Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum

Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum Minjasafn Austurlands - Laufskógar 1 - 700 Egilsstaðir - [email protected] Amongst things on display is a living room from an old Icelandic turf house.

Minjasafn Austurlands varðveitir minjar um sögu, menningu og samfélag fjórðungsins. Á safninu eru tvær sýningar, annars vegar sýningin Hreindýrin á Austurlandi þar sem fjallað er um þessi einkennisdýr Austurlands og hins vegar sýningin Sjálfbær eining þar sem til sýnis eru gripir sem tilheyra sögu gamla sveitasamfélagsins eins og það var fram undir miðja 20 öld.

Á safninu er lögð áhersla á að ta

ka vel á móti börnum og barnafjölskyldum. Upplýsingar eru settar fram á formi sem hentar yngri kynslóðinni, krakkar geta brugðið sér í hlutverk spæjara og leitað uppi áhugaverða gripi og síðast en ekki síst er í boði fjölbreytt og fróðleg afþreying í sérstöku krakkahorni.

---

The East Iceland Heritage Museum preserves the history of East Iceland by collecting things that reflect the society, culture, and everyday life of people in the area. There are two exhibitions at the museum, one about the history of reindeer in East Iceland and another about the old rural community of the East. The museum is a child- and family friendly place. Children can try the museum's spy game or spend time in an informative, yet fun, children's corner.

Við minnum á ljósmyndasamkeppnina um Kjarval á Austurlandi! Endilega skoðið þetta ef þið lumið á fallegri mynd ✨
11/08/2026

Við minnum á ljósmyndasamkeppnina um Kjarval á Austurlandi! Endilega skoðið þetta ef þið lumið á fallegri mynd ✨

Er ekki tilvalið að minna á þessa litlu samkeppni nú þegar fólk á faraldsfæti streymir til Austurlands og ekki síður til Borgarfjarðar eystri um komandi helgi?

Það er nú gott að starfsmenn MVA eru ekki sérlega lofthræddir! Framkvæmdir við viðbyggingu Safnahúss eru í fullum gangi,...
05/08/2026

Það er nú gott að starfsmenn MVA eru ekki sérlega lofthræddir! Framkvæmdir við viðbyggingu Safnahúss eru í fullum gangi, sólin skín og Minjasafnið er opið frá kl. 10-17. Verið hjartanlega velkomin!

Steinunn Harðardóttir málverkaforvörður dvelur þessi dægrin í sumarhúsi Jóhannesar S. Kjarval í Kjarvalshvammi í Hjaltas...
27/07/2026

Steinunn Harðardóttir málverkaforvörður dvelur þessi dægrin í sumarhúsi Jóhannesar S. Kjarval í Kjarvalshvammi í Hjaltastaðaþinghá þar sem hún vinnur að forvörslu á gólfþiljum hússins. Þær bera þess glöggt vitni að þar hafði listmálari aðsetur og eru þaktar litríkri málningu. Gólfþiljurnar verða meðhöndlaðar líkt og málverk, þær eru hreinsaðar og lausar málningarflögur límdar niður. Þetta er mikil nákvæmisvinna sem mun taka drjúgan tíma að ljúka en með þessum aðgerðum er komið í veg fyrir að menningarverðmæti glatist. Verkefnið hlaut styrk úr Húsafriðunarsjóði.

Er ekki tilvalið að minna á þessa litlu samkeppni nú þegar fólk á faraldsfæti streymir til Austurlands og ekki síður til...
20/07/2026

Er ekki tilvalið að minna á þessa litlu samkeppni nú þegar fólk á faraldsfæti streymir til Austurlands og ekki síður til Borgarfjarðar eystri um komandi helgi?

02/07/2026

Það gæti heyrst í stöku bor en við látum það sem (hávaðasaman) vin um eyru þjóta.
You might hear the occasion power drill but please don't let that stop you. Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum

01/07/2026

Lokað vegna framkvæmda.
Closed due to construction work.

Óhjákvæmilegur fylgifiskur framkvæmda er að stöku sinnum verður umtalsverð hljóðmengun. Sú er staðan í dag og eitthvað f...
01/07/2026

Óhjákvæmilegur fylgifiskur framkvæmda er að stöku sinnum verður umtalsverð hljóðmengun. Sú er staðan í dag og eitthvað fram á morgundaginn og því lokar safnið dyrum sínum. Látum ykkur vita um leið og allt fellur í dúnalogn aftur. Við biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.

Due to construction work, we have to close the museum today and possibly tomorrow. We will let you know once the coast is clear and apologise for the inconvenience.

Spennandi starf í Sláturhúsinu Menningarmiðstöð!
26/06/2026

Spennandi starf í Sláturhúsinu Menningarmiðstöð!

Sláturhúsið menningarmiðstöð auglýsir eftir starfsmanni í nýja stöðu verkefnastjóra fræðslu og miðlunar. Starfshlutfall er 50% Starfið er laust nú þegar og upphaf starfs er samkomulagsatriði.

Sláturhúsið menningarmiðstöð er miðstöð sviðslista á Austurlandi og leggur áherslu áverkefni sem tengjast sviðslistum (performing arts) á einn eða annan hátt. Við leggjum ríka áherslu á fræðslustarf fyrir börn og ungmenni með bæði námskeiðum og þáttökuverkefnum.Sláturhúsið framleiðir eigin sviðslistaverk í samstarfi við sjálfstæða leikhópa ásamt því að vera vettvangur fyrir sýningar, þróun verkefna, æfingaferli og rannsóknarvinnu sviðslistafólks.

Sláturhúsið hefur jafnframt frábæra sýningaraðstöðu fyrir myndlist og árlega setjum við upp 6-8 sýningar. Sláturhúsið er einnig vattvangur fyrir tónlist og tónlistarfólk með bæði tónleikaaðstöðu og aðstöðu til æfinga.

Á komandi starfsári ætlum við að að efla og móta enn betur verkefni miðstöðvarinnar, meðal annars listamannadvölina og þróunarstarf innan sviðslista. Viðkomandi starfsmaður mun taka þátt í þeirri stefnumótun og því æskilegt að viðkomandi hafi einhverja reynslu af slíkri vinnu.

19/06/2026

Til hamingju með daginn, gott fólk. Mælum með bókmenntagöngu sem hefst við Safnahúsið á Egilsstöðum kl. 17.00. Sjáumst!

Address

Laufskógar 1
Egilsstaðir
700

Opening Hours

Monday 10:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 10:00 - 17:00
Saturday 11:00 - 17:00

Telephone

4711412

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share