HSU Hornafjörður

HSU Hornafjörður Heilsugæslan á Hornafirði Heilbrigðisþjónusta

Kraftmiklir krakkar er lífstílsúrræði fyrir börn með offitu og fjölskyldur þeirra. Á heimasíðunni þeirra má finna alls k...
29/05/2026

Kraftmiklir krakkar er lífstílsúrræði fyrir börn með offitu og fjölskyldur þeirra. Á heimasíðunni þeirra má finna alls konar fróðleik um heilsusamlegar lífsvenjur sem allir geta tileinkað sér.

Fræðsluefni fyrir lækna og hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu um meðferð og ráðgjöf við offitu barna. Einnig upplýsingar fyrir foreldra og börn.

17/03/2026

ADHD ÖKUVOTTORÐ

Við viljum benda fólki með ADHD á að samkvæmt umferðalögum ber þeim að hafa meðferðis læknisvottorð og lyfjaskírteini sem staðfestir það að þau séu á meðferð vegna ADHD einkenna. Ef viðkomandi er ekki með þessi gögn meðferðis og amfetamin mælist í blóði, missir viðkomandi ökuleyfið.

Lyfjaskírteinið er aðgengilegt inni á island.is

Læknisvottorðið þarf að óska sérstaklega eftir hjá meðhöndlandi lækni / heilsugæslu.

Við viljum gjarnan útvega okkar skjólstæðingum þetta vottorð, við vitum að fólk með ADHD eru betri ökumenn á meðferð en án hennar og við viljum að sjálfsögðu ekki að fólk sé að missa ökuleyfið vegna svona formgalla, að vera ekki með pappírinn.

Þeir sem ekki eru með slíkt vottorð, eða vantar nýtt vottorð þar sem þeir hafa skipt um lyf síðan síðasta vottorð var gefið út, mega senda okkur fyrirspurn á heilsuveru eða hringja. Við munum svo vinna þetta eins fljótt og auðið er, innan fárra daga. Vottorðið verður sent í heilsuveru og rukkun í heimabanka.

Kveðja
Starfsfólk heilsugæslunnar á Höfn

16/03/2026
Fróðleiksmoli frá heilsugæslunni 😷Streptókokkahálsbólga:
26/02/2026

Fróðleiksmoli frá heilsugæslunni 😷
Streptókokkahálsbólga:

Það hefur komið upp sú staða að einhverjir hafa ekki fengið skilaboðin sem minna á bókaða tíma. Í ljós hefur komið að sí...
19/02/2026

Það hefur komið upp sú staða að einhverjir hafa ekki fengið skilaboðin sem minna á bókaða tíma. Í ljós hefur komið að símarnir hjá sumum merkja skilaboðin sem rusl og því skila þau sér ekki.
Við mælum með að þið athugið eftirfarandi í símanum ykkar:

1. Opnið Messages (Skilaboð).
2. Í efra hægra horninu veljið upphafsstafinn ykkar / prófílmynd.
3. Veljið “Rusl og bannlisti”.
4. Athugið hvort skilaboð frá okkur séu þar inni og veljið þau ef svo er.
5. Þá ætti að birtast valmöguleikinn „Ekki rusl“ – veljið hann.

Vonandi leysir þetta vandann og tryggir að skilaboðin berist rétt til ykkar framvegis.

Við í Lífstílsmóttökunni á Höfn viljum endilega benda fólki á þetta fjarnámskeið um þyngdarstjórnun og meðferð við því, ...
07/02/2026

Við í Lífstílsmóttökunni á Höfn viljum endilega benda fólki á þetta fjarnámskeið um þyngdarstjórnun og meðferð við því, sem er haldið af heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins.

Markmið þessa námskeiðs er að þátttakendur fái aðstoð við að byggja upp heilbrigða daglega lífshætti sem styðja við eðlilega þyngdarstjórn líkamans.

22/12/2025

Address

Víkurbraut 31
Höfn
780

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:00
Tuesday 08:00 - 15:00
Wednesday 08:00 - 15:00
Thursday 08:00 - 15:00
Friday 08:00 - 15:00

Telephone

+3544322900

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when HSU Hornafjörður posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to HSU Hornafjörður:

Shortcuts

Share