Ráðgjafar- og greiningarstöð

Ráðgjafar- og greiningarstöð Facebook síða RGR er vettvangur stofnunarinnar til að miðla upplýsingum um námskeið og fleira í starfsemi RGR.

Síðan er ekki ætluð til umræðu um einstaklingsmál eða faglegar áherslur. Ráðgjafar- og greiningarstöð býður upp á margvísleg fræðslunámskeið sem tengjast öðruvísi taugaþroska og fötlunum barna. Einnig eru í boði sérhönnuð námskeið fyrir skóla, leikskóla, sveitarfélög eða aðra áhugasama sem er hægt að bóka sérstaklega. Frá því að stofnunin tók til starfa hefur á hverju vori verið haldin ráðstefna s

em er stærsti faglegi vettvangur þeirra sem tengjast börnum með öðruvísi. Vorráðstefnan er í maí á hverju ári og upplýsingar má nálgast á vef Ráðgjafar- og greiningarstöðvar www.rgr.is

Fræðslusvið Ráðgjafar- og greiningarstöðvar skipuleggur einnig aðrar stórar ráðstefnur í samvinnu við stofnanir eða samtök þ.m.t. ráðstefnur með erlendum fyrirlesurum og þátttakendum.

Það er enn tækifæri til að sækja um!Við hvetjum þroskaþjálfa til að kynna sér starfið hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð.U...
13/08/2026

Það er enn tækifæri til að sækja um!

Við hvetjum þroskaþjálfa til að kynna sér starfið hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð.

Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst.

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings við Mat á stuðningsþörf. Leitað er að sérfræðingi sem hefur brennandi áhuga á að

Námskeiðið Biðtíminn – frá frumgreiningu að athugunarferli á RGR verður haldið 18. ágúst kl. 13:00–15:30 á Teams.Á námsk...
12/08/2026

Námskeiðið Biðtíminn – frá frumgreiningu að athugunarferli á RGR verður haldið 18. ágúst kl. 13:00–15:30 á Teams.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
• hvað þarf til að vísa barni á RGR
• aðferðir sem hægt er að nýta í vinnu með barni frá frumgreiningu að athugunarferli
• hvaða gögn og upplýsingar þurfa að berast frá leik- og grunnskóla fyrir athugun á RGR

Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar í leikskólum og á yngsta stigi grunnskóla.

👉 Skráning á www.rgr.is

Húsnæði Ráðgjafar- og greiningarstöðvar að Dalshrauni 1b, Hafnarfirði, er lokað vegna óviðráðanlegra aðstæðna um óákveði...
07/08/2026

Húsnæði Ráðgjafar- og greiningarstöðvar að Dalshrauni 1b, Hafnarfirði, er lokað vegna óviðráðanlegra aðstæðna um óákveðinn tíma.

Skiptiborð stofnunarinnar er opið eins og vanalega en einnig má senda erindi á netfang stofnunarinnar [email protected].

📣 Ráðgjafar- og greiningarstöð leitar að þroskaþjálfa/SIS-sérfræðingi í 80–100% starf.Umsóknarfrestur er til og með 17. ...
05/08/2026

📣 Ráðgjafar- og greiningarstöð leitar að þroskaþjálfa/SIS-sérfræðingi í 80–100% starf.

Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2026.

Nánari upplýsingar í hlekknum hér fyrir neðan 👇

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings við Mat á stuðningsþörf. Leitað er að sérfræðingi sem hefur brennandi áhuga á að

Sumarlokun RGR
09/07/2026

Sumarlokun RGR

Ráðgjafar- og greiningarstöð er lokuð frá 6.júlí og opnum við aftur 4.ágúst kl. 10:00.

Einstakt tækifæri – höfundar námsefnisins Relationships Decoded koma til Íslands ✨Ráðgjafar- og greiningarstöð býður upp...
02/07/2026

Einstakt tækifæri – höfundar námsefnisins Relationships Decoded koma til Íslands ✨

Ráðgjafar- og greiningarstöð býður upp á kynningu og þjálfun vegna námsefnisins Relationships Decoded for Adolescents, eða Sambönd og samskipti fyrir ungmenni.

Um er að ræða glænýtt gagnreynt kennsluefni um sambönd og samskipti ætlað ungmennum með öðruvísi taugaþroska frá 12 ára aldri.

Relationships Decoded for Adolescents fjallar um sambönd, samskipti, mörk, samþykki, öryggi, netnotkun og félagslega færni ungmenna. Efnið er þróað sérstaklega fyrir ungmenni og miðar að því að styðja þau við að skilja betur ólíkar tegundir samskipta og sambanda, bera kennsl á heilbrigð og óheilbrigð samskipti og öðlast aukið öryggi í félagslegum aðstæðum.

Námsefnið Sambönd og samskipti (Relationships Decoded) fyrir fullorðna hefur þegar verið þýtt á íslensku og er aðgengilegt á vef MMS. Nú hafa höfundar þess efnis búið til sambærilegt námsefni fyrir ungmenni og undirbúningur að íslenskri þýðingu er hafinn.

Af þessu tilefni koma höfundar námsefnisins til Íslands og kynna efnið beint fyrir fagfólki, aðstandendum og öðrum sem koma að stuðningi, fræðslu eða þjónustu við ungmenni með öðruvísi taugaþroska.

