Náttúrufræðistofnun

Náttúrufræðistofnun Náttúrufræðistofnun er ríkisstofnun og heyrir til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Varð til 1.júlí 2024 við sameiningu NÍ, LMÍ og RAMÝ

Starfsstöðvarnar Náttúrufræðistofnunar Íslands eru fimm. Höfuðstöðvar eru á Akranesi en þar að auki eru starfsstöðvar í Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, í Borgum á Akureyri, á Mývatni og á Breiðdalsvík. Starfssviði Náttúrufræðistofnunar Íslands má skipta í þrjá meginflokka:

• Að skrá, varðveita, flokka og kortleggja lífríki og jarðmyndanir landsins og skrá upplýsingar um þessa þætti í gagnagrunna

.
• Að vakta náttúru landsins, meta verndargildi náttúruminja og leiðbeina um hóflega nýtingu náttúruauðlinda
• Að afla, taka við og miðla upplýsingum um íslenska náttúru.

------------

Við fögnum allri umræðu á síðunni okkar en áskiljum okkur rétt til að fjarlægja efni sem er meiðandi eða óviðeigandi á annan hátt. Ummæli eða athugasemdir á síðu Náttúrufræðistofnunar Íslands sem falla ekki að skilyrðum Facebook (www.facebook.com/terms.php?ref=pf) eða fela í sér meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa eða hvatningu til refsiverðrar háttsemi verða fjarlægð af síðunni. Hver sá sem skrifar ummæli eða athugasemd á síðu stofnunarinnar gerir það á eigin ábyrgð. Myndir sem hér er að finna er ekki heimilt að birta í fjölmiðlum eða með öðrum sambærilegum hætti eða sambærilegum miðlum nema með leyfi Náttúrufræðistofnunar Íslands. Vinsamlegast athugið að starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands fylgist ekki með síðunni eða innleggjum sem sett eru á hana allan sólarhringinn. Svör við spurningum eða ábendingum kalla oftar en ekki á nánari skoðun. Því er ekki unnt að tryggja að spurningum á síðunni verði svarað strax.

Starfsfólk Náttúrufræðistofnunar hefur unnið að margvíslegum rannsóknum í sumar, meðal annars leitað að uppruna elsta ei...
20/08/2026

Starfsfólk Náttúrufræðistofnunar hefur unnið að margvíslegum rannsóknum í sumar, meðal annars leitað að uppruna elsta einis Íslands.

Starfsfólk Náttúrufræðistofnunar vann í sumar að rannsóknum á eini víðs vegar um landið. Verkefnið nefnist Elsti einir Íslands – uppruni, stofnbygging og vernd og er styrkt af rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar.

Niðurstöður fyrstu rannsóknar sinnar tegundar á Íslandi gefa ítarlega mynd af sveppagróum sem berast með lofti á landinu...
13/08/2026

Niðurstöður fyrstu rannsóknar sinnar tegundar á Íslandi gefa ítarlega mynd af sveppagróum sem berast með lofti á landinu.

Niðurstöður nýrrar rannsóknar gefa í fyrsta sinn ítarlega mynd af sveppagróum sem berast með lofti á Íslandi. Loft var vaktað á Akureyri frá apríl til september 2024 og fundust í því 35 mismunandi gerðir sveppagróa.

Ætlar þú að fylgjast með sólmyrkvanum? Taktu eftir því hvort breytingar verða á lífríkinu þegar myrkrið skellur á í þess...
11/08/2026

Ætlar þú að fylgjast með sólmyrkvanum? Taktu eftir því hvort breytingar verða á lífríkinu þegar myrkrið skellur á í þessa stuttu stund. Hætta fuglarnir að syngja? Byrja þeir aftur að syngja þegar birtir og hljómar söngurinn eins og fyrir almyrkvann? Rannsóknir benda til þess að breytingar verði á hegðun fugla við sólmyrkva, sjá t.d. https://www.nature.com/articles/s41598-025-94901-6
Ljósmynd af skógarþresti, Björn G. Arnarsson

Náttúrufræðistofnun hefur verið samþykkt sem sendiherra Copernicus og er þar með fyrsta stofnunin á Íslandi sem hlýtur þ...
31/07/2026

Náttúrufræðistofnun hefur verið samþykkt sem sendiherra Copernicus og er þar með fyrsta stofnunin á Íslandi sem hlýtur þá viðurkenningu innan EU Space Networks. Sem sendiherra Copernicus mun Náttúrufræðistofnun kynna þau gögn og þá þjónustu sem í boði eru, aðstoða notendur við að finna viðeigandi upplýsingar og styðja stofnanir og fyrirtæki sem vilja nýta fjarkönnunargögn í starfsemi sinni.

