Þórhallur Jónsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, gefur kost á sér í 1. – 3. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í prófkjöri flokksins þann 26. mars 2022
Þórhallur er 55 ára kaupmaður en lærði rafeindavirkjun. Hann er fæddur í Hafnarfirði, uppalinn á Akureyri og erlendis. Hann er kvæntur Ingu Vestmann og saman eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. Saman reka þau l
jósmyndavöruverslunina Pedromyndir.
Þórhallur hefur tekið þátt í ýmsu félagsstarfi í gegnum tíðina. Hann var einn af stofnendum Áhugaljósmyndaklúbbs Akureyrar árið 1991 og gegndi stöðu gjaldkera klúbbsins í 26 ár eða til ársins 2018. Hann gegndi formennsku Sjálfstæðisfélags Akureyrar frá 2016-2018. Einnig var hann varamaður í Atvinnumálanefnd 2014-2015 og varamaður í stjórn Akureyrarstofu frá 2016-2018. Árið 2018 var hann kjörinn í bæjarstjórn og hefur setið í skipulagsráði frá 2018 og tók svo við formennsku 2020. Hann hefur setið í Hafnarstjórn frá 2019 og sem varamaður í Norðurorku frá 2018. Sem formaður skipulagsráðs hefur Þórhallur lagt áherslu á að koma hreyfingu á verkefnin, uppbyggingu og framtíðarsýn. Þórhallur hefur mikinn áhuga á uppbyggingu Akureyrar sem höfuðstað Norðurlands, miðstöð verslunar og þjónustu.
Þórhallur leggur áherslu á að fjölga atvinnutækifærum á svæðinu og með betri tengingu raforku inná svæðið skapast tækifæri til þess. Efla þarf ferðaþjónustuna á svæðinu og með nýrri flugstöð og nýstofnuðu flugfélagi skapast gríðarleg tækifæri sem þarf að nýta til fulls fyrir svæðið.
Í umhverfis og loftlagsmálum telur Þórhallur að hægt sé að gera betur, hætta þarf urðun og koma á betri lausn í sorpmálum. Leggja þarf áherslu á að skapa aðstöðu í hæsta gæðaflokki til að bæta lýðheilsu og til almennrar íþróttaiðkunnar. Hlíðarfjall er gríðarlega mikilvægur segull á okkar svæðið og áfram þarf að tryggja öflugt starf þar ásamt því að stuðla að áframhaldandi uppbyggingu íþróttaaðstöðu í bænum.