Uppsveitir Árnessýslu

Uppsveitir Árnessýslu Tourist Destination in South Iceland

Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju!Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um jarðræktarstyrki...
07/08/2026

Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju!

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garðávöxtum til manneldis. Sótt er um á Afurð. Vakin er athygli á að hægt er að skila skýrslu án þess að endanleg uppskera ársins liggi fyrir.

Frekari upplýsingar má finna á bak við eftirfarandi slóð

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garðávöxtum til manneldis. Sótt er um á Afurð.

Það styttist í sólmyrkvann! Ert þú tilbúin(n) með upplýsingar fyrir þína gesti? Mæli með að allir sem tengjast ferðaþjón...
06/08/2026

Það styttist í sólmyrkvann!
Ert þú tilbúin(n) með upplýsingar fyrir þína gesti?
Mæli með að allir sem tengjast ferðaþjónustu mæti á fjarfund Almannavarna klukkan 11:00 þann 7. ágúst. Smelltu hér fyrir neðan og vertu með puttann á púlsinum!

Fundurinn fyrir ferðaþjónustuaðila vegna fyrirhugaðra ráðstafanir vegna almyrkvans.

Ert þú með ferðaþjónustufyrirtæki?Þá er þetta fundur sem þú ættir að mæta á í streymi👇
08/07/2026

Ert þú með ferðaþjónustufyrirtæki?
Þá er þetta fundur sem þú ættir að mæta á í streymi👇

Fimmtudaginn 9. júlí kl. 13:00 býður Íslandsstofa til netfundar þar sem kynnt verða fyrstu skref verkefnisins Ferðaþjónusta til framtíðar ásamt tveimur nýjum markaðsskýrslum um Bandaríkin og Bretland, stærstu markaði íslenskrar ferðaþjónustu. Á fundinum verður farið yfir st...

Á aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, sem fram fór í Þorlákshöfn í gær, var úthlutað úr Hörpusjóðnum í fyrsta s...
26/06/2026

Á aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, sem fram fór í Þorlákshöfn í gær, var úthlutað úr Hörpusjóðnum í fyrsta skipti. Alls bárust 13 metnaðarfullar umsóknir í sjóðinn að þessu sinni. Það var samfélagsverkefnið „Voices of Vík: Language, Culture & Community“, undir forystu Ann Irene Peters, sem hlaut styrk ársins 2026 sem nemur 1.000.000 króna.

Hörpusjóðurinn er nýr samfélagssjóður sem SASS setti á laggirnar til minningar um Hörpu Elínu Haraldsdóttur, sem var ötull talsmaður þess að taka vel á móti nýjum íbúum og draga fram það sem sameinar fólk á hverjum stað.

Markmið sjóðsins er að styðja við félagslega og menningarlega aðlögun nýrra íbúa á Suðurlandi, óháð þjóðerni, tungumáli eða bakgrunni. Sjóðnum er ætlað að auka samheldni og gagnkvæman skilning milli nýrra og rótgróinna íbúa og stuðla þannig að lifandi og öruggum samfélögum í landshlutanum. Verkefnið „Voices of Vík“ þótti fanga þennan kjarna og þær áherslur sem sjóðnum er ætlað að styðja við.

Frekari upplýsingar má finn hér fyrir neðan 👇

Á aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, sem fram fór í Þorlákshöfn í gær, var úthlutað úr Hörpusjóðnum í fyrsta skipti. Alls bárust 13 metnaðarfullar umsóknir í sjóðinn að þessu sinni. Það var samfélagsverkefnið „Voices of Vík: Language, Culture & Community“,...

Nú er undirbúningur hafinn fyrir hátíðina Grímsævintýrin á Borg sem haldin verður laugardaginn 22. ágúst 2026 kl. 13:00–...
24/06/2026

Nú er undirbúningur hafinn fyrir hátíðina Grímsævintýrin á Borg sem haldin verður laugardaginn 22. ágúst 2026 kl. 13:00–16:00.

Markaðurinn verður á sínum stað og hefur verið opnað fyrir bókanir á borðunum. sjá frekari upplýsingar á auglýsingu 👇

Borðapantanir og frekari upplýsingar má senda á póstfang Grímsævintýra: [email protected]
Einnig er hægt að hafa samband símleiðis: 695-8390/899-6927

🎯 Örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila 🎯Öryggi er ein af mikilvægustu undirstöðum íslenskrar ferðaþjónustu. Á hverjum deg...
24/06/2026

🎯 Örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila 🎯

Öryggi er ein af mikilvægustu undirstöðum íslenskrar ferðaþjónustu. Á hverjum degi verða atvik og nærslys sem geta veitt dýrmætan lærdóm og skapað tækifæri til umbóta áður en alvarleg slys eiga sér stað.

Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur Atvikavaktina og taka þátt í þeirri vegferð að gera íslenska ferðaþjónustu enn öruggari fyrir gesti og starfsfólk.

Öryggi er ein af mikilvægustu undirstöðum íslenskrar ferðaþjónustu. Á hverjum degi verða atvik og nærslys sem geta veitt dýrmætan lærdóm og skapað tækifæri

Núna er sko tími til að fagna!Afmælishátíð Hrunamannahrepps laugardaginn 13. júní 2026 og þér er boðið 🥳
11/06/2026

Núna er sko tími til að fagna!

Afmælishátíð Hrunamannahrepps laugardaginn 13. júní 2026 og þér er boðið 🥳

Árið 2026 er sérstakt afmælisár í Hrunamannahreppi en þá höldum við 1150 ára afmæli sveitarfélagsins hátíðlegt með dagskrá sem spannar allt árið. Aðal afmælishátíðin verður haldin verður laugardaginn 20. júní 2026 á Flúðum og sú helgi er afmælishelgi í sveitarféla...