Náttúrufræðistofnun hefur verið samþykkt sem sendiherra Copernicus og er þar með fyrsta stofnunin á Íslandi sem hlýtur þá viðurkenningu innan EU Space Networks.

🌿 Fyrsta sumarið í felti í verkefninu MýralífEftir mikinn undirbúning er vettvangsvinna hafin í Mýralífi (Peatland LIFEl...
24/07/2026

🌿 Fyrsta sumarið í felti í verkefninu Mýralíf

Eftir mikinn undirbúning er vettvangsvinna hafin í Mýralífi (Peatland LIFEline), umfangsmiklu samstarfsverkefni um endurheimt votlendis á Íslandi.

Í sumar safna sérfræðingar grunngögnum um ástand þeirra svæða sem fyrirhugað er að endurheimta á næstu árum. Náttúrufræðistofnun leiðir vöktunarhluta verkefnisins og annast meðal annars vöktun á plöntum, vistgerðum og fuglum.

Í frétt á vef Mýralífs er sagt frá fyrstu skrefunum í vettvangsvinnunni og því hvernig vöktunin mun nýtast til að meta áhrif endurheimtarinnar á komandi árum.

(Peatland LIFEline) er umfangsmikið verkefni sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi.

Ný rannsókn sem birt hefur verið í vísindaritinu Catena varpar nýju ljósi á uppruna og þróun Nautárdalsjökuls á Tröllask...
23/07/2026

Ný rannsókn sem birt hefur verið í vísindaritinu Catena varpar nýju ljósi á uppruna og þróun Nautárdalsjökuls á Tröllaskaga.

Meðal höfunda er Skafti Brynjólfsson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.

Ný rannsókn sem birt hefur verið í vísindaritinu Catena varpar nýju ljósi á uppruna og þróun Nautárdalsjökuls á Tröllaskaga.

22/07/2026

🌱 Myndasamkeppni Mýralífs – „Líf í mýri“

Lumar þú á ljósmynd, myndbandi eða hljóðupptöku sem fangar lífið í íslensku votlendi? Komdu við í mýri í sumar og athugaðu hvað þú finnur!

Mýralíf býður almenningi – áhugaljósmyndurum, náttúruunnendum og fagfólki – að taka þátt í myndasamkeppni til að vekja athygli á einstöku lífríki votlendis á Íslandi.

Þemað í ár: Líf í mýri

Þrír flokkar:

📷 Ljósmyndir
🎥 Myndbönd
🎧 Hljóð

Til að taka þátt, sendu efnið á [email protected] ásamt:

• nafni,
• titli verks,
• staðsetningu,
• og stuttri lýsingu á efninu.

📅 Skilafrestur er til 30. september 2026.

Í sumar birtist grein í tímaritinu Journal of Chemical Ecology sem fjallar um hvernig innrauð litrófsgreining (FTIR) get...
22/07/2026

Í sumar birtist grein í tímaritinu Journal of Chemical Ecology sem fjallar um hvernig innrauð litrófsgreining (FTIR) getur nýst til að greina hvaða plöntur og plöntuhluta rjúpur éta.

Ólafur K. Nielsen fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun er meðal höfunda greinarinnar.

Rannsókn sem birtist nýverið í tímaritinu Journal of Chemical Ecology sýnir að innrauð litrófsgreining (FTIR) getur nýst vel til að greina hvaða plöntur og plöntuhluta rjúpur éta.

Address

Smiðjuvöllum 28
Akranes
300

Opening Hours

Monday 10:00 - 14:00
Tuesday 10:00 - 14:00
Wednesday 10:00 - 14:00
Thursday 10:00 - 14:00
Friday 10:00 - 12:00

Telephone

+3545900500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Náttúrufræðistofnun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share