Lundinn

Lundinn Leit af fugli ársins árið 2021 er hafin! Lundinn er áitinn þjóðarfugl Íslands en er kominn á válista!

Fulgavernd stendur fyrir keppninni til að vekja athygli á málefnum fugla.
4.bekkur í Engidalsskóla tilnefndi lundann í keppnina.

Krakkarnir í 4 bekk í Engjó hafa staðið vaktina sem kosningastjórar lundans með stæl 👊🏼Skemmtilegt bréf frá þeim var les...
18/04/2021

Krakkarnir í 4 bekk í Engjó hafa staðið vaktina sem kosningastjórar lundans með stæl 👊🏼

Skemmtilegt bréf frá þeim var lesið upp í Samfélaginu á Rás 1 á föstudaginn!
Fyrir áhugasama má finn bréfið hér (upplestur hefst á mínútu 38:15):

https://www.ruv.is/utvarp/spila/samfelagid/23617/7hl5kd

Nú fer líka hver að verða síðastur til að kjósa fugl ársins! Það má gera hér:

https://fuglavernd.is/fugl-arsins/



Skondin staðreynd: Lundinn er afar félagslyndur en þó yfirleitt þögull fugl. Kurrandi hljóð má þó gjarnan heyra á varpstöðvum.

Krakkarnir í 4. bekk í Engjó vilja benda þér á að lundi frá Íslandi hefur vakið heims (jáviðsögðumHEIMS) - athygli fyrir...
15/04/2021

Krakkarnir í 4. bekk í Engjó vilja benda þér á að lundi frá Íslandi hefur vakið heims (jáviðsögðumHEIMS) - athygli fyrir það að nota ,,verkfæri".
Sjófuglar hafa ekki verið þekktir fyrir það áður, en þessi fiðraði félagi náðist á myndband við það að klóra sér í bringunni með priki!
Þvílíkur snillingur! 💡


Þú getur skellt þér núna inn á ➡️ fuglavernd.is og kosið þennan mikla meistara sem fugl ársins 2021

Fyrsti sjó­fugl heims sem náðist á mynd­band notast við verk­færi var ís­lenskur lundi frá Gríms­ey sem klóraði sér í bringunni með priki.

Vissir þú að um 40% allra lunda í heimi velja Ísland til koma unga sínum á legg? Við skiljum hann vel! hér er gott að ve...
14/04/2021

Vissir þú að um 40% allra lunda í heimi velja Ísland til koma unga sínum á legg?
Við skiljum hann vel! hér er gott að vera 🤍💙❤️
Það er ekki spurning að lundi á skilið heiðurinn að titlinum 'fugl ársins´ 2021!
Enn er hægt að kjósa á fuglavernd.is!

Augnayndið lundinn er mætt! Hann er gjarnan álitinn einkennisdýr Íslands, tökum vel á móti honum og kjósum
13/04/2021

Augnayndið lundinn er mætt!
Hann er gjarnan álitinn einkennisdýr Íslands, tökum vel á móti honum og kjósum

Lundinn er kominn til Borgarfjarðar eystra og sestur upp í Hafnarhólmann.

Nú er kosning um fugl ársins hafin og Lundinn þarfnast þín! Hægt er að kjósa hann á vef fuglaverndar:https://docs.google...
12/04/2021

Nú er kosning um fugl ársins hafin og Lundinn þarfnast þín!
Hægt er að kjósa hann á vef fuglaverndar:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfymxGatAh-bccCPJ3EqD4AgfQ4QOqOaKjD356VXHOCda-Isg/viewform

Endilega gefa sér tíma til að smella atkvæði í pottinn!

Hver af þessum 20 fuglum vilt þú að hljóti titilinn Fugl ársins 2021? Velja má allt að 5 fugla en hvern fugl aðeins einu sinni. Sjá nánar um kosningakerfið og talningu atkvæða á vefsíðunni fuglavernd.is/fugl-arsins. ATH. Ef þátttakendur hafa ekki eigið netfang má senda inn atkv....

Krakkarnir í 4. bekk í Engidalsskóla tilnefndu lunda sem fugl ársins 2021.Okkur finnst merkilegt að hann er fjölmennasti...
08/04/2021

Krakkarnir í 4. bekk í Engidalsskóla tilnefndu lunda sem fugl ársins 2021.

Okkur finnst merkilegt að hann er fjölmennasti fuglinn og líka að hann er álitinn nokkurs konar einkennisdýr Íslands.

Það skemmir ekki heldur fyrir að hann er einstaklega mikið augnayndi, og goggurinn er í miklu uppáhaldi hjá okkur.

Nú sáum við einnig að Fuglavernd hefur sett lundann á válista og hefur viljað vekja athygli á ágangi ferðamanna gagnvart honum og kjörlendi hans.

Við teljum að með því að nefna lunda sem fugl ársins 2021 verði enn meiri vitundarvakning gagnvart hættunni sem að honum steðjar!
-Auka umræða skapaðist í hópnum um að síðasta ár hafi þó kannski verið gott fyrir lundann og hann fengið frí frá ferðamönnum vegna covid-19 heimsfaraldursins.

Okkur finnst lundinn líka vera fjölhæfur, enda getur hann synt kafsund með vængjunum!
Að lokum, þá gerði útslagið frétt sem við fundum um lunda frá því í fyrra. Þar er fjallað um lunda á Íslandi sem náði heimsathygli fyrir að vera fyrsti sjófugl í heimi sem næst á myndband við að nota verkfæri. Hann notaði prik til að klóra sér í bringunni, en þessi tegund hefur áður ekki verið þekkt fyrir að nota tæki og tól.

Okkur finnst þetta afar athyglisvert, lundinn og hans heimahagar sérstaklega mikilvægir og vonumst eftir því að verði hann kosinn fugl ársins verði borin meiri virðing fyrir honum og hans lífsháttum í framtíðinni.

Address

Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lundinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Lundinn:

Share