Vegagerðin

Vegagerðin Færðarupplýsingar má sjá á umferdin.is. Vegna annarra fyrirspurna og ábendinga má nýta hnappinn „Hafðu samband“ á heimasíðu Vegagerðarinnar, vegagerdin.is.

Fyrirspurnum og athugasemdum er ekki svarað hér á Facebook. Facebook síða Vegagerðarinnar er ekki í stöðugri vöktun þannig að ekki er öruggt að fyrirspurnum verði svarað á skjótan hátt. Ef vantar upplýsingar um færð eða ástand vega er best að hringja í síma 1777 en þar eru ætíð nýjustu upplýsingar. Á sumrin er opið virka daga frá 08:00 - 17:00 en alla daga vikunnar á veturna frá 06:30 - 22:00. For

mleg erindi, ábendingar eða kvartanir er betra að senda í tölvupósti á netfangið vegagerdin(hjá)vegagerdin.is eða hafa samband við svæðisstöð eða beint við starfsmann, sjá hér http://www.vegagerdin.is/um-vegagerdina/svaedi-og-simanumer/
twitter:
Instagram: vegagerdin
Snapchat: vegagerd

20/08/2026

🚧 Bætt umferðaröryggi við Miklubraut og Grensásveg

Á næstu dögum hefjast framkvæmdir við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar með það að markmiði að bæta öryggi, sýnileika og aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda. 🚶‍♀️🚴‍♂️

Meðal þess sem verður gert eru upphækkaðar gönguþveranir á fjórum stöðum, bætt lýsing, endurbætur á miðeyjum og betra aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.

Framkvæmdirnar standa yfir næstu vikur og má búast við tímabundnum breytingum á umferðarskipulagi á svæðinu. Ökumenn eru því hvattir til að fylgjast vel með merkingum og sýna aðgát.

Reykjavíkurborg
Betri samgöngur ohf.

Sjá nánar í frétt um málið:

➡️ Áætlað er að hefja á ný viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði á Hringvegi (1) frá og með mánud...
13/08/2026

➡️ Áætlað er að hefja á ný viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði á Hringvegi (1) frá og með mánudeginum 17. ágúst, eins og til stóð þegar hlé var gert á þeirri vinnu vegna óhagstæðs veðurs í júní sl.

Meðan á framkvæmdum stendur þarf að loka fyrir umferð um brúna á virkum dögum frá kl. 8:00 á morgnana til kl. 19:00 á kvöldin. Opnað verður fyrir umferð fjórum sinnum á dag, klukkan:

09:45 – 10:15
12:00 – 13:00
14:45 – 15:15
16:45 – 17:15

Opið verður frá því að vinnu lýkur um kvöldmatarleytið og þar til vinna hefst á ný að morgni. Opið verður fyrir umferð um helgar.

Áætlað er að hefja á ný viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði á Hringvegi (1) frá og með mánudeginum 17. ágúst, eins og til stóð þegar hlé var gert á þeirri vinnu vegna óhagstæðs veðurs í júní sl.

11/08/2026
💡Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar s...
11/08/2026

💡Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar sem leyfður umferðarhraði er meiri en 60 km/klst. meðan almyrkvi á sólu gengur yfir á morgun, 12. ágúst. Þetta eru t.d. Ártúnsbrekka, Breiðholtsbraut, Hafnarfjarðarvegur, Miklabraut og Sæbraut.

💡Þar sem leyfður umferðarhraði er lægri en 60 km/klst., t.d. á Hringbraut í Reykjavík og Strandgötu í Hafnarfirði, verður slökkt á lýsingunni meðan sólmyrkvinn gengur yfir.

Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar sem leyfður umferðarhraði er meiri en 60 km/klst. meðan almyrkvi á sólu gengur yfir á morgun, 12. ágúst. Þetta eru t.d. Ártúnsbrekka, Breiðholtsbraut, ...

