Björgunarfélag Ísafjarðar

Björgunarfélag Ísafjarðar Björgunar og slysavarnamál
Félagið er skráð í almannaheillaskrá
Kt 441198-2059
banki 0154-26-021043

Síða Björgunarfélags Ísafjarðar

Félagið er skráð í Almannaheillaskrá Ríkisskattstjóra. Bankaupplýsingar
Kennitala 441198-2059
banki 0154-26-021043

Allar myndir eru eign félagsins, heimilt er að deila færslum en óheimilt er að vista myndir og birta þær svo, nema með sérstöku leyfi

11/08/2026
31/07/2026
05/06/2026

Á sjómannadag þann 7.júní mun björgunarskipið Guðmundur í Tungu heimsækja Suðureyrarhöfn og er áætlað að skipið leggist að bryggju um kl 16.
Öll eru velkomin um borð að skoða!

Skipið mun einnig taka þátt í sjómannadagssiglingunni síðar sama dag ⚓️

🚨Ef einhver vill hjálpa viðbragðsaðilum að gera æfinguna sem raunverulegasta þá vantar enn leikara 👇
29/05/2026

🚨Ef einhver vill hjálpa viðbragðsaðilum að gera æfinguna sem raunverulegasta þá vantar enn leikara 👇

🚨Það vantar leikara á laugardaginn 🚨Þann 30 maí nk. mun ISAVIA standa fyrir reglulegri æfingu fyrir viðbragðsaðila ef ti...
26/05/2026

🚨Það vantar leikara á laugardaginn 🚨

Þann 30 maí nk. mun ISAVIA standa fyrir reglulegri æfingu fyrir viðbragðsaðila ef til hópslyss kæmi á Ísafjarðarflugvelli.

Það er nauðsynlegt í æfingum sem þessum að hafa einstaklinga sem leika slasaða þannig að æfingin geti verið sem raunverulegust fyrir viðbragðsaðila.

Hér auglýsir ISAVIA eftir leikurum, sjá viðhengið.

Um helgina hafa félagsmenn okkar annast verkefni fyrir HG og skrúbbað og bónað skrokk Júlíusar Geirmundssonar hátt og lá...
10/05/2026

Um helgina hafa félagsmenn okkar annast verkefni fyrir HG og skrúbbað og bónað skrokk Júlíusar Geirmundssonar hátt og lágt, skipið er nú eins og nýtt og fer í sparibúningnum í næstu veiðiferð 💪

Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard bauð gestum og gangandi að skoða varðskipið Freyju í Ísafjarðarhöfn í dag ...
09/05/2026

Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard bauð gestum og gangandi að skoða varðskipið Freyju í Ísafjarðarhöfn í dag vegna 100 ára afmælis, af því tilefni fórum við í heimsókn og afhentum við Einari Valssyni skipherra smá glaðning.
Samstarf okkar við LHG er farsælt og dýrmætt en í fjölmörgum björgunaraðgerðum vinnum við í umboði þeirra og með þeim.
Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna á Ísafjörð.

Í gær var haldinn aðalfundur hjá okkur þar sem venjuleg aðalfundarstörf fóru fram og farið yfir árið 2025 í máli og mynd...
30/04/2026

Í gær var haldinn aðalfundur hjá okkur þar sem venjuleg aðalfundarstörf fóru fram og farið yfir árið 2025 í máli og myndum.
Öflugt fólk stendur að rekstri félagsins og félagið verður ekki sterkara en fólkið sem því tilheyrir.
Vikulega taka á bilinu 40-60 manns þátt í okkar starfi sem er rekstur björgunarsveitar og unglingadeildar sem hefur verið starfandi frá 1944.

Að loknum aðalfundi komu frambjóðendur Viðreisnar í sveitarstjórnarkostningum í heimsókn og fengu smá smjörþef af því sem brennur á okkar fólki og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna.

Hampiðjan styrkir Guðmund í Tungu með veglegri gjöf.Umfjöllun Fiskifrétta er hér í athugasemd 👇
16/04/2026

Hampiðjan styrkir Guðmund í Tungu með veglegri gjöf.

Umfjöllun Fiskifrétta er hér í athugasemd 👇

Aðalfundur Björgunarfélags Ísafjarðar fer fram:📍 Guðmundarbúð📅 29. apríl⏰ Kl. 20:00Dagskrá:• Skýrsla stjórnar og reiknin...
14/04/2026

Aðalfundur Björgunarfélags Ísafjarðar fer fram:
📍 Guðmundarbúð
📅 29. apríl
⏰ Kl. 20:00

Dagskrá:
• Skýrsla stjórnar og reikningar
• Lagabreytingar
• Kosningar
• Önnur mál

🗳️ Viltu taka stærra hlutverk?
Framboð til stjórnar skulu berast fyrir lok 22. apríl á:
📧 [email protected]
🤝 Saman stöndum við vaktina.

Sjáumst!

Address

Sindragata 6
Ísafjörður
400

Telephone

112

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Björgunarfélag Ísafjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Björgunarfélag Ísafjarðar:

Shortcuts

Share