Ölfusárbrú - Hringvegur um Ölfusá

Ölfusárbrú - Hringvegur um Ölfusá Upplýsingasíða um framkvæmdir Vegagerðarinnar við verkið Hringvegur (1) um Ölfusá.

15/07/2026

Undirbúningur fyrir turn brúar í Efri-Laugardælaeyju

👷‍♂️Nú stendur yfir mikilvægur undirbúningur fyrir uppsetningu turns nýrrar Ölfusárbrúar í Efri-Laugardælaeyju.

🎥Í nýju myndbandi er rætt við Hjört Frey Jóhannsson verkefnastjóra hjá ÞG verktökum

13/07/2026

Framkvæmdir við nýja brú yfir Ölfusá ganga vel en í lok júní var verktaki um það bil hálfnaður með uppsetningu á bitum í brúna.

Í nýju myndbandi er rætt við Hjört Frey Jóhannsson, verkefnastjóra ÞG verktaka, og Höskuld Tryggvason, verkefnastjóra hjá Vegagerðinni, um stöðu framkvæmda.

Frétt um stöðu framkvæmda við Hringveg (1) um Ölfusá og nýjar myndir sem sýna hvernig verkinu vindur fram. Steypu nýrrar...
01/07/2026

Frétt um stöðu framkvæmda við Hringveg (1) um Ölfusá og nýjar myndir sem sýna hvernig verkinu vindur fram. Steypu nýrrar vegbrúar austan við Selfoss er lokið og samsetning stálbita nýrrar Ölfusárbrúar er á áætlun.

Framkvæmdir við Hringveg (1) um Ölfusá ganga vel. Steypu nýrrar vegbrúar austan við Selfoss er lokið og samsetning stálbita nýrrar Ölfusárbrúar er á áætlun.

Í nýju myndbandi sem fjallar um framkvæmdina við Hringveg (1) um Ölfusá eru meðal annars sýndar tölvugerðar teikningar a...
01/07/2026

Í nýju myndbandi sem fjallar um framkvæmdina við Hringveg (1) um Ölfusá eru meðal annars sýndar tölvugerðar teikningar af nýju brúnni yfir Ölfusá og grafísk kort sem sýna legu vegarins.

Framkvæmdin við Hringveg (1) um Ölfusá snýst um færslu Hringvegar (...

28/05/2026

Flóahreppur stóð fyrir fjölskyldugöngu miðvikudaginn 13. maí 2026 í tilefni af hátíðinni Fjör í Flóa. Hátt í 200 manns voru skráð í gönguna og tekið var á móti gestunum á framkvæmdasvæði Ölfusárbrúar. Farið var með hópinn í nokkrum hollum um svæðið, enda mikilvægt að tryggja öryggi allra með viðeigandi öryggisbúnaði. Höskuldur Tryggvason, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni, leiddi hópinn og sagði frá stöðu og framgangi verksins.

Vinna við uppstillingu fyrstu stálbitanna í Ölfusárbrú gengur vel en fyrstu bitarnir voru fluttir til landsins í apríl. ...
15/05/2026

Vinna við uppstillingu fyrstu stálbitanna í Ölfusárbrú gengur vel en fyrstu bitarnir voru fluttir til landsins í apríl. Von er á næsta skipi seinnipartinn í júní.

Vinna við uppstillingu fyrstu stálbitanna í Ölfusárbrú gengur vel en fyrstu stálbitarnir voru fluttir til landsins í apríl. Von er á næsta skipi með stálbitum seinnipartinn í júní. Bitarnir verða fluttir til Þorlákshafnar og þar með verða allir stálbitar í brúna komnir til l...

22/04/2026

Fyrsta skipið með stálbitum í Ölfusárbrú kom til Þorlákshafnar um páskana 2026. Skipið sigldi frá Gdansk en stálbitarnir eru framleiddir í verksmiðjum Norvik í Póllandi. Í þessari ferð kom um helmingur af þeim bitum sem notaðir verða í burðargrind nýju brúarinnar.

Fyrsta skipið með stálbitum í Ölfusárbrú kom til Þorlákshafnar um páskana. Skipið sigldi frá Gdansk en stálbitarnir eru ...
22/04/2026

Fyrsta skipið með stálbitum í Ölfusárbrú kom til Þorlákshafnar um páskana. Skipið sigldi frá Gdansk en stálbitarnir eru framleiddir í verksmiðjum Norvik í Póllandi. Í þessari ferð kom um helmingur af þeim bitum sem notaðir verða í burðargrind nýju brúarinnar. Í fréttinni má sjá skemmtilegt myndband af flutningi stálbitanna.

Fyrsta skipið með stálbitum í Ölfusárbrú kom til Þorlákshafnar um páskana. Skipið sigldi frá Gdansk en stálbitarnir eru framleiddir í verksmiðjum Norvik í Póllandi. Í þessari ferð kom um helmingur af þeim bitum sem notaðir verða í burðargrind nýju brúarinnar.

Fjallað var um framkvæmdir vegna nýrrar Ölfusárbrúar í fréttum Sýnar í gærkvöldi. Upptökuna má finna í meðfylgjandi frét...
10/02/2026

Fjallað var um framkvæmdir vegna nýrrar Ölfusárbrúar í fréttum Sýnar í gærkvöldi. Upptökuna má finna í meðfylgjandi frétt.

Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru í fullum gangi og hún farin að taka á sig mynd. Nýja brúin liggur austar en sú gamla sem liggur inn á Selfoss og er ætlunin að færa umferðina fjær þéttbýlinu. Gert er ráð fyrir að brúin verði til haustið 2028.

🛠️Framkvæmdir við byggingu Ölfusárbrúar ganga vel eins og sést á þessum myndum sem teknar voru 30. janúar síðastliðinn. ...
04/02/2026

🛠️Framkvæmdir við byggingu Ölfusárbrúar ganga vel eins og sést á þessum myndum sem teknar voru 30. janúar síðastliðinn.
🏗️Búið er að steypa undirstöður landstöpla Ölfusárbrúar og vinna hafin við uppslátt ofan á þær. Í Efri-Laugardælaeyju er búið að steypa þrifalag og verið að smíða uppslátt fyrir undirstöður turnsins sem mun rísa í eyjunni.
🌉Austan við Selfoss er unnið við byggingu vegbrúar sem reist verður yfir nýja hluta Hringvegarins. Þessa dagana er verið að vinna við uppslátt brúardekksins.
📸Myndir: Anton Brink

Address

Suðurhraun 3
Garðabær
210

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ölfusárbrú - Hringvegur um Ölfusá posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share