Björgunarsveitin Brimrún

Björgunarsveitin Brimrún A nonprofit Search and Rescue team in Eskifjörður and a part of nationwide SAR team Slysavarnarfélagið Landsbjörg.

Search and rescue team in a small town called Eskifjörður, on the east coast of Iceland and a proud member of the nationwide SAR team Slysavarnarfélagið Landsbjörg.

Þetta er Mjölnir – nýjasti dróni Björgunarsveitarinnar Brimrúnar.Mjölnir er öflugt tæki sem mun nýtast í útköllum, leita...
06/07/2026

Þetta er Mjölnir – nýjasti dróni Björgunarsveitarinnar Brimrúnar.

Mjölnir er öflugt tæki sem mun nýtast í útköllum, leitaraðgerðum og fjölbreyttum verkefnum þar sem tími og búnaður geta skipt sköpum.

Nú stendur yfir söfnun fyrir sérhannaðri hleðslurafstöð sem mun fylgja Mjölni hvert sem hann fer. Rafstöðin er sérstaklega hönnuð til að hlaða rafhlöður drónans hratt og örugglega, jafnvel á afskekktum stöðum þar sem ekkert rafmagn er til staðar.

Með þessari viðbót verður hægt að halda drónanum lengur í loftinu og tryggja að hann sé alltaf tilbúinn þegar neyðarkall berst.

Við viljum því leita til samfélagsins. Hvert framlag, stórt eða smátt, færir okkur nær því markmiði að gera Mjölni enn öflugri í þjónustu við íbúa og gesti svæðisins.

Við þökkum kærlega fyrir allan stuðninginn. Saman eflum við viðbragðsgetu okkar þegar mest á reynir.

Kennitala Brimrúnar 710186-1389
Reikningsnúmer 0167-05-010019

Björgunarsveitin Brimrún fékk nýverið afhentan DJI FlyCart 100 dróna sem ber nafnið Mjölnir, En hann mun nýtast sveitinn...
18/05/2026

Björgunarsveitin Brimrún fékk nýverið afhentan DJI FlyCart 100 dróna sem ber nafnið Mjölnir, En hann mun nýtast sveitinni og öðrum viðbragðsaðilum hér á Austurlandi við flutning á björgunarbúnaði við krefjandi aðstæður.

Dróninn hefur allt að 100 kg burðargetu og getur því flutt stóran og mikilvægan búnað á staði þar sem erfitt eða tímafrekt er að komast að með hefðbundnum leiðum. Þar má nefna sjúkrabúnað, fjarskiptabúnað, lyf, björgunarbúnað siglínur og annan neyðarbúnað sem getur skipt sköpum þegar slys eða neyðartilvik verða.

Sveitin er einnig með Dji matrice 30T Leitardróna sem hefur nú þegar bjargað einu manslífi.

Heiðar í skilaval styrkir okkur með merkingu á þessum Dróna Takk fyrir Okkur heiðar !

Brimrún verður með opið hús Laugardaginn 23 Maí frá 12 til 16
Kaffi og Kleinur í Boði.

Afar slæm veðurspá á morgun, mánudag. Viljum vekja athygli á slæmri veðurspá á morgun. Hvetjum þá sem ekki þurfa að vera...
01/03/2026

Afar slæm veðurspá á morgun, mánudag.

Viljum vekja athygli á slæmri veðurspá á morgun.

Hvetjum þá sem ekki þurfa að vera á ferðinni að vera heima. Þeir sem þurfa að vera á ferðinni fylgist vel með veðurspá og færð á vegum.

Förum varlega og komum heil heim.

© Veðurstofa Íslands | Bústaðavegi 7-9 | 105 Reykjavík | Sími 522 6000 | Kennitala 630908-0350 Hafa samband | Starfsfólk | Notkunarskilmálar | Veftré | Spurt og svarað um vefinn | Persónuvernd

18/02/2026
11/01/2026

Gul veðurviðvörun tekur gildi í kvöld og fram yfir miðnætti á þriðjudag. Spáð er norðan fimmtán til tuttugu og þremur metrum á sekúndu með snörpum hviðum. Él eða snjókoma sem getur leitt til varasamra akstursaðstæðna, jafnvel ófærðar.

Ferðalangar hvattir til að fylgjast vel með veðurspá og færð, ekki síst á fjallvegum í umdæminu.

Björgunarsveitin Brimrún vill hér með tilkynna að sveitin hefur undanfarna mánuði unnið að umfangsmikilli fjáröflun með ...
05/01/2026

Björgunarsveitin Brimrún vill hér með tilkynna að sveitin hefur undanfarna mánuði unnið að umfangsmikilli fjáröflun með það markmiði að tryggja kaup á nýjum björgunarbáti, sem ætlaður var til að styrkja viðbragðsgetu sveitarinnar og efla öryggi sjófarenda á svæðinu. Markmið fjáröflunarinnar var að tryggja nauðsynlegt fjármagn til að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til björgunarbúnaðar í dag, bæði hvað varðar tæknilega getu og rekstraröryggi.
Þrátt fyrir ríkan áhuga, rausnarleg framlög og myndarlegan stuðning fjölda einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka, hefur það leitt í ljós að við munum ekki ná að safna því fjármagni sem þarf til að ráðast á kaupin. Slíkt fjármagn er óhjákvæmilegt til að tryggja öryggi- og þjónustu björgunarbáts sem starfsemi sveitarinnar krefst.

Í ljósi þessarar stöðu hefur stjórn Brimrúnar ákveðið að setja báða núverandi björgunarbáta sveitarinnar á sölu, báðir bátarnir hafa þjónað okkur og nærsamfélaginu vel um árabil en eru nú komnir til ára sinnar. Sala bátanna er hugsuð sem liður í því að skapa fjárhagslegt svigrúm til endurnýjunar björgunarbúnaðar þegar aðstæður leyfa og að tryggja áframhaldandi öryggi í starfsemi sveitarinnar.

Björgunarsveitin Brimrún vill koma á framfæri innilegum þökkum til allra þeirra sem lögðu málefninu lið með áheitum sínum, framlögum og öðrum stuðningi. Þátttaka ykkar hefur skapað mikilvægan sess í þeirri vinnu sem okkar sjálfboðaliðar lögðu í verkefnið og er það okkur dýrmæt.

Sveitin mun áfram vinna markvisst að því að tryggja viðbragðshæfni, búnaðar og starfsemi séu ávallt til fyrirmyndar.

31/12/2025

Öryggi er Númer eitt í Okkar fari Förum Varlega.

Minnum Á opnunartíma Flugeldasölu er frá 10-16 í Dag.

Innköllun á Rakettupakka 2!Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettu...
30/12/2025

Innköllun á Rakettupakka 2!

Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2.

Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma.



Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir.

Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru.

Hægt verður að skipta út pakkanum á morgun þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann.



Meðfylgjandi eru ljósmyndir af pakkanum og þeim rakettum sem í honum eru.



Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.

Vegna óhagstæðs veðurs 31.desember hefur Björgunarsveitin Brimrún ákveðið að færa flugeldasýningu sína til dagsins í dag...
30/12/2025

Vegna óhagstæðs veðurs 31.desember hefur Björgunarsveitin Brimrún ákveðið að færa flugeldasýningu sína til dagsins í dag, 30. desember. Flugeldasýningunni verður skotið upp á milli kl. 20:30 og 21:00. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að njóta sýningarinnar og þökkum sýndan skilning.

Address

Strandgata 11
Eskifjörður
735

Telephone

+3547740445

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Björgunarsveitin Brimrún posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share