Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madrid

Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madrid Información de contacto, mapa y direcciones, formulario de contacto, horario de apertura, servicios, puntuaciones, fotos, videos y anuncios de Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madrid, Consulado y embajada, Calle de Marqués de la Ensenada 2, Madrid.

Við vekjum athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu á eftirfarandi stöðum á Spáni næstu daga:📍 BarcelonaÞriðjudaginn 18. ...
17/08/2026

Við vekjum athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu á eftirfarandi stöðum á Spáni næstu daga:

📍 Barcelona
Þriðjudaginn 18. ágúst kl. 12:00–16:00
Staðsetning: Skrifstofa ræðismanns, Vía Augusta 42-44, 1°4a, 08006 Barcelona

📍 Gran Canaria
Miðvikudaginn 19. ágúst kl. 10:00–16:00
Staðsetning: Kropeck Abogados, Avenida de Tirajana 37, Edificio Mercurio Torre I (7. hæð C), 35100 Playa del Ingles

📍 Tenerife
Fimmtudaginn 20. ágúst kl. 10:00–16:00
Staðsetning: Andreas & Partners, Calle Roques del Salmor 1, 38679 Costa Adeje

📍 Madrid
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Vinsamlega bókið tíma hér: [email protected]/s/nJ7GzJRw_k212o5I9o3Tsw2?ismsaljsauthenabled" rel="ugc" target="_blank">https://bookings.cloud.microsoft/book/[email protected]/s/nJ7GzJRw_k212o5I9o3Tsw2?ismsaljsauthenabled

Athugið að kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað.

Frekari upplýsingar og hlekkur eru í fyrstu athugasemd.

Sendiráðið minnir á kjörfundi á Orihuela Costa 9. - 10. ágúst nk. og Málaga 11. ágúst. Orihuela Costa 9. og 10. ágúst kl...
07/08/2026

Sendiráðið minnir á kjörfundi á Orihuela Costa 9. - 10. ágúst nk. og Málaga 11. ágúst.

Orihuela Costa 9. og 10. ágúst kl. 10:00–16:30 á Hotel Golf Campoamor

Málaga 11. ágúst kl. 10:00–16:00 á AC Hotel Málaga Palacio

Frekari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu, opnunartíma og fyrirkomulag má finna í fyrstu athugasemd.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst! 🇮🇸 🇪🇦Íslenskir ríkisborgarar með kosningarétt á Spá...
28/07/2026

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst! 🇮🇸 🇪🇦

Íslenskir ríkisborgarar með kosningarétt á Spáni geta kosið utan kjörfundar til 28. ágúst nk.

🇮🇸 Í sendiráði Íslands í Madríd er hægt að kjósa alla virka daga frá kl. 10:00–15:00. Vinsamlega bókið hér:
https://bit.ly/4x1fmHl

📍 Einnig verður sendiráðið og ræðismenn með opið á eftirfarandi stöðum:

• Barcelona – 13. og 18. ágúst kl. 12:00-16:00 á skrifstofu ræðismanns.
• Málaga – 11. ágúst kl. 10:00–16:00 á AC Hotel Málaga Palacio.
• Orihuela Costa – 9. og 10. ágúst kl. 10:00–16:30 á Hotel Golf Campoamor.
• Gran Canaria – 19. ágúst kl. 10:00–16:00 á skrifstofu KROPECK ABOGADOS, Playa del Inglés.
• Tenerife – 20. ágúst kl. 10:00–16:00 á skrifstofu Andreas & Partners, Costa Adeje.

📍 Bilbao, Palma de Mallorca, Vigo og Andorra la Vella
Hægt verður að kjósa hjá ræðismönnum skv. samkomulagi. Vinsamlega hafið samband.

📍 Buenos Aires, Santiago, Bogotá og Caracas
Hægt verður að kjósa hjá ræðismönnum skv. samkomulagi. Vinsamlega hafið samband.

🪪Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá.

Athugið að kjósendur bera sjálfir ábyrgð á að koma atkvæði sínu til skila.

ℹ️ Nánari upplýsingar um kosningarnar, tímasetningar og staðsetningar má finna á hlekk í athugasemd.

25/07/2026

Vegna skógarelda á svæðum vestan við Madríd og í Ávila-héraði á Spáni viljum við hvetja íslenska ríkisborgara á svæðinu til að fylgjast vel með upplýsingum og fyrirmælum frá spænskum stjórnvöldum og neyðaryfirvöldum.

Ef aðstoðar er þörf geta íslenskir ríkisborgarar haft samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma +3545450112.

