10/08/2026
Um klukkan 21:00 í gærkvöldi barst Björgunarfélagi Árborgar ásamt björgunarsveitum í uppsveitum Árnessýslu útkall um slasaðan einstakling við Háafoss. Viðkomandi hafi verið einn á ferðalagi, slasaðist á fæti og var ófær um gang. Ekkert símasamband var innst í gilinu þar sem maðurinn lá og höfðu ferðamenn gengið fram á hann og kallað eftir aðstoð.
BFÁ sendi í verkefnið sjö björgunarmenn á tveimur bílum en þegar fyrstu bjargir mæta á vettvang var ljóst að mjög krefjandi böruburður væri framundan. Þyrla Landhelgisgæslunnar var því kölluð út en hún þurfti frá að hverfa þar sem hún g*t ekki athafnað sig á svæðinu.
Laust fyrir klukkan 02:00 var sjúklingur kominn um borð í sjúkrabíl og viðbragðsaðilar halda heim á leið.