Jafnréttisstofa

Jafnréttisstofa Jafnréttisstofa annast stjórnsýslu á sviði jafnréttismála.

Verkefni og hlutverk Jafnréttisstofu eru skilgreind í lögum um stjórnsýslu jafnréttismála (sjá lög nr. 151/2020).

💡Áhugaverður viðburður í dag! Hverjum treystum við til forystu? Rætt var um mismunandi viðhorf til karla og kvenna í lei...
19/06/2026

💡Áhugaverður viðburður í dag! Hverjum treystum við til forystu?

Rætt var um mismunandi viðhorf til karla og kvenna í leiðtogastöðum, ásamt mikilvægi gagna, rannsókna og menntunar fyrir áframhaldandi framþróun jafnréttismála og hlutverk Íslands í að varðveita og þróa þekkingu á þessu mikilvæga sviði.

Jafnrétti er ekki áfangastaður. Jafnrétti er ekki náð. Jafnrétti er stöðugt verkefni. Verkefni sem krefst árvekni, hugre...
19/06/2026

Jafnrétti er ekki áfangastaður. Jafnrétti er ekki náð. Jafnrétti er stöðugt verkefni. Verkefni sem krefst árvekni, hugrekkis og ábyrgðar – af hálfu okkar allra.

Raunverulegt jafnrétti krefst hugarfarsbreytingar.

Baráttudagur kvenna á Íslandi, kvenréttindadagurinn, er í dag 19. júní. Dagurinn sem Kristján X. danakonungur skrifaði undir lög sem veittu íslenskum konum 40 ára og eldri, kosningarétt og kjörgengi til Alþingis, árið 1915.

Tekur gildi 1. september
01/06/2026

Tekur gildi 1. september

Nýtt og einfaldara kerfi sem atvinnulífið getur nýtt til að sýna fram á kynjajafnrétti innan sinna raða var samþykkt á Alþingi í dag. Kerfið tekur við af jafnlaunavottun.

Hinsegin fræðsla fjallar um fjölbreytileika samfélagsins og er forvarnastarf sem á erindi við öll.
22/05/2026

Hinsegin fræðsla fjallar um fjölbreytileika samfélagsins og er forvarnastarf sem á erindi við öll.

Fræðsla Samtakanna '78 er ekki kynfræðsla.

Í umræðunni er fræðsla Samtakanna '78 í skólum endurtekið kölluð „kynfræðsla". Það er rangt.

Samtökin '78 sjá ekki um kynfræðslu. Það gera kennarar samkvæmt aðalnámskrá. Fræðsla Samtakanna '78 er hinseginfræðsla: fræðsla um fjölbreytileika í kynhneigð, kynvitund og fjölskyldugerðum. Hún snýst um að börn fái að vita að til séu samkynja foreldrar og fjölbreyttar fjölskyldur og að öll eigi rétt á virðingu.

Að rugla þessu tvennu saman, hinseginfræðslu og kynfræðslu er viljandi gert. Þetta er gamalkunn aðferð til að láta fræðslu um tilvist hinsegin fólks líta út fyrir að vera kynferðisleg og þar með óviðeigandi fyrir börn.

Hinsegin fræðsla fjallar um fjölbreytileika samfélagsins og er forvarnastarf sem á erindi við öll.

Ísland hefur verið fyrirmynd í jafnréttismálum á heimsvísu og Ísland á áfram að vera fyrirmyndarland í jafnrétti á heims...
18/05/2026

Ísland hefur verið fyrirmynd í jafnréttismálum á heimsvísu og Ísland á áfram að vera fyrirmyndarland í jafnrétti á heimsvísu.

Í dag eru liðin 50 ár frá því að fyrstu heildstæðu jafnréttislögin tóku gildi á Íslandi. Með lögunum árið 1976 var í fyrsta sinn lögfest með skýrum hætti að konur og karlar skyldu njóta jafnra réttinda. Þessi tímamót mörkuðu því sannarlega kaflaskil í íslensku samf...

50 ár frá því að fyrstu heildstæðu jafnréttislögin tóku gildi á Íslandi
18/05/2026

50 ár frá því að fyrstu heildstæðu jafnréttislögin tóku gildi á Íslandi

06/05/2026

Korter í kosningar - Election Day Countdown! 🔆

Ný heimasíða komin í loftið!🎉
05/05/2026

Ný heimasíða komin í loftið!🎉

Jafnréttisstofa vinnur að því að efla jafnrétti í íslensku samfélagi. Stofnunin veitir ráðgjöf, fræðslu og upplýsingar. Einnig fylgist hún með stöðu jafnréttismála og hvetur til jákvæðra breytinga. Jafnréttisstofa sinnir eftirliti með jafnréttislögum, styður við forvarn...

30/04/2026

Skemmtileg herferð hjá My Vote - My Voice // Mitt Atkvæði - Mín Rödd farin af stað sem heitir Korter í kosningar.
Endilega fylgist með :)

Address

Borgir V/Norðurslóð
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 12:00

Telephone

+3544606200

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jafnréttisstofa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Jafnréttisstofa:

Shortcuts

Share