01/07/2026
"Í gær voru undirritaðir samningar um stækkun hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða um 60 hjúkrunarrými. Í dag eru 75 íbúar á Höfða, þar af tveir í skammtímarýmum. Hjúkrunarrýmum mun því fjölga um 80% þegar nýja heimilið verður tekið í notkun.
Akraneskaupstaður leggur til lóðina og auglýst verður eftir aðila til að hanna og byggja nýja heimilið. Ríkið leigir húsið síðan með leigusamningi til 20-30 ára. Gert er ráð fyrir að verklegar framkvæmdir við heimilið hefjist á næsta ári, en að þeim loknum verða alls 135 íbúar á Höfða."
Við óskum íbúum til hamingju með þennan mikilvæga áfanga og munu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akranesi vinna hratt og örugglega að næstu skrefum í verkefninu!🙏
„Akraneskaupstaðar fagnar því að þessi mikilvægi áfangi sé í höfn, enda þörfin brýn og biðlistinn langur,“ segir Steinar Adolfsson starfandi bæjarstjóri á