Samfylkingin í Hafnarfirði

Samfylkingin í Hafnarfirði XS - Sterkari saman!

Líflegur fundur um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður 🇮🇸🇪🇺Gríðarlega vel var mætt á opinn fund Samfylkingarinnar í...
18/08/2026

Líflegur fundur um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður 🇮🇸🇪🇺

Gríðarlega vel var mætt á opinn fund Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í gær sem fjallaði um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst nk. um hvort hefja eigi aðildarviðræður við ESB á nýjan leik. 🌹

Elín Anna Baldursdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði stýrði fundinum og þingmenn Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir fluttu stutt erindi í upphafi þar sem þau lýstu sinni sýn á málið. Í máli sínu gerðu þau góða grein fyrir því af hverju þau styðja það að aðildarviðræður við ESB verði teknar upp á nýjan leik og fóru yfir helstu ástæður þess að þau telja mikilvægt að aðild að ESB verði skoðuð til hlítar og aðildarsamningur borinn upp fyrir þjóðina í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. 🗳

Að loknum erindum þeirra var opnað fyrir umræður og spurningar frá fundarmönnum. Gríðarlega líflegar umræður sköpuðust í kjölfar erinda Ásu Berglindar og Dags og ljóst að fólk er mjög áhugasamt um þjóðaratkvæðagreiðsluna framundan og ýmis sjónarmið tengd henni og aðildarviðræðum við ESB komu fram á fundinum. 🗣

Samfylkingin í Hafnarfirði þakkar þeim Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur og Degi B. Eggertssyni kærlega fyrir komuna á Strandgötuna í gær sem og fyrir þeirra upplýsandi og upplífgandi erindi. Og við þökkum einnig þeim fjölmörgun gestum sem lögðu leið sína til okkar gær kærlega fyrir komuna. 🤝🌹

🗣🌹Elín Anna Baldursdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar sat sinn fyrsta bæjarstjórnarfund fyrir hönd flokksins í ...
12/08/2026

🗣🌹Elín Anna Baldursdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar sat sinn fyrsta bæjarstjórnarfund fyrir hönd flokksins í dag. Hún flutti jómfrúarræðuna í bæjarstjórn við það tækifæri. Í ræðu sinni fjallaði hún um mikilvægi íbúalýðræðis og þátttökustjórnmála. Hún minnti á að lýðræðið snúist ekki bara um kosningar á fjögurra ára fresti heldur einnig um leiðir fyrir íbúa til að skoðunum sínum á framfæri og hafa með virkum hætti áhrif á ákvarðanatöku á milli kosninga. Fram kom hjá Elínu Önnu að hægt sé að stuðla að því með virku samráði við kjósendur sem og með íbúakosningum í stórum málum sem varða samfélagið. Í því sambandi minnti hún á að reynslan af íbúakosningum væri afar jákvæð í Hafnarfirði þegar leitað var til kjósenda í bænum til að taka ákvörðun um stækkun Álversins í Straumsvík á sínum tíma. Sú reynsla sýni einmitt að það sé engin hætta fólgin í því að leita til kjósenda í afdrifaríkum og flóknum málum. Kjósendur taki því fagnandi og engin hætta á því að slíkt leiði til upplausnar og sundrungar í samfélaginu. Heldur þvert á móti styrki það lýðræðið. 👏🌹

Við óskum Elínu Önnu til hamingju með jómfrúarræðuna í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. 👏🌹

