15/04/2026
Aðalfundur félagsins var haldinn í kvöld við góða mætingu. Farið var í gegnum hefðbundin aðalfundarstörf og starf félagsins á liðnu ári. Stjórnarmenn buðu síðan uppá veglegar kræsingar í kaffihléi. Tveir stjórnarmenn létu af störfum og þökkum við þeim fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins en þeir eru Þorgils Magnússon formaður og Ármann Óli Birgisson stjórnarmaður/ritari. Nýjir í stjórn eru Kristín Frímannsdóttir ritari og Richard Zharikov meðstjórnandi en þau voru sem varamenn. Formaður félagsins var kjörinn Hjálmar Björn Guðmundsson, varamenn í stjórn eru Sigursteinn V Hjálmarsson og Una Ósk Guðmundsdóttir.
Sigurður Rúnar Magnússon er áfram gjaldkeri félagsins og Björn Svanur Þórisson tók við sem varaformaður.
Á mynd frá vinstri
Sigurður, Hjálmar, Richard, Kristín, Björn, Una og Sigursteinn.