11/06/2026
Þriðjudaginn 9. júní fóru fram skólaslit og útskrift 10. bekkjar í Glerárskóla.
Nemendur á yngsta- og miðstigi komu saman til skólaslita um morguninn í blíðskaparveðri. Hrafnhildur Guðjónsdóttir, deildarstjóri og staðgengill skólastjóra, stýrði athöfninni og ræddi meðal annars um mikilvægi lesturs, góðra samskipta og þess að leggja sig ávallt fram við að gera sitt besta. Að loknum skólaslitum fóru nemendur til umsjónarkennara sinna ásamt foreldrum og forráðamönnum þar sem þeir fengu afhentan vitnisburð skólaársins.
Skólaslit unglingastigs og útskrift 10. bekkinga fóru fram í Glerárkirkju síðdegis. Eyrún Skúladóttir skólastjóri fór yfir liðið skólaár og sagði frá því faglega og metnaðarfulla starfi sem fram fer innan veggja Glerárskóla á hverjum degi.
Fannar Breki Kárason, sem útskrifaðist úr Glerárskóla fyrir fimm árum, flutti ávarp þar sem hann hvatti útskriftarnema til þrautseigju og ræddi mikilvægi þess að halda áfram, prófa sig áfram og læra af reynslunni.
Fyrir hönd útskriftarnema fluttu Ísabella Jóhannsdóttir, Una Björk Viðarsdóttir og Hrafn Leví Þórðarson ávarp þar sem þau rifjuðu upp skólagöngu síðustu tíu ára á skemmtilegan og líflegan hátt. Þá ávörpuðu Arna Ýr Guðmundsdóttir og Ragnar Logi Búason, umsjónarkennarar 10. bekkjar, útskriftarhópinn við mikla kátínu og gleði viðstaddra.
Við skólaslitin voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Elva Ósk Jónsdóttir og Maísól Anna Kristínardóttir Guðmundsdóttir hlutu viðurkenningu fyrir bestan námsárangur í 8. bekk, Sara Millý Heiðarsdóttir fyrir bestan námsárangur í 9. bekk og Jökull Máni Kárason og Una Björk Viðarsdóttir fyrir bestan námsárangur í 10. bekk. Amanda Sól Davíðsdóttir hlaut viðurkenningu frá danska sendiráðinu fyrir framúrskarandi árangur í dönsku.
Ísabella Jóhannsdóttir hlaut viðurkenningu frá Foreldrafélagi Glerárskóla fyrir að vera góður félagi. Verðlaunin eru veitt árlega nemanda sem stuðlar að samkennd, virðingu og umhyggju í samskiptum við aðra. Viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf í þágu félagsmála hlaut Hrafn Leví Þórðarson.
Í ár voru Sölluverðlaunin veitt í fyrsta sinn. Þau eru veitt nemendum sem skara fram úr fyrir gott viðmót, kurteisi, góða umgengni og almenna góðmennsku. Að þessu sinni hlutu Alvilda Guðrún Ólafsdóttir og Sveinn Ármann Lárusson verðlaunin.
Útskrift nemenda er ávallt stór áfangi og mikilvæg tímamót. Við horfum stolt á þann árangur sem nemendur okkar hafa náð og þökkum þeim fyrir samfylgdina í gegnum árin.