Ríkisstjórn sem lætur verkin tala 💪👏🌹
19/06/2026

Ríkisstjórn sem lætur verkin tala 💪👏🌹

Verkin tala 🌹
Í vetur höfum við klárað fjölda mála sem styrkja Ísland allt 🇮🇸

• Ný samgönguáætlun: Stóraukið viðhald vega, stofnun innviðafélags og byrjað aftur að bora jarðgöng 2027
• Lægri raforkureikningur í dreifbýli, árangur í orkumálum og framkvæmdir um land allt
• Strangari löggjöf um vindorku og tvær nýjar rammaáætlanir
• Hallalaus fjárlög 2027 í fyrsta sinn í tæpan áratug með nýrri fjármálaáætlun
• 15% fækkun ríkisstofnana á kjörtímabilinu
• Fyrsta atvinnustefna Íslands til að auka framleiðni eftir 0% hagvöxt á mann frá 2018
• Stórfelld uppstokkun á eftirlitsumhverfi fyrirtækja
• Afnám auglýsingaskyldu í 104 flokkum atvinnustarfsemi og afnám jafnlaunavottunar
• Fjögur lagafrumvörp samþykkt til að ná styrkari stjórn á útlendingamálum
• Hertar reglur um Airbnb og minni skattahvatar til að safna íbúðum
• Samningar um íbúðauppbyggingu á ríkislóðum og 10 ára skattfrjáls séreignarsparnaður inn á höfuðstól
• Hlutdeildarlánakerfi sem virkar, hækkun á stofnframlögum til almennra íbúða og betri húsaleigulög með takmörkunum á hækkun leiguverðs
• Lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
• Lífeyrir fylgir launum, aldursviðbót öryrkja helst ævilangt og hærra frítekjumark eldra fólks
• Betra fæðingarorlof, hærra þak og ný lög um að hækkanir gangi til allra foreldra í orlofi
• Ný þjóðarhöll í framkvæmd, viðbygging við Þjóðleikhúsið fjármögnuð og framtíðarheimili Listaháskólans fundið í Stakkahlíð
• Stækkun Sjúkrahússins á Akureyri hafin, stórfjölgun hjúkrunarrýma og létt á bráðamóttöku
• Langtímasamningar við Ljósið og SÁÁ og styttri bið eftir meðferð og sálfræðiþjónustu
• Styrking háskólastigs og STEM-greina og byggt við fjóra verknámsskóla á kjörtímabilinu
• Lög um símafrí í grunnskólum og skýrara námsmat
• Hærri framfærsla og hærra frítekjumark hjá Menntasjóði námsmanna
• Lækkun á dælunni og verðið vaktað
• Þjóðinni treyst til að kjósa um framhald aðildarviðræðna við ESB

Og svo mætti áfram telja.

Takk fyrir stuðninginn og áfram gakk! 🏃🏃‍♀

"Farsæld barna verður ekki til í starfshópum eða með verklagsreglum einum og sér.  Hún verður til þegar barn fær rétta h...
16/06/2026

"Farsæld barna verður ekki til í starfshópum eða með verklagsreglum einum og sér. Hún verður til þegar barn fær rétta hjálp á réttum tíma. Metnaðarfull markmið duga skammt ef þjónustan og úrræðin fylgja ekki með. Það er stóra verkefnið sem enn bíður okkar ef markmið farsældarlaganna eiga að verða að veruleika." 👥📋

Elín Anna Baldursdóttir, varabæjarfulltrúi og fulltrúi Samfylkingarinnar í fræðsluráði, skrifar um innleiðingu farsældarlaga og mikilvægi þess að fjölga úrræðum, stytta biðlista og efla þjónustu við börn. ✍️🌹

Grein í fyrstu aths. 👇

👥Vel var mætt á opinn bæjarmálafund Samfylkingarinnar í kvöld um aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025 – 2040. 📍Tillaga að nýj...
15/06/2026

👥Vel var mætt á opinn bæjarmálafund Samfylkingarinnar í kvöld um aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025 – 2040.

📍Tillaga að nýju aðalskipulagi er í auglýsingar- og athugasemdaferli og hægt er að gera athugasemdir við tillöguna til 18. júní nk. á vef Skipulagsstofnunar.

🗣️Stefán Már Gunnlaugsson, varabæjarfulltrúi og fulltrúi Samfylkingarinnar í skipulags- og byggingaráði var frummælandi á fundinum og gerði grein fyrir fyrirliggjandi tillögu að nýju aðalskipulagi og helstu áhersluatriðum í henni.

💬Líflegar umræður sköpuðust á fundinum um aðalskipulagstillöguna og einstaka þætti hennar.

🙏Við þökkum fólki kærlega fyrir komuna á fundinn og fyrir málefnalegar og gagnlegar umræður.

🌹🌹

"Við getum flest verið sammála um markmiðið. Við viljum öll skóla þar sem börn fá tækifæri til að læra, dafna og njóta s...
09/06/2026

"Við getum flest verið sammála um markmiðið. Við viljum öll skóla þar sem börn fá tækifæri til að læra, dafna og njóta sín. Leiðin þangað verður ekki fundin með því að halda áfram sömu umræðum og undanfarin ár. Hún krefst þess að við forgangsröðum, endurhugsum og vinnum saman. 👩‍🏫

Bíllinn er fastur í skaflinum. Spurningin snýst ekki lengur um hvernig hann festist heldur hvort við séum tilbúin að vinna saman að því að losa hann." 🤝

Elín Anna Baldursdóttir, sálfræðingur, varabæjarfulltrúi og fulltrúi Samfylkingarinnar í fræðsluráði, skrifar um mikilvægi lausnamiðaðrar nálgunar í umræðu um skólamál. Í stað þess að leita sökudólga eigum við að ræða lausnir sem byggja á samvinnu ríkis, sveitarfélaga, skóla, foreldra og fagfólks. 🌹

Grein í fyrstu aths. 👇

Address

Strandgata 43
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samfylkingin í Hafnarfirði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Samfylkingin í Hafnarfirði:

Shortcuts

Share