Við minnum á mikilvægi þess að fylgja alltaf fyrirmælum staðaryfirvalda, sérstaklega ef gefin eru út fyrirmæli um brottflutning eða takmarkaðan aðgang að svæðum.

Sendiráðið vekur athygli á veðurviðvörunum á Alicante svæðinu í kvöld og á fram á laugardag. Fólk er hvatt til að fylgja...
23/07/2026

Sendiráðið vekur athygli á veðurviðvörunum á Alicante svæðinu í kvöld og á fram á laugardag. Fólk er hvatt til að fylgjast með tilkynningum og fyrirmælum yfirvalda á staðnum.

See a list of all of the Official Weather Advisories, Warnings, and Severe Weather Alerts for Alicante, Valencia, Spain.

Sendiráðið vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á Íslandi 29. ...
23/07/2026

Sendiráðið vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á Íslandi 29. ágúst nk.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst hjá sendiráðinu og kjörræðismönnum Íslands mánudaginn 27. júlí og lýkur föstudaginn 28. ágúst.

Í sendiráðinu í Madrid verður hægt að greiða atkvæði á milli kl. 10:00 og 15:00 alla virka daga.

Upplýsingar um opnunartíma víðar á Spáni og hjá kjörræðismönnum, má finna á hlekk í fyrstu athugasemd.

Hægt verður að kjósa í sendiráði Íslands í Madríd og hjá ræðismönnum víðs vegar um Spán.

Hvar og hvernig get ég kosið erlendis? 🗳Kosning utan kjörfundar erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður ...
23/07/2026

Hvar og hvernig get ég kosið erlendis? 🗳

Kosning utan kjörfundar erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB sem fram fer 29. ágúst 2026, hefst 27. júlí nk.

Við minnum þau sem verða erlendis á kjördag, en vilja nýta atkvæðisréttinn, að skipuleggja sig fyrirfram; kjósa á Íslandi áður en farið er af landi brott eða kynna sér upplýsingar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu í sendiráðum Íslands og hjá kjörræðismönnum erlendis.

Sjá í athugasemd lista yfir opnunartíma og fyrirkomulag kosninga hjá einstökum sendiskrifstofum og hjá kjörræðismönnum

Kosning utan kjörfundar erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB sem fram fer 29. ágúst 2026, hefst 27. júlí nk.

🇪🇸 La ministra islandesa de Exteriores, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir), y su homólogo e...
24/06/2026

🇪🇸 La ministra islandesa de Exteriores, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir), y su homólogo español, José Manuel Albares (), formalizaron ayer en Reikiavik la firma de cuatro acuerdos de cooperación (sobre consultas políticas, formación diplomática, igualdad y cooperación científica) con el objetivo de fortalecer las relaciones entre ambos países.✨

👉Primera vez que un ministro de Exteriores español realiza una visita oficial a Islandia.

🤝El viaje, que incluyó reuniones con Gunnarsdóttir, la primera ministra, Kristrún Frostadóttir (Kristrún Frostadóttir) y la Comisión de AAEE del Althingi (Parlamento), y visitas a la base de Keflavík y al Parque Nacional de Thingvellir, es resultado del impulso que ha supuesto la apertura de la Embajada de Islandia en Madrid.

🇮🇸 🇪🇸 España e Islandia se alinean en ámbitos como la defensa del multilateralismo y el derecho internacional, la seguridad en el Ártico, o las políticas de género e igualdad LGBTI+.

🗣️Albares resaltó en un coloquio junto a su homóloga su compromiso de abrir una embajada de España en Reikiavik próximamente.

📷 Ministerio de Asuntos Exteriores, UE y Cooperación

🇮🇸 Utanríkisráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) tók á móti utanríkisráðherra Spánar, José Manuel Albares () í gær. Í heimsókninni voru fjórir samstarfssamningar (um pólitískt samráð, þjálfun diplómata, samstarf um jafnréttismál og vísindasamstarf) undirritaðir í því skyni að efla samskipti ríkjanna.✨

👉 Þetta er í fyrsta skipti sem spænskur utanríkisráðherra kemur í opinbera heimsókn til Íslands.

🤝 Í ferðinni heimsótti ráðherrann varnarsvæðin í Keflavík, Alþingi og Þingvelli auk þess að funda með forsætisráðherra Kristrúnu Frostadóttur (Kristrún Frostadóttir), utanríkisráðherra og utanríkismálanefnd Alþingis. Heimsóknin endurspeglar aukinn kraft í samskiptum ríkjanna eftir opnun sendiráðs Íslands í Madríd.

