janúar 2020 með sameiningu Eyþings, Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga. Hlutverk SSNE er að vera samráðsvettvangur aðildarsveitarfélaganna og sinna hverjum þeim verkefnum sem sveitarfélögin eða löggjafinn kunna að fela þeim. Markmið samtakanna er að efla samvinnu sveitarfélaganna, gæta hagsmuna þeirra, styrkja byggð og mannlíf á starfssvæðinu öllu, atvinnulega, fél
agslega og menningarlega. með samstarfi við aðrar samstarfsstofnanir sveitarfélaga á starfssvæðinu. Þá starfa samtökin í nánum tengslum við ráðuneyti sveitarstjórnarmála, Samband íslenskra sveitarfélaga og önnur landshlutasamtök sveitarfélaga. Aðildarsveitarfélögin eru Akureyri, Norðurþing, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit og Langanesbyggð.