag Austurbæjarskóla hlutu þann 20. maí 2015 hvatningarverðlaun Heimilis og skóla fyrir baráttu sína fyrir bættum aðstæðum nemenda, barna og ungmenna í íbúahverfinu Miðborg. Fulltrúar nemenda, foreldra og skólans mættu saman á hátíðlega stund í Þjóðmenningarhúsi. Félögin fengu fallegan blómvönd sem starfsmenn skólans fengu að njóta, inneignarnótu í IKEA sem nemendafélagið fékk til ráðstöfunar, glerstyttu og viðurkenningarskjal.

06/04/2021

Tímabundið hefur verið lokað fyrir útleigu á Spennistöðinni á meðan hertar sóttvarnareglur eru í gildi. En við munum opna á þær um leið og staðan á faraldrinum er betri. Félagsmiðstöðin heldur áfram sínu starfi og erum við að fylgja öllum viðmiðum og reglum í sóttvörnum til að vernda börnin og starfsfólkið. Ef þið hafið einhverjar fyrirspurnir eru um Spennistöðina eða félagsmiðstöðvastarfið ekki hika við að senda Evu Halldóru póst á póstfangið [email protected] eða hringja í síma 848-1794.
//
The rental of Spennistöðin is closed temporarily while stricter infection control rules are in force. But we will open up as soon as the situation of the epidemic is better. The youth club continues its work and we are following all standards and rules in disease control to protect the children and staff. If you have any questions about Spennistöðin or the youth club, do not hesitate to send Eva Halldóra an email [email protected] or call the number 848-1794

05/03/2021

Búið er að opna fyrir útleigu á Spennistöðinni :D Vinsamlegast sendið fyrirspurnir og útleiguóskir á póstfangið [email protected].

//

Now you can rent out Spennistöðin :D Please send all requests and questions to the email [email protected].

27/08/2020

Tímabundið hefur verið lokað fyrir útleigu á Spennistöðinni á meðan hertar sóttvarnareglur eru í gildi. En við munum opna á þær um leið og staðan á faraldrinum er betri. Félagsmiðstöðin heldur áfram sínu starfi og erum við að fylgja öllum viðmiðum og reglum í sóttvörnum til að vernda börnin og starfsfólkið. Ef þið hafið einhverjar fyrirspurnir eru um Spennistöðina eða félagsmiðstöðvastarfið ekki hika við að senda Evu Halldóru póst á póstfangið [email protected] eða hringja í síma 848-1794.

//

The rental of Spennistöðin is closed temporarily while stricter infection control rules are in force. But we will open up as soon as the situation of the epidemic is better. The youth club continues its work and we are following all standards and rules in disease control to protect the children and staff. If you have any questions about Spennistöðin or the youth club, do not hesitate to send Eva Halldóra an email [email protected] or call the number 848-1794

Við erum svo spennt!! Við erum byrjuð að taka á móti bókunum. Endilega sendið póst á eva.halldora.gudmundsdottir@reykjav...
04/03/2019

Við erum svo spennt!! Við erum byrjuð að taka á móti bókunum. Endilega sendið póst á [email protected]. :D

Nú fer að líða að opnun Spennistöðvarinnar og langar okkur í 100og1 að bjóða ykkur, foreldrum, forsjáraðilum, unglingum, börnum og systkinum, á opnunarhátíð miðvikudaginn 6. mars frá 17:00-19:00. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur og sýna ykkur spánnýja, endurbætta og gl...

16/08/2018

Allar bókanir og fyrrispurnir um Spennistöðina fara i gegnum [email protected]

22/02/2018

Fyrir bókanir eða aðrar upplýsingar um Spennistöðina vinsamlegast hafið samband á email: [email protected]

AÐALFUNDUR ÍBÚASAMTAKA MIÐBORGAR í SpennistöðinniHeitt á könnunni og léttar veitingar - lítið við !
24/09/2017

AÐALFUNDUR ÍBÚASAMTAKA MIÐBORGAR í Spennistöðinni
Heitt á könnunni og léttar veitingar - lítið við !

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar verður haldinn í Spennistöðinni, félags og menningarmiðstöð miðborgarinnar þriðjudaginn 26. september kl. 20.
Venjuleg aðalfundarstörf.

Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum mun Elísabet Ingadóttir verkefnisstjóri kynna Miðborgarstjórn og Benóný Ægisson formaður ÍMR kynnir UmHverfisgöngur og Heila brú, helstu verkefni Íbúasamtakanna í vetur

Íbúar miðborgarinnar eru hvattir til að koma og hafa áhrif á hverfið sitt

Stjórnin

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar í Spennistöðinni næsta þriðjudag 26. apríl kl. 20.00 Allir áhugasamir íbúar hvattir til...
19/09/2017

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar í Spennistöðinni
næsta þriðjudag 26. apríl kl. 20.00

Allir áhugasamir íbúar hvattir til að mæta.

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar verður haldinn í Spennistöðinni, félags og menningarmiðstöð miðborgarinnar þriðjudaginn 26. september kl. 20.
Venjuleg aðalfundarstörf.

Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum mun Elísabet Ingadóttir verkefnisstjóri kynna Miðborgarstjórn og Benóný Ægisson formaður ÍMR kynnir UmHverfisgöngur og Heila brú, helstu verkefni Íbúasamtakanna í vetur

Íbúar miðborgarinnar eru hvattir til að koma og hafa áhrif á hverfið sitt

Stjórnin

Frá danssmiðju íbúasamtakanna um helgina.
19/09/2017

Frá danssmiðju íbúasamtakanna um helgina.

Um helgina stóðu Íbúasamtökin og Kramhúsið fyrir danssmiðju í Spennistöðinni. Hér sést Margrét Erla Maack leiða unga og aldna í Bollívúdddansi

Þessi hafmeyjuhringur fannst á borði inn í sal eftir danssmiðjuna í dag.
16/09/2017

Þessi hafmeyjuhringur fannst á borði inn í sal eftir danssmiðjuna í dag.

Address

Barónsstígur 32
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Spennistöðin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Spennistöðin:

Share