06/06/2012
Hvert er ferðinni heitið í dag?
Lestrardagbókin er dagbók, þar sem færðar eru inn upplýsingar um lesnar bækur auk þess sem hægt er að skrá bækur sem áhugi er fyrir að lesa. Einnig er hægt að nýta bókina til að skrá leikhúsferðir, bíómyndir sem horft er á eða hvað annað sem fólki dettur í hug.
Lestrardagbókin hentar bæði börnum og fullorðnum. Gaman er að skrá í hana þær bækur sem lesnar eru og skrifa nokkur orð eða hugleiðingar um bækurnar í leiðinni til að minna sig á. Tilvalið er einnig að foreldrar nýti bókina til að halda utan um það sem þeir lesa með börnum sínum, nota hana til að skrá hljóðbækur sem hlustað hefur verið á og svo framvegis. Lestrardagbókin hjálpar lesandanum að rifja upp og njóta þess sem búið er að lesa.
Auk þess að auðvelda lesendum að muna eftir bókunum, sem þeir hafa lesið, er með útgáfu lestrardagbókar reynt að auka áhuga á lestri og benda á að lestur er spennandi ferðalag, fullt af ævintýrum, innsýn í ólíka menningarheima, nýrri upplifun, áhugaverðu fólki, fræðslu og skemmtun, sem vert er að halda utanum til að geta rifjað upp og notið.
Lestrardagbókin er skemmtileg heimild um góðar samverustundir með bókum. Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur skrifaði formála og Björn Heimir Önundarson, teiknaði skemmtilegar myndir í bókina.