Laugabúð

Laugabúð Laugabúð er eins konar gælunafn á Verslun Guðlaugs Pálssonar á Eyrarbakka. Guðlaugur hafði áður verslað í tvö ár í Kirkjuhúsi handan götunnar.
(6)

Laugabúð hefur nú verið opnuð á ný eftir endurgerð. Þar fæst gamaldags sælgæti, póst- og gjafakort með myndefni frá Eyrarbakka, ýmis gjafavara með skírskotun til þorpsins, bækur tengdar svæðinu, handunnar sápur, ullarvara frá RÍSL og fleira. Fyrir um áratug var hafin endurbygging hússins Sjónarhóls, þar sem Laugabúð er til húsa, með það að markmiði að færa húsið til þess horfs sem það var árið 191

9 þegar Guðlaugur Pálsson (1896-1993) hóf að versla þar. Meðal annars voru settar upp á ný innréttingar úr verslun Guðlaugs sem búið var að taka niður og afhentar höfðu verið Byggðasafni Árnesinga. Hann átti langan og farsælan feril sem kaupmaður því hann verslaði alls í 76 ár, þar af á sama gólfinu í 74 ár eða frá 1919 til 1993. Guðlaugur varð þjóðkunnur í lifanda lífi og komst í Guinness Book of Records sem elsti kaupmaður Evrópu. Mörg tilsvör hans í viðtölum í blöðum, útvarpi og sjónvarpi urðu fleyg eins og þegar hann var spurður níræður af hverju hann væri enn að versla og hann svaraði að bragði: „Hver vill 90 ára gamlan mann í vinnu?“

Verið velkomin í Laugabúð - þar sem kaupmaðurinn er enn á hvíta sloppnum. Laugabúð er rekin af Laugabúð ehf.

Address

Eyrargötu 46
Eyrarbakki
820 EYRARBAKKA

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Laugabúð posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share