12/06/2026
Norrænu sendiráðin gagnvart Sviss héldu í sameiningu vel sótta málstofu í Bern í vikunni sem miðaði að því að efla samræður milli svissneskra og norrænna hagsmunaaðila um varnarmál, viðbúnað og áfallaþol í sífellt meira krefjandi öryggisumhverfi. Þetta er í þriðja sinn sem slík málstofa er haldin.
Markus Mäder, ráðuneytisstjóri svissneska öryggismálaráðuneytisins (SEPOS) hélt opnunarávarp um öryggi og áfallaþol Sviss og í kjölfarið voru kynningar frá öllum Norðurlöndunum og pallborðsumræður.
Við þökkum fyrir þessar mikilvægu umræður sem undirstrika að aukið samstarf er lykillinn að því að mæta síbreytilegu öryggisumhverfi.