Hafnarfjarðarbær

Hafnarfjarðarbær Hafnarfjörður er þriðji stærsti bær landsins, framsækið og fjölskylduvænt sveitarfélag

Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með um 30.000 íbúa og rúmlega 2000 einstaklinga við störf sem sinna fjölbreyttum verkefnum og þjónustu á um 70 starfsstöðvum víðs vegar um bæinn. Starfsfólk sem vinnur á sviði mennta og lýðheilsu, fjölskyldu- og barnamála, umhverfis- og skipulagsmála, þjónustu og þróunar, fjármála og við stjórnsýslu.

Áhersla er lögð á að hjá bænum starfi fó

lk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Allar upplýsingar um lausar stöður hjá sveitarfélaginu er að finna á ráðningarvef bæjarins á hafnarfjordur.is

Almyrkvinn 2026 í Hafnarfirði 😍Spennan. Gleðin. Stund sem ekki gleymist. Almyrkvinn 2026 var stórkostlegur. Nú njótum vi...
13/08/2026

Almyrkvinn 2026 í Hafnarfirði 😍

Spennan. Gleðin. Stund sem ekki gleymist. Almyrkvinn 2026 var stórkostlegur. Nú njótum við myndanna. Já, þær geyma minningar.

13/08/2026

Almyrkvi í Hafnarfirði ❤

Upplifunin stórkostleg. Stundin ómetanleg. Sjáið hvernig við hér í Hafnarfirði upplifðum almyrkvann sem við höfðum beðið eftir. Svo kom stundin. Svo fór stundin. Eftir situr minningin.

̈rður

Frístundamessa - svo börnin finni þá réttu!„Frístundir snúast ekki aðeins um hreyfingu. Þar eignast börn vini, læra samv...
13/08/2026

Frístundamessa - svo börnin finni þá réttu!

„Frístundir snúast ekki aðeins um hreyfingu. Þar eignast börn vini, læra samvinnu, takast á við áskoranir og upplifa gleðina sem fylgir því að tilheyra hópi,“ segir Tinna Rós Steinsdóttir, íþróttafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar.

Fjórtán hafnfirsk félög hafa skráð sig til leiks svo börnin okkar finni þá frístund sem hentar þeim best. Frístundamessa verður haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 29. ágúst milli kl. 10-14.

Komdu að leika, komdu að leika 👏

Sjá frétt 👉 https://hfj.is/a2fu7i

̈rður

Takk allir sem mættu í ljúfa göngu um upplandið okkar fagra í gær🚶‍♀️🚶Harpa Gústavsdóttir leiddi góðan hóp í notalega kv...
13/08/2026

Takk allir sem mættu í ljúfa göngu um upplandið okkar fagra í gær🚶‍♀️🚶

Harpa Gústavsdóttir leiddi góðan hóp í notalega kvöldgöngu hringinn í kringum Stórhöfða, sunnan við Hvaleyrarvatn, í gærkvöldi. Þátttakendur fengu léttan fróðleik um svæðið og nutu góðrar samveru og útsýnisins á leiðinni 🌱

Yfirlit yfir göngur sumarsins 👉 https://hfj.is/gongur

Opnunarhátíð Bókasafns Hafnarfjarðar ❤Já, nú skrifum við nýjan kafla í sögu bókasafnsins okkar. Það opnar dyrnar fyrir o...
12/08/2026

Opnunarhátíð Bókasafns Hafnarfjarðar ❤

Já, nú skrifum við nýjan kafla í sögu bókasafnsins okkar. Það opnar dyrnar fyrir okkur öllum á nýja staðnum sínum í Firði. Gunni Helga verður með upplestur á þessari opnunarhátíð. Listasmiðja fyrir börnin okkar. Við hittumst og fögnum þessu saman milli kl. 16-18 á morgun, fimmtudaginn 13. ágúst.

Komið og kíkið. Þetta er staðurinn þar sem hjarta slær sem hæst hér í Hafnarfirði 🥳

Sjá 👉 https://hfj.is/jd0qjs

Bókasafn Hafnarfjarðar ̈rður

Bæjarstjórnarfundur í beinni 👏Þjóðaratkvæðagreiðsla og fleira verða á bæjarstjórnarfundi sem hefst núna kl. 10. Já, þett...
12/08/2026

Bæjarstjórnarfundur í beinni 👏

Þjóðaratkvæðagreiðsla og fleira verða á bæjarstjórnarfundi sem hefst núna kl. 10. Já, þetta er óvanalegur tími - allt því það er einstakur dagur. Almyrkvadagurinn mikli.

Sjá dagskrá 👉 hfj.is/zstuuj
Sjá streymi 👉 hfj.is/iomlq4

⚽💙  Brúin að íþróttum og tækifærum 👌Í haust hefst verkefnið Brúin að íþróttum, þar sem um sextíu börn af erlendum upprun...
12/08/2026

⚽💙 Brúin að íþróttum og tækifærum 👌

Í haust hefst verkefnið Brúin að íþróttum, þar sem um sextíu börn af erlendum uppruna úr Skarðshlíðarskóla, Hraunvallaskóla og Hvaleyrarskóla fá að kynnast íþróttastarfi Hauka. Markmiðið er að auðvelda börnunum að stíga sín fyrstu skref í íþróttum, efla þátttöku, skapa ný tengsl og styrkja íslenskt málumhverfi. Börnin fá að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar og finna vonandi þá sem kveikir áhuga og gleði 🙏

💙 Menntasjóður Hafnarfjarðar styður við hugmyndir sem efla velferð, nýsköpun og öflugt skólastarf fyrir börn bæjarins 💙

Sjá 👉 https://hfj.is/z8m3s9

💚💛🧡 Stolt og hýr í miðborginni 💜💙Við hýrir Hafnfirðingar tókum okkur vel út í gleðigöngunni í ár. Stóðum stolt fyrir því...
11/08/2026

💚💛🧡 Stolt og hýr í miðborginni 💜💙

Við hýrir Hafnfirðingar tókum okkur vel út í gleðigöngunni í ár. Stóðum stolt fyrir því sem einkennir okkur. Dansandi álfar og víkingar drógu athyglina að gleðinni sem einkenndi gönguna. Sjáið bara og komið svo með að ári.

Já, þessi ganga er svo mikilvæg. Göngum í takt, hvert með sínum hætti 🫶

Almyrkvaævintýri á Víðistaðatúni 😍Já, það er misjafnt hvernig við Hafnfirðingar verjum almyrkvamínútunni. 7.000 manns ve...
11/08/2026

Almyrkvaævintýri á Víðistaðatúni 😍

Já, það er misjafnt hvernig við Hafnfirðingar verjum almyrkvamínútunni. 7.000 manns verða á Víðistaðatúni þegar stórstjarnan Björk þeytir skífum. Undirbúningur hefur staðið yfir síðustu daga og stendur nú sem hæst. 🫶 Vá, vá. Þetta verður veisla.

Munum svo risasólmyrkvagleraugun á Hamrinum og við Keili. Svo má fá gleraugu í þjónustuveri, söfnum og í Ásvallalaug. Veðrið leikur sitt hlutverk - En upplifunin stórkostleg óháð spánni.😘

Sjáðu almyrkvafrétt 👉 https://hfj.is/83b69x

Address

Strandgata 6
Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545855500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hafnarfjarðarbær posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share