19/08/2026
Í dag er alþjóðlegur dagur mannúðarstarfsfólks.
Fastanefnd Íslands í Genf sinnir meðal annars samstarfi við lykil stofnanir Íslands á sviði mannúðaraðstoðar. Nánari upplýsingar hér fyrir neðan:
Á alþjóðlegum degi mannúðarstarfsfólks er vert að minnast þeirra sem hafa látið lífið við að veita fólki í neyð lífsbjargandi aðstoð.
Við verðum einnig að vernda þau sem veita aðstoðina.
Virðing fyrir alþjóðlegum mannúðar- og mannréttindalögum er ekki valkvæð.
Sjá upplýsingasíðu Sameinuðu þjóðanna: www.worldhumanitarianday.org
Kynntu þér mannúðaraðstoð Íslands á vefsíðu utanríkisráðuneytisins www.utn.is