Akureyrarbær

Akureyrarbær Fréttir, fróðleikur og viðburðir á Akureyri. Auk þess eru óvíða betri aðstæður til að lifa umhverfisvænum lífsstíl.

Akureyrarbær er stærsta sveitarfélagið utan höfuðborgarsvæðisins og þungamiðja þjónustu á Norðurlandi. Íbúar eru ríflega 19.000 og fjölgar jafnt og þétt. Á Akureyri er fjölbreytt atvinnulíf og gífurlegt framboð afþreyingar. Akureyri er fjölskyldubær, menningarbær, íþróttabær og margt fleira.

Sjómannadeginum verður fagnað víða við Eyjafjörð um helgina með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. ⚓️Frétt í ...
05/06/2026

Sjómannadeginum verður fagnað víða við Eyjafjörð um helgina með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. ⚓️

Frétt í fyrstu athugasemd.

Nýjar treyjur, góð stemning og Landsmót fram undan! 👕🙌Ringó-hópur Virkra efri ára undirbýr sig af krafti fyrir Landsmót ...
05/06/2026

Nýjar treyjur, góð stemning og Landsmót fram undan! 👕🙌

Ringó-hópur Virkra efri ára undirbýr sig af krafti fyrir Landsmót UMFÍ 50+ sem fram fer síðar í mánuðinum.

Frétt í fyrstu athugasemd.

Tónlistarkonan Mahaut Matharel er Sumarlistamaður Akureyrar 2026 – og Akureyringur vikunnar. Mahaut útskrifaðist með fra...
04/06/2026

Tónlistarkonan Mahaut Matharel er Sumarlistamaður Akureyrar 2026 – og Akureyringur vikunnar.

Mahaut útskrifaðist með framhaldspróf úr skapandi deild Tónlistarskóla Akureyrar í vor en harpan er hennar aðalhljóðfæri. „Ég hef verið í tónlist frá því ég man eftir mér. Ég byrjaði að læra á hörpu og ætla að halda því áfram og stefni á að fara út í háskóla til að læra meira. Við öll í fjölskyldunni spilum að minnsta kosti á eitt hljóðfæri. Mamma og pabbi eru bæði sellókennarar og ég er líka að læra söng og spila á bassa. Harpan er samt mitt uppáhald. Hún er allt öðruvísi en önnur hljóðfæri, bæði tónninn í henni og sú staðreynd að maður heldur ekki á henni með höndunum heldur öllum líkamanum, sem verður til þess að maður tengist henni svo vel,“ segir Mahaut, sem útskrifaðist í klassískum söng úr sama skóla í fyrra, er með grunnpróf á trommusett og spilar með rokksveitinni Bauk, sem mun meðal annars koma fram á hátíðinni Mannfólkið breytist í slím.

Hún segir að tilnefningin sem Sumarlistamaður Akureyrar skipti hana miklu máli. „Síðustu sumur hef ég verið að vinna og ekki haft jafn mikinn tíma fyrir hörpuna, en nú get ég æft mig og undirbúið mig fyrir Hörputónleikana sem verða í Akureyrarkirkju 22. ágúst, þar sem frumflutt verða verk eftir tónskáld á Norðurlandi.“

Tónlistin er þó ekki eina listin í lífi Mahaut, en hún útskrifaðist af listnámsbraut VMA í fyrra. „Ég er að mála og mun opna sýningu með vinkonum mínum í Deiglunni 12. júní. Áhugamál mín eru því bæði tónlist og myndlist en svo er ég svolítið í siglingum líka, þótt ég muni kannski ekki hafa mikinn tíma fyrir það í sumar. Ég stefni á að verða hörpukennari og væri mikið til í að flytja aftur til Akureyrar eftir nám og kenna hér.“

En er hún alæta á tónlist? „Ég vil ekki segja neitt ljótt um tónlist en viðurkenni að ég á erfitt með að hlusta á nútímarapp með þungum bassa og tölvugerðum trommum. Það getur alveg verið flott, en ég á erfiðast með að detta inn í slíka tónlist. Annars hlusta ég á allt sem ég kemst yfir. Lífið væri leiðinlegt án tónlistar.“

📸Axel Darri

Glerárskóli auglýsir lausa til umsóknar 70% stöðu atferlisfræðings, þroskaþjálfa eða einstaklings með aðra háskólamenntu...
04/06/2026

Glerárskóli auglýsir lausa til umsóknar 70% stöðu atferlisfræðings, þroskaþjálfa eða einstaklings með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfinu.
Auglýsing í fyrstu athugasemd.

Góð mæting og áhugasamir þátttakendur á fræðslufundi fyrir bæjarfulltrúa, varabæjarfulltrúa og formenn nefnda í gær.Frét...
04/06/2026

Góð mæting og áhugasamir þátttakendur á fræðslufundi fyrir bæjarfulltrúa, varabæjarfulltrúa og formenn nefnda í gær.

Frétt í fyrstu athugasemd.

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin í annað sinn dagana 18.–21. júní 2026. Taktu þátt í gleðinni!
03/06/2026

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin í annað sinn dagana 18.–21. júní 2026. Taktu þátt í gleðinni!

Ný bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur formlega hafið störf!Á fyrsta fundi bæjarstjórnar var ráðningarsamningur við Berglin...
03/06/2026

Ný bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur formlega hafið störf!

Á fyrsta fundi bæjarstjórnar var ráðningarsamningur við Berglindi Ósk Guðmundsdóttur sem bæjarstjóra staðfestur, auk þess sem kosið var í bæjarráð, ráð og nefndir.

Nánari upplýsingar í frétt í fyrstu athugasemd.

Svissneski listamaðurinn Zimoun opnar sýningu í Listasafninu á Akureyri á morgun, fimmtudag kl. 20. Frétt í fyrstu athug...
03/06/2026

Svissneski listamaðurinn Zimoun opnar sýningu í Listasafninu á Akureyri á morgun, fimmtudag kl. 20.

Frétt í fyrstu athugasemd.

Sigrún Ingimarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Amtsbókasafns- og Héraðsskjalasafns og tekur við starfinu af Hólmk...
02/06/2026

Sigrún Ingimarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Amtsbókasafns- og Héraðsskjalasafns og tekur við starfinu af Hólmkeli Hreinssyni.

Til hamingju Sigrún með ráðninguna!

Frétt í fyrstu athugasemd.

Vormarkaður Skógarlundar verður haldinn fimmtudaginn 4. júní kl. 9.00-17.30. Á markaðnum verða til sýnis og sölu fjölbre...
01/06/2026

Vormarkaður Skógarlundar verður haldinn fimmtudaginn 4. júní kl. 9.00-17.30. Á markaðnum verða til sýnis og sölu fjölbreyttir listmunir úr leir, tré og öðrum efnivið sem þátttakendur í Skógarlundi hafa unnið að í vetur og vor, ásamt fleiri verkefnum frá síðasta ári. Sjón er sögu ríkari.

Posi verður á staðnum og gestum verður boðið upp á kaffi og konfekt.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Address

Geislagata 9
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00

Telephone

+3544601000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Akureyrarbær posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Akureyrarbær:

Share

Category