Viðreisn á Akureyri

Viðreisn á Akureyri Listabókstafur Viðreisnar er C. Hefurðu áhuga á að taka þátt í mótun flokksins með okkur?

Fylgstu með hér á Facebook síðunni, sem og vefsíðunni www.vidreisn.is

Með því að líka við Facbooksíðu Viðreisnar á Akureyri ertu ekki að gefa upp stjórnmálaskoðun. Ef þú vilt ganga í Viðreisn, þá getur þú skráð hér: www.vidreisn.is/malefni/vertu-med-i-vidreisn/

Auglýsingar Viðreisnar í Reykjavík geta beinst að þeim sem líka við síðuna. Ef þú vilt ekki sjá auglýsingar frá Viðreisn getur þú ýtt á

örina þegar auglýsing birtist og valið "hide ad" eða "hide all ads" frá Viðreisn í Reykjavík.

Þú getur skoðað persónuverndarstefnu Viðreisnar hér: www.vidreisn.is/personuverndarstefna/

Kæru vinir Viðreisnar á Akureyri!Við erum hvergi af baki dottin þrátt fyrir að úrslit sveitarstjórnarkosninganna í maí 2...
24/06/2026

Kæru vinir Viðreisnar á Akureyri!

Við erum hvergi af baki dottin þrátt fyrir að úrslit sveitarstjórnarkosninganna í maí 2026 hafi ekki farið eins og við lögðum upp með. Við fórum stórhuga inn í kosningabaráttuna með háleit markmið og af því er engin skömm.

Kosningabaráttur snúast um að ræða við fólk og þökkum við kærlega öllum þeim fyrirtækjum og stofnunum sem tóku á móti okkur, samtölum sem við áttum við töfluna góðu og búum nú vel að góðu og sterku tengslaneti. Það er mikill kraftur í Akureyringum, en að okkar mati þurfa Akureyringar að láta heyrast hærra í sér - ganga fram með brjóstkassann út og vera óhrædd við kastljósið. Hér fer fram mikil verðmætasköpun, fyrir svæðið og landið allt og af því eigum við að vera stolt.

Síðustu vikur hafa félagsmenn Viðreisnar á Akureyri velt vöngum yfir því hvaða hlutverk við viljum taka að okkur til næstu ára og byggir það helst á þremur stoðum:

1 - Aðhald gagnvart bæði meirihluta og minnihluta bæjarstjórnar. Það gerum við með því að mæta á opna fundi, spyrja gagnrýnna spurninga og koma hagsmunum heildarinnar á framfæri í gegnum fyrirspurnir og greinaskrif.
- Vekja áfram athygli á málefnum sem eru okkar hjartans mál. Af öllu svæðinu á að vera best að búa á Akureyri og er það samvinna yfirvalda og fyrirtækja að svæðisborgin Akureyri sé þungamiðja nýsköpunar, velsældar og vaxtar. Það er gott að ala upp börn á Akureyri en það á að vera frábært. Hér eiga öll börn að finna fyrir uppbyggilegu og stuðningsríku umhverfi, hvort heldur í skólakerfinu eða í tómstundum og fjölskyldur eiga geta gengið að framúrskarandi grunnþjónustu. Sveitarfélagið hefur verið vel rekið síðastliðinn ár en við skorum á yfirvöld að fara í innri skoðun á verkefnum stjórnsýslunnar og verkferlum með tæknilausnir í huga. Tími gervigreindar er runninn upp.
3 - Að vera talsmenn Akureyrar gagnvart Alþingi. Við erum í góðum samskiptum við þingmenn Norðausturkjördæmis þvert á flokka og teljum okkur geta lagt hönd á plóg fyrir hagsmuni svæðisins þegar kemur að því að vekja athygli á því sem betur má fara. Nefnum við þar vinnu Ingvar Þóroddsson (ef.) í málefnum og fjárveitingu Hlíðarskóla, þörf á hringtorgi og göngustígum við Skógarböðin, aukin aðbúnað Akureyrarflugvallar, varanlega staðsetningu þyrlu á Akureyri, stærri aðstöðu fyrir sérsveitina á Akureyri og svona mætti lengi telja.

Af þeim verkefnum sem eru framundan er þó þörf á því að vekja athygli á einu stærsta hagsmunamáli íslensku þjóðarinnar. Þann 29. ágúst næstkomandi munu Íslendingar fá einstakt tækifæri til þess að kjósa um hvort þjóðin vilji hefja á ný samningaviðræður við Evrópusambandið. Þá kjósum við um það hvort við viljum fara í viðræðurnar, þar sem rýnt verður í hvern málaflokk fyrir sig næstu árin, sama ferli og átti sér stað í aðildarviðræðum 2009-2013.
Í lok viðræðna fáum við þá loks að sjá við svart á hvítu samning, orð fyrir orð - og fáum þá aftur tækifæri sem þjóð að taka þeim samningi eða hafna. Í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Við ræðum um hana eftir nokkur ár.

Verkefnin eru mörg, en við erum óhrædd við að bretta upp ermar, líkt og við sýndum í kosningabaráttunni.

Ný stjórn svæðisfélags Viðreisnar á Akureyri tók við keflinu á aðalfundi þann 23. júní og erum við spennt að halda vegferðinni áfram.

Formaður félagsins er áfram Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, meðstjórnendur eru Hafsteinn Árnason, Halla Rut, Halla María Sveinbjörnsdóttir, Jóhann Einarsson, Unnur Pétursdóttir og Þóroddur Ingvarsson (vantar á mynd) en varamaður í stjórn er Axel Björnsson.

