Opið er í kosningamiðstöð okkar að Stillholti sem hér segir:
mán - fös (26.-30. maí): opið frá kl. 14
Björt framtíð er vettvangur fólks sem vill gera gagn í stjórnmálum og taka þátt í stjórnmálum á uppbyggilegan hátt. Björt framtíð kennir sig við víðsýni, frjálslyndi og umhverfisvernd. Hún vill efla traust í samfélaginu og leggur nokkra áherslu á „consensus“ stjórnmál. Þau birtast m.a. í því að í
BF eru tveir formenn, sem kallast formaður og stjórnarformaður og í uppbyggingu flokksins að öðru leyti. Einfaldleiki, traust og ábyrgð hvers og eins eru höfð að leiðarljósi í starfi BF. Í BF eru ekki undirfélög eða landshlutafélög, heldur aðeins eitt félag á landsvísu með stórri stjórn. Tvær grundvallaryfirlýsingar mynda umgjörð starfsins, annars vegar Stjórnmálayfirlýsingin og hins vegar Ályktunin. Sú fyrrnefnda lýsir nálgun okkar á stjórnmál. Sú síðari lýsir framtíðarsýn okkar, að hvaða markmiðum við viljum stefna í þjóðfélagsmálum. Í henni er að finna ríkar áherslur á frálsræði, fjölbreytni, mannréttindi, velferðarmál og umhverfismál. BF horfir jákvæðum augum til ESB og nýrrar stjórnarskrár. Að öðru leyti fer málefnastarf BF fram á www.heimasidan.is, en þar getur hver og einn þátttakandi í BF lagt fram hugmyndir, sem geta orðið að tillögum, ef nógu margir mæla með því. Með svona einfaldri og lýðræðislegri umgjörð gerir BF tvennt: Sýnir traust í verki — sem er forsenda þess að koma á meira trausti — og sýnir líka frjálslynda nálgun á stjórnmál í verki. Það er grunnþema í frjálslyndisstefnu að margar skoðanir, frjáls skoðanaskipti — eða hið frjálsa markaðstorg skoðanna — sé ætíð til bóta. Þannig vettvang viljum við skapa. Gefandi, tilgangsríkan og þar með skemmtilegan. BF er lýðræðisafl sem vill breyta stjórnmálum á Íslandi þannig að þau einkennist af meiri yfirvegun, meiri trú á lýðræðislegum og upplýstum ákvarðanatökum og meiri áherslu á ábyrgð og skyldu hvers og eins til þessa að leggja fram hugmyndir og lausnir.