📍 5. október: Kynning á efninu.
Kynningin er ætluð fagfólki, aðstandendum og öðrum áhugasömum sem vilja kynna sér námsefnið og fræðilegan grunn þess.

📍 6. október: Þjálfunardagur fyrir fagfólk.
Þjálfunardagurinn er ætlaður fagfólki sem kemur til með að nota námsefnið í beinni kennslu, fræðslu eða þjálfun með ungmennum.

⚠️ Takmarkað sætaframboð er í boði.

👉 Nánari upplýsingar og tengill á skráningu má finna í athugasemdum.

Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur gefið út nýjar leiðbeiningar um greiningu einhverfu samkvæmt ICD-11 og skráningu með ...
01/07/2026

Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur gefið út nýjar leiðbeiningar um greiningu einhverfu samkvæmt ICD-11 og skráningu með ICD-10 kóðum.

Leiðbeiningarnar eru hluti af uppfærðu og samræmdu verklagi við greiningu einhverfu á Íslandi.

Fréttina og leiðbeiningarnar má nálgast hér að neðan 👇

Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur gefið út Leiðbeiningar um greiningu einhverfu samkvæmt ICD-11 og skráningu með ICD-10 kóðum. Leiðbeiningarnar eru hluti

Námskeiðsdagskrá haustannar 2026 er komin á vefinn.Fjölbreytt námskeið fyrir aðstandendur, fagfólk og aðra sem starfa me...
26/05/2026

Námskeiðsdagskrá haustannar 2026 er komin á vefinn.

Fjölbreytt námskeið fyrir aðstandendur, fagfólk og aðra sem starfa með börnum og ungmennum með öðruvísi taugaþroska og/eða fatlanir sem geta leitt til áskorana í daglegu lífi.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur á næstu önn!

Skráning og nánari upplýsingar:
www.rgr.is

21/05/2026

Vorráðstefna 2026 💛

Takk fyrir tvo innihaldsríka daga um þátttöku og framtíð fatlaðra barna. Rúmlega 500 manns tóku þátt á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi.

Við erum þakklát fyrir þátttökuna, samtalið, innblásturinn og alla sem komu að ráðstefnunni með okkur.

Saman sköpum við tækifæri 💛

Hin árlega vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar fór fram dagana 7. og 8. maí á Hilton Reykjavík Nordica og í str...
12/05/2026

Hin árlega vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar fór fram dagana 7. og 8. maí á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi. Í ár var ráðstefnan haldin í samstarfi við Gló Æfingastöð undir yfirskriftinni Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna.

Tæplega 510 manns tóku þátt í ráðstefnunni, bæði í sal og í streymi. Ráðstefnan er einn stærsti vettvangur þeirra sem starfa með fötluðum börnum og ungmennum og skapar mikilvægt samtal um viðhorf, þjónustu og framtíð fatlaðra barna.

Á ráðstefnunni var sjónum beint að því að horfa á það sem barnið getur gert í stað þess að einblína eingöngu á áskoranir og frávik. Þar voru meðal annars F-orðin fyrir þroska barna í brennidepli: Færni, Fjölskylda, Form, Vinir/Félagar, Fjör og Framtíð. Þau minna á mikilvægi þess að færa áherslu frá takmörkunum yfir í styrkleika, færni, þátttöku og lífsgæði barna.

Einnig var fjallað um hvernig samfélagið, þjónustukerfi, skólar, tómstundir og nærumhverfi barna geta skapað raunveruleg tækifæri til þátttöku í daglegu lífi. Rauði þráðurinn var að þátttaka fatlaðra barna er ekki aðeins einstaklingsbundið viðfangsefni heldur sameiginleg ábyrgð samfélagsins.

Dagskráin var fjölbreytt og dró fram ólík sjónarhorn, bæði fræðileg og byggð á lifaðri reynslu. Í erindum og samtölum ráðstefnunnar var lögð áhersla á að horfa til styrkleika barna, aðstæðna þeirra og þeirra tækifæra sem samfélagið skapar. Umræðan undirstrikaði mikilvægi þess að hlusta á raddir barna, ungmenna og fjölskyldna og þróa þjónustu sem styður við þátttöku, lífsgæði og framtíðarsýn.

Ráðstefnunni lauk með áhrifamiklum hætti og ljóst var að viðfangsefnið snerti þátttakendur djúpt. Eftir stóð sterk áminning um að tækifæri til þátttöku eiga ekki að vera háð tilviljunum, heldur þurfa þau að vera hluti af því hvernig við skipuleggjum þjónustu, skóla, tómstundir og samfélag.

Ráðgjafar- og greiningarstöð þakkar Gló Æfingastöð kærlega fyrir gott og gefandi samstarf við undirbúning og framkvæmd ráðstefnunnar. Samstarfið er sprottið úr sameiginlegum vilja til að halda áfram að bæta þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra og stuðla að inngildandi samfélagi.

Einnig færum við fyrirlesurum, fundarstjórum, þátttakendum og öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum við að gera ráðstefnuna að veruleika bestu þakkir.

Breytingar verða ekki til í einu kerfi, einni stofnun eða einni fagstétt. Þær verða til þegar fólk kemur saman, deilir þekkingu, hlustar hvert á annað og stefnir í sömu átt.

Address

Dalshraun 1b
Hafnarfjörður
220

Telephone

+3545108400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ráðgjafar- og greiningarstöð posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Ráðgjafar- og greiningarstöð:

Shortcuts

Share