----- english below -----🚕  Íbúar, gestir og ferðaþjónustuaðilar kalla á nýjar samgöngulausnir í Uppsveitunum  🚕 Í nýlið...
01/06/2026

----- english below -----

🚕 Íbúar, gestir og ferðaþjónustuaðilar kalla á nýjar samgöngulausnir í Uppsveitunum 🚕

Í nýliðnum mánuði var haldinn opinn kynningarfundur um mögulega opnun HOPP leigubílaþjónustu í Uppsveitum Árnessýslu. Fundurinn var afar vel sóttur og sköpuðust líflegar og jákvæðar umræður um framtíð samgangna á svæðinu.

Á fundinum kynntu Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri HOPP, og Eyþór Máni, sérfræðingur á sviði leigubíla hjá fyrirtækinu, hvernig HOPP getur stutt við samfélagið, ferðaþjónustuna og aukið aðgengi að öruggum og nútímalegum samgöngum í Uppsveitunum.

Undanfarin ár hefur eftirspurn eftir leigubílaþjónustu á svæðinu aukist verulega samhliða ört vaxandi ferðaþjónustu og fjölbreyttari afþreyingu. Fjöldi ferðamanna dvelur í sumarhúsum, gististöðum og hótelum víðs vegar um Uppsveitirnar og kalla bæði gestir og heimamenn eftir betri samgöngumöguleikum.

„Við finnum greinilega fyrir aukinni eftirspurn eftir leigubílum, sérstaklega í tengslum við viðburði og heimsóknir í Vínstofu Friðheima. Þar sem við erum með vínveitingaleyfi er mikilvægt að þeir gestir sem velja sér að fá sér áfengan drykk hafi örugga leið til og frá staðnum,“ segir Knútur Rafn Ármann, eigandi og framkvæmdastjóri Friðheima.

Svipaða sögu er að segja frá Laugarási þar sem nýtt og glæsilegt lón ásamt háklassa veitingastað hefur vakið mikla athygli bæði innlendra og erlendra gesta.

„Við fáum reglulega fyrirspurnir frá viðskiptavinum um leigubíla til og frá gististöðum í Uppsveitunum en þjónustan hefur einfaldlega ekki verið til staðar hingað til. Gestir okkar dvelja víða á svæðinu, meðal annars í Reykholti, á Flúðum, og við Geysi, og þörfin fyrir fjölbreyttari samgöngur er orðin mjög skýr,“ segir Bryndís Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Laugarás Lagoon.

Með tilkomu HOPP skapast spennandi atvinnu- og rekstrartækifæri fyrir einstaklinga á svæðinu sem vilja taka þátt í að byggja upp nýja og mikilvæga þjónustu í Uppsveitunum. Mikilvægt er að þrír eða fleiri leigubílstjórar séu komnir í ferli fyrir réttindin svo við getum farið af stað með markaðsherferð og tilkynnt þann dag sem þjónustuna mun fara í gang.

Nú gefst spennandi tækifæri fyrir heimafólk til að taka þátt í uppbyggingu nýrrar samgönguþjónustu í Uppsveitum Árnessýslu. Þeir sem vilja skoða möguleikana á að aka fyrir HOPP og skapa sér auknar tekjur geta sent fyrirspurn á eftirfarandi aðila

🚀[email protected] sérfræðingur Hopp
🚀[email protected] byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu

----- english -----

🚕 Residents, visitors and tourism operators call for new transport solutions in Uppsveitir 🚕

A public information meeting was held recently about the possible opening of a HOPP taxi service in Uppsveitin, Árnessýsla County. The meeting was well attended and generated lively and positive discussions about the future of transport in the area.

At the meeting, Kristín Hrefna Halldórsdóttir, HOPP's Managing Director, and Eyþór Máni, a taxi expert at the company, presented how HOPP can support the community, the tourism industry and increase access to safe and modern transport in Uppsveitir.

In recent years, demand for taxi services in the area has increased significantly in parallel with the rapidly growing tourism industry and a wider range of entertainment. Many tourists stay in holiday homes, guest houses and hotels across Uppsveitir, and both visitors and locals are calling for better transport options.

“We are clearly experiencing an increased demand for taxis, especially in connection with events and visits to Vínstofa Friðheima. Since we have a liquor license, it is important that guests who choose to have an alcoholic beverage have a safe route to and from the venue,” says Knútur Rafn Ármann, owner and managing director of Friðheimar.

A similar story can be told from Laugarás, where a new and impressive lagoon along with a high-class restaurant has attracted a lot of attention from both domestic and foreign guests.

“We regularly receive inquiries from customers about taxis to and from accommodations in Uppsveitir, but the service has simply not been an option. Our guests stay in many places in the area, including Reykholt, Flúðir, and Geysir, and the need for more diverse transportation has become very clear,” says Bryndís Björnsdóttir, managing director of Laugarás Lagoon.

The introduction of HOPP creates exciting employment and business opportunities for individuals in the area who want to participate in building a new and important service in Uppsveitir. It is important that three or more taxi drivers are in the process of obtaining the license so that we can start a marketing campaign and announce on which date the service will start.

Now there is an exciting opportunity for local people to participate in the development of a new transportation service in Uppsveitir Árnessýsla.

Those who want to explore the possibilities of driving for HOPP and creating additional income can send an inquiry to:
🚀 [email protected] a taxi expert at Hopp
🚀 [email protected] the Regional Development Cunsultant of Uppsveitir Árnessýsla

Address

South
Selfoss
801

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Uppsveitir Árnessýslu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Uppsveitir Árnessýslu:

Shortcuts

Share