Hornbjargsviti

Hornbjargsviti Hornbjargsviti
Ferðafélag Íslands Hornbjargsviti er rekinn af Ferðafélagi Íslands. Þar er staðarhaldari frá byrjun júlí og fram í miðjan ágúst.

Allar nánari upplýsingar á www.fi.is eða á skrifstofu.

17/07/2026
Það er bongó blíða
17/07/2026

Það er bongó blíða

Fallegur dagur í Látravík
26/06/2026

Fallegur dagur í Látravík

Gleðilega þjóðhátíð úr vitanum
17/06/2026

Gleðilega þjóðhátíð úr vitanum

Ferðafelag Íslands stóð fyrir vinnuferð í Hornbjargsvita núna þann 11 júní og öflugur hópur sjálfboðaliða  dvaldi í vita...
16/06/2026

Ferðafelag Íslands stóð fyrir vinnuferð í Hornbjargsvita núna þann 11 júní og öflugur hópur sjálfboðaliða dvaldi í vitanum við leik og störf í fjóra daga.
Það voru 21 sem mættu og þrifu húsið, það var skrapað og málað , steypt í gólf í kjallara, Hornbarinn var málaður en er enn lokaður og verður þannig áfram🤣.

Við settum upp rennuna og stigann, nýan vatnstank, komum vatnsaflsvirkjuninni í gang sem var smíðuð í Kristjaníu í Noregi árið 1915 og gengur enn með smá klappi á rétta staði.
Kláruðum handriðið við skálavarðarinnganginn. Fórum á sjó og náðum í fisk í 560 fiskibollur og steiktum bollur fram á kvöld.
Að meðaltali voru 6 manns að störfum í eldhúsinu í einu við matseld og bakstur, nýju skálaverðirnir komu bakaríinu í nýjar hæðir með þvílíkum súrdeigsbakstri að annað eins hefur ekki sést á Hornströndum.
Við ætluðum að henda nýju járni á vélarhúsþakið en það var svo illa farið af fúa að við þurftum að skipta því öllu út og karlarnir voru ekki lengi að því þrátt fyrir súld og þoku, þegar þeir fengu næði frá ráðskonunum sem bökuðu lummur og hjónabandssælur í massavís
Gluggakistur og rammar voru skafnir niður sumstaðar 10 lög af gamalli málningu og svo málað á ný . Rafvirkinn skipti út ljósum og lagði lagnir, píparinn setti upp geislatæki við vatnið og síubúnað. Grillið var tekið í gegn og grilluð á því fimm læri og síðast en ekki síst voru saumaðir nýir könnupokar í Framsóknarkönnuna og þvílíkt eðalkaffi þó að smá mistök hafi orðið í innkaupum og baunirnar komu ómalaðar.
Það var vinnulúið fólk en fullt af gleði sem sigldi svo heim á mánudeginum og sungu Kátir voru karlar á kútter Haraldi og eins og þeir náðu allir landi og hétu því að sjást að ári og endurtaka leikinn .
Takk allir fyrir ómetanlega hjálp
Kveðja Yfirvitavörðurinn.

Allt klárt og búið að opna 2026. Allir velkomnir
16/06/2026

Allt klárt og búið að opna 2026. Allir velkomnir

Viltu vera vinur Hornbjargsvita ? Og hjálpa okkur við uppbyggingu staðarins ?Það eina sem þarf til er að kaupa þetta fín...
03/01/2026

Viltu vera vinur Hornbjargsvita ? Og hjálpa okkur við uppbyggingu staðarins ?
Það eina sem þarf til er að kaupa þetta fína merki sem hægt er að pressa á jakkann sinn eða bakpokann.
Við verðum með það til sölu í Vitanum og á skrifstofu Ferðafélags Íslands í vetur á 10.000 kr og hægt að senda hvert á land sem er.
Kveðja Vitaverðirnir.

Address

Ísafjörður
401

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hornbjargsviti posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Hornbjargsviti:

Shortcuts

Share

Category