🇮🇸 🇪🇸 Ísland og Spánn eiga samleið á mörgum sviðum, þar á meðal í stuðningi við fjölþjóðasamstarf og alþjóðalög, öryggismál á norðurslóðum og jafnréttis- og mannréttindamálum þar á meðal um réttindi hinsegin fólks.

🗣️ Á fundi í Norræna húsinu ítrekaði Albares að Spánn muni opna fullburða sendiráð í Reykjavík á næstunni.

15/06/2026

Alþingi samþykkti nýverið þingsályktun um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Samkvæmt henni fer atkvæðagreiðslan fram laugardaginn 29. ágúst 2026, en hægt verður að kjósa utan kjörfundar frá 27. júlí 2026.

Hægt verður að kjósa í sendiráðinu og hjá ræðismönnum þar sem það á við. Nánari upplýsingar um staðsetningar, opnunartíma og fyrirkomulag verða kynntar þegar nær dregur.

Af þessu tilefni hefur utanríkisráðuneytið opnað sérstaka upplýsingasíðu á íslensku og ensku sem verður uppfærð reglulega eftir því sem nýjar upplýsingar berast. Sendiráðið mun sömuleiðis veita frekari upplýsingar þegar þær liggja fyrir, en í millitíðinni hvetjum við ykkur öll til að skoða upplýsingarsíðurnar, sem eru í athugasemdum hér að neðan.

🇪🇸 "La desinformación es uno de los grandes retos y desde Occidente no sabemos todavía cómo hacerle frente", aseguró el ...
11/06/2026

🇪🇸 "La desinformación es uno de los grandes retos y desde Occidente no sabemos todavía cómo hacerle frente", aseguró el martes la ex ministra islandesa de Asuntos Exteriores, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, en el seminario "Dos mares, una crisis de seguridad. Los retos de Europa en el Báltico y el Mediterráneo", celebrado en CaixaForum Madrid. 🗣️✨

Islandia asumirá la presidencia del Consejo de los Estados del Mar Báltico (CBSS), sustituyendo a Polonia, el 1 de julio, y, por esa razón, las embajadas de ambos países en Madrid, junto con la de Estonia, organizaron este encuentro, centrado en impulsar un debate en profundidad sobre las amenazas para la seguridad europea. 🇮🇸

El embajador de Islandia, Kristján Andri Stefánsson, fue el encargado de cerrar el evento tras el segundo panel, en el que, aparte de Gylfadóttir, participó Marcin Bosacki, secretario de Estado de Asuntos Exteriores de Polonia, y Charles Powell, director del Real Instituto Elcano. ✨

Agradecemos el impulso de y su embajadora, Monika Krepkowska, en la organización.👏

🇮🇸 „Upplýsingaóreiða er ein af helstu áskorunum samtímans og Vesturlönd hafa enn ekki fundið leiðir til að bregðast við henni,“ sagði Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, á málþingi sem fram fór í í Madríd ásamt Marcin Bosacki, varautanríkisráðherra Póllands, undir yfirskriftinni "Tvö höf, ein öryggisógn: Áskoranir Evrópu í Eystrasalti og Miðjarðarhafi". Málþinginu var stýrt af Charles Powell, forstöðumanni Real Instituto Elcano hugveitunnar. 🗣️

Ísland tekur við formennsku í Eystrasaltsráðinu af Póllandi 1. júlí nk. Af því tilefni stóðu sendiráð Íslands, Póllands og Eistlands fyrir viðburðinum í því skyni að efna til umræðu um helstu öryggisógnir í Evrópu frá sjónarhorni ríkja bæði í Norður- og Suður-Evrópu. Umræðan fór fram á tveimur pallborðum með þátttöku sérfræðinga og hátt settra þátttakenda frá Íslandi, Póllandi, Eistlandi, Spáni og Svíþjóð. 🇮🇸

Kristján Andri Stefánsson sendiherra lauk viðburðinum með ávarpi um áherslur Íslands á formennskuárinu. ✨

Við færum sendiherra Póllands, Moniku Krzepkowska, og sendiráði Póllands () alúðarþakkir fyrir samstarfið um undirbúning og framkvæmd

Dirección

Calle De Marqués De La Ensenada 2
Madrid
28004

Notificaciones

Sé el primero en enterarse y déjanos enviarle un correo electrónico cuando Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madrid publique noticias y promociones. Su dirección de correo electrónico no se utilizará para ningún otro fin, y puede darse de baja en cualquier momento.

Atajos

Compartir