Kveðja frá oddvita að morgni kjördags!Þetta hefur verið stórkostleg kosningabarátta, ómetanlegt að fá að kynnast fjölbre...
16/05/2026

Kveðja frá oddvita að morgni kjördags!

Þetta hefur verið stórkostleg kosningabarátta, ómetanlegt að fá að kynnast fjölbreyttri starfsemi í bænum og ræða við íbúa.

Við komum vel undirbúin inn í kjördag og tilbúin að takast á við verkefni næsta kjörtímabils 💪🧡

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir

Af hverju Viðreisn? Frambjóðendur tóku sig saman og svöruðu spurningum sem geta hjálpað þér að skilja af hverju við buðu...
15/05/2026

Af hverju Viðreisn?

Frambjóðendur tóku sig saman og svöruðu spurningum sem geta hjálpað þér að skilja af hverju við buðum okkur fram fyrir og af hverju við ætlum að kjósa Viðreisn. Að geta speglað sig í einstaklingum í framboði er ómetanlegt tækifæri til þess að átta sig á hvar áherslulínurnar liggja. En, svo er líka mikilvægt að hafa gaman 😄

🧡 Hvaða frambjóðandi hefur sungið í tónverki með pönkhljómsveit?

🧡 Hvaða frambjóðandi hefur aldrei farið í Costco?

🧡 Hvaða frambjóðendur elska Kjarnaskóg meira en aðra staði á Akureyri?

🧡 Hvaða frambjóðandi telur næstu 4 ár vera kjörinn tími til að endurvekja 'Akureyrarmódelið í endurbættri mynd'?

ALLT um það og meira til í greininni!

X við C á kjörstað er atkvæði greitt með kraftmiklu fólki með gott vinnusiðferði sem elska spurninguna ,,af hverju?" ✔️

Viðreisn býður fram krafta sína í fyrsta sinn á Akureyri í komandi sveitarstjórnarkosningum. Á listanum eru ólíkir einstaklingar sem deila þó mörgu sameigi

14/05/2026

🧡Við ætlum að:
1. brjóta niður múra á milli deilda og sviða í sveitarfélaginu,
2. forgangsraða fjármagni í forvarnir og snemmtækan stuðning í stað dýrra viðbragðs úrræða,
3. valdefla starfsfólk skóla og frístundastarfs svo það geti sinnt sínu daglega starfi í stað þess að vera í stöðugri „björgunarsveitarvinnu“.

Ertu Akureyringur að kjósa utankjörfundar á höfuðborgarsvæðinu? Komdu atkvæði þínu í Kópavog á morgun, föstudag og við k...
14/05/2026

Ertu Akureyringur að kjósa utankjörfundar á höfuðborgarsvæðinu? Komdu atkvæði þínu í Kópavog á morgun, föstudag og við komum þeim norður í talningu 💪🏻🧡

14/05/2026

🧡Meðal aðgerða sem væri hægt að fara í með verkefni eins og „Börnin okkar” eru:
*sálfræðingar að störfum innan grunnskóla á skólatíma,
*reglulegar, gjaldfrjálsar foreldrafræðslur og símatímar hjá ráðgjöfum,
*velferðar- og skólasvið að starfa sem ein heild, ekki tvö aðskilin kerfi,
*lengri opnunartími félagsmiðstöðva,
*sérstakur unglingaráðgjafi fyrir Barnavernd og nýtt neyðarúrræði.

🧡Þetta er ekki kostnaður, heldur fjárfesting í fólki, fjárfesting sem skilar sér í betri líðan, auknu öryggi og farsælu samstarfi allra hagaðila.

14/05/2026

🧡Verkefnið „Börnin okkar“ er aðgerðaráætlun sem byggir á einfaldri en öflugri hugsun: grípa fyrr inn í og færa þjónustuna þangað sem börnin eru.

🧡Viðreisn nálgast þetta verkefni af ábyrgð og metnaði og vill færa stjórnsýsluna nær raunverulegum þörfum barna og fjölskyldna.

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir oddviti Viðreisnar á Akureyri og Hafsteinn Árnason skrifa hér um skipulagsmál. Í samtölum í...
13/05/2026

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir oddviti Viðreisnar á Akureyri og Hafsteinn Árnason skrifa hér um skipulagsmál.

Í samtölum í vetur hafa vaknað fleiri spurningar en við hefðum getað ímyndað okkur. Við köllum eftir skýrri heildar framtíðarsýn um stærri svæði en ákveðna byggingarreiti.

,,Skipulagsvinnan hefur að verulegu leyti miðast við afmarkaða deiliskipulagsreiti, oft án skýrrar og sameiginlegrar heildarsýnar. Það er okkar tilfinning að það sé verið að sauma bútasaumsteppi þar sem reitirnir eru úr ósamstæðu afgangsefni."

Við höfum sérstakar áhyggjur af samgöngumálum og teljum vera sérstaklega aðkallandi verkefni að skipuleggja aðstöðu og akstursleiðir fyrir farþegaflutninga með rútum.

Vissir þú að það er ekki eitt sleppistæði fyrir rútur á Akureyri?

Akureyri er í þróun frá því að vera bær yfir í að verða borg. Íbúafjöldinn er nú um 20 þúsund og sú þróun hefur leitt af sér fjölbreyttar áskoranir. Skipul

Address

Akureyri

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Viðreisn á Akureyri posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share