22/06/2026
Einn af stærstu kostunum við starf eftirlitsmanns hjá Fiskistofu er hversu fjölbreytt það er 🙂
Í síðastliðnum mánuði fóru tveir eftirlitsmenn stofnunarinnar til Lissabon í Portúgal til að taka þátt í vinnustofu á vegum Fiskveiðinefndar Norður-Atlantshafsins NAFO í höfuðstöðvum Siglingaröryggisstofnunar Evrópusambandsins European Maritime Safety Agency (EMSA)
Þar kynntu þeir meðal annars þróun og framkvæmd drónaeftirlits hjá Fiskistofu, sem hefur skipað sér í fremstu röð á heimsvísu í nýtingu dróna við fiskveiðieftirlit. Kynningin vakti mikinn áhuga þátttakenda og gaf tækifæri til að miðla reynslu og þekkingu Fiskistofu til erlendra samstarfsaðila 👨💼
Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi af þessu tagi endurspeglar vel þá fjölbreytni, sérþekkingu og nýsköpun sem einkennir starfsemi Fiskistofu 👌