Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar

Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar Eigna- og framkvæmdadeild hefur umsjón og eftirlit með framkvæmdum og öllum eignum Dalvíkurbyggðar.

28/03/2026

❄️❄️ Snjómokstur ❄️❄️
Mikið hefur bætt í snjóinn síðasta sólarhring og víða þungfært. Von er á meiri úrkomu á morgun og aðfararnótt mánudags.
❄️ Á Dalvík er verið að moka fyrsta forgang og eftir það verður farið í að opna götur í öðrum forgangi. Þriðji forgangur bíður fram yfir næsta úrkomuskot. Verið er að blása helstu göngustíga og gönguleiðir.
❄️ Á Árskógssandi og Hauganesi verður stungið í gegn í dag en beðið með hreinmokstur fram á mánudagsmorgun.
❄️ Unnið er að því að opna vegina fram í Svarfaðar- og Skíðadal.

Við erum stolt af þessum fallega bekk 💜
13/03/2026

Við erum stolt af þessum fallega bekk 💜

Dalvík hefur eignast fjólubláan bekk 💜

Fyrir nokkrum vikum kviknaði sú hugmynd á Dalvík að setja upp fjólubláan bekk. Kristín Heiða Halldórsdóttir, Alzheimertengill á staðnum, tók málið að sér og starfsmenn áhaldahússins brugðust fljótt við.

Bekkurinn er nú kominn upp við Kirkjuveg, skammt frá hjúkrunarheimilinu. Þar liggur einnig fjölfarinn göngustígur svo bekkurinn er vel sýnilegur. Frá honum blasir við fallegt útsýni, bæði niður að sjó og upp til fjalla, auk þess sem þaðan sést til leikskólans og hjúkrunarheimilisins.

Fjólubláum bekkjum er ætlað að vekja athygli á heilabilun og stuðla að aukinni fræðslu og opnari umræðu um málefnið í samfélaginu.

Hér hjá okkur í Áhaldahúsinu er þessi læða sem vill gjarnan komast heim til sín. Hún gerði sig heimakomna í húsi við Skí...
09/03/2026

Hér hjá okkur í Áhaldahúsinu er þessi læða sem vill gjarnan komast heim til sín. Hún gerði sig heimakomna í húsi við Skíðabraut og var komið til okkar. Hún er hvorki með örmerkingu eða ól en er greinilega ljúfur heimilisköttur 🐈
Það má vitja hennar hjá okkur niður á Sandskeiði 🙂

Address

Sandskeið 26
Dalvík
620

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 15:00

Telephone

+3544604900

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar:

Shortcuts

Share

Category