Á vef Vegagerðarinnar eru góðar upplýsingar á ensku um umferðarstýringu vegna almyrkvans, þann 12. ágúst. Það mætti gjar...
10/08/2026

Á vef Vegagerðarinnar eru góðar upplýsingar á ensku um umferðarstýringu vegna almyrkvans, þann 12. ágúst. Það mætti gjarnan láta erlenda ferðlanga vita af því.

The IRCA's web page provides detailed information on all temporary traffic control measures implemented due to the total eclipse on August 12th, read more:

A total solar eclipse is one of nature’s most spectacular phenomena. On August 12, 2026, a total eclipse will pass over the Arctic, Greenland, Iceland, Portugal, and Spain, while a partial eclipse will be visible across large parts of North America, Scandinavia, Europe, and West Africa.

🚧 Lokun Hringvegar um Hvolsvöll 🚧Hringvegur (1) um Hvolsvöll verður lokaður vegna endurnýjunar á stofnlögn hitaveitu fim...
10/08/2026

🚧 Lokun Hringvegar um Hvolsvöll 🚧

Hringvegur (1) um Hvolsvöll verður lokaður vegna endurnýjunar á stofnlögn hitaveitu fimmtudaginn 13. ágúst frá kl. 19:00 til kl. 07:00 næsta morgun.

🔀 Hjáleið verður eins og sjá má á meðfylgjandi mynd (ljósblá lína).

⚠️ Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og fylgja merkingum.

Vegna almyrkvans þann 12. ágúst nk. má búast við mikilli umferð víða á vestanverðu landinu, sérstaklega á þeim stöðum þa...
06/08/2026

Vegna almyrkvans þann 12. ágúst nk. má búast við mikilli umferð víða á vestanverðu landinu, sérstaklega á þeim stöðum þar sem myrkvinn stendur hvað lengst yfir.

Til að tryggja öryggi vegfarenda og greiða fyrir umferð verður tímabundin umferðarstýring á nokkrum vegum.

Umferðarstýring hefst almennt klukkan 8:00 að morgni 12. ágúst eða aðeins síðar og stendur fram yfir sólmyrkvann eftir því sem þörf krefur. Á flestum vegum verður um einstefnu að ræða sem mun snúast við eftir almyrkvann en á öðrum verða tímabundnar lokanir eða breytingar á akstursleiðum.

Einnig gæti komið til frekari umferðarstýringar eða lokana eftir því hvernig umferðin þróast þann 12. ágúst.

Ef miklar umferðartafir verða við Hvalfjarðargöng gæti þurft að loka þeim og beina umferð um Hvalfjörð.

Fólk sem hyggst ferðast er hvatt til að skipuleggja ferðir sínar tímanlega, kynna sér ferðaleið og áfangastað og dvelja lengur.

Sjá frétt:
https://www.vegagerdin.is/vegagerdin/starfsemi/frettir/umferdarstyring-vegna-almyrkvans-12-agust

Vegna almyrkvans sem verður sýnilegur á Íslandi 12. ágúst 2026 er búist við verulegri aukningu í umferð á ákveðnum svæðu...
04/08/2026

Vegna almyrkvans sem verður sýnilegur á Íslandi 12. ágúst 2026 er búist við verulegri aukningu í umferð á ákveðnum svæðum landsins.

Til að tryggja öryggi vegfarenda og greiða fyrir umferð verður gripið til tímabundinnar umferðarstýringar á nokkrum stöðum.

Umferðarstýringin hefst klukkan 8:00 þann 12. ágúst 2026 og stendur fram yfir atburðinn, eftir því sem þörf krefur.

Hér má finna mikilvægar upplýsingar um umferðarstýringu og lokanir.

Almyrkvi á sólu er ein stórfenglegasta sýning náttúrunnar. Þann 12. ágúst 2026 gengur almyrkvi yfir Norðurskautið, Grænland, Ísland, Portúgal og Spán, en deildarmyrkvi sést víða í Norður-Ameríku, Skandinavíu, Evrópu og Vestur-Afríku.

Address

Miðstöð: Suðurhraun 3
Garðabær
210

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vegagerðin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share