07/07/2026
HÁLENDISEFTIRLIT
Lögreglan á Austurlandi heldur úti hálendiseftirliti á Austurlandi og Norðurlandi-Eystra í sumar líkt og fyrri ár. Fyrsta ferð sumarsins var farin 4.-7. júlí en í hana fóru Kristmundur Stefán lögreglustjóri og Guðmundur Hjörvar varðstjóri.
Í eftirlitinu er lögð sérstök áhersla á sýnilega löggæslu, eftirlit með utanvegaakstri og upplýsingagjöf til ferðamanna. Allir ökumenn sem verða á vegi lögreglu eru teknir tali og þeir upplýstir um bann við utanvegaakstri og fá þeir afhent upplýsingablað þess efnis. Um er að ræða upplýsingablað sem jafnframt er afhent þeim sem koma keyrandi inn í landið með farþega- og bílaferjunni Norrænu á Seyðisfirði. Ánægjulega könnuðust flestir sem allir ökumenn við þær reglur er gilda um utanvegaakstur í landinu.
Við eftirlitið er lögregla í góðu samstarfi við landverði Vatnajökulsþjóðgarðs, starfsfólk ferðafélaga á hálendinu og björgunarsveitir.