Landgræðslan

Landgræðslan Landgræðslan er þekkingar- og þjónustustofnun. Velkomin á Facebook síðu Landgræðslunnar. Hver sá sem skrifar ummæli eða athugasemd gerir það á eigin ábyrgð.

Markmið hennar eru að vernda, endurheimta og bæta þær auðlindir þjóðarinnar sem fólgnar eru í gróðri og jarðvegi og tryggja sjálfbæra nýtingu lands. Við fögnum allri umræðu á síðunni okkar en áskiljum okkur rétt til að fjarlægja efni sem er meiðandi eða óviðeigandi á annan hátt.

Ítarlegri upplýsingar um starfsemi okkar er að finna á www.land.is

Ummæli eða athugasemdir sem falla ekki að skilyrðu

m Facebook (www.facebook.com/terms.php?ref=pf), fela í sér meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa eða hvatningu til refsiverðrar háttsemi verða fjarlægð af síðunni. Vinsamlega athugið að Landgræðslan fylgist ekki með þessari síðu (eða athugasemdum sem settar eru á hana) allan sólarhringinn. Svör við spurningum eða ábendingum kalla oftar en ekki á nánari skoðun. Því er ekki unnt að tryggja að spurningum á síðunni verði svarað strax. Hægt er að svara einföldum, almennum fyrirspurnum hér á síðunni. Persónulegar fyrirspurnir og formleg erindi skulu send á netfangið [email protected]. Vinsamlega athugið að Facebook er ekki rétti staðurinn til að setja inn upplýsingar um persónuleg málefni þess sem skrifar eða annarra, eða kvartanir vegna starfa tiltekinna starfsmanna Landgræðslunnar.

- Komum fram við aðra eins og við viljum að aðrir komi fram við okkur.
- Sýnum kurteisi og gætum vel að orðalagi.
- Verum málefnaleg og látum umræðuna snúast um staðreyndir, ekki persónur.

Landgræðslan hefur nú lokið hlutverki sínu og þakkar samstarf síðustu 116 ára. Ný sameinuð stofnun, Land og skógur, hefu...
05/01/2024

Landgræðslan hefur nú lokið hlutverki sínu og þakkar samstarf síðustu 116 ára. Ný sameinuð stofnun, Land og skógur, hefur nú tekið til starfa og mun sinna hlutverkum og skuldbindingum Landgræðslunnar og Skógræktarinnar.

Sett hefur verið upp Facebook-síða Lands og skógar og hvetjum við alla fylgjendur síðu eldri stofnananna tveggja til að gerast fylgjendur Lands og skógar á Facebook. Þar verða nú tíðindi um öll þau málefni sem hinni nýju stofnun hafa verið falin og snerta gróður- og jarðvegsauðlindir Íslands.

Sjáumst kát í Landi og skógi.

Gleðileg jól!Landgræðslan óskar ykkur öllum, kæru Facebook fylgjendur, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.Við kv...
24/12/2023

Gleðileg jól!

Landgræðslan óskar ykkur öllum, kæru Facebook fylgjendur, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Við kveðjum árið sem er að líða með stolti og erum ánægð með þann árangur sem náðst hefur. Unnið var að fjölbreyttum verkefnum með mörgum mismunandi samstarfsaðilum, allt frá þátttöku í alþjóðlegum ráðstefnum til söfnunar birkifræja.

Nú bíða spennandi en jafnframt krefjandi verkefni á komandi ári þegar Landgræðslan og Skógræktin sameinast í nýja stofnun undir heitinu Land og skógur.

Gleðileg jól og vistvænt nýtt ár!

Vistkerfi á COP28? 🌿🪱🍄Fá vistkerfi eitthvað pláss á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna? Stutta svarið er sem betur fe...
07/12/2023

Vistkerfi á COP28? 🌿🪱🍄

Fá vistkerfi eitthvað pláss á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna?

Stutta svarið er sem betur fer já, en erfiðara er að segja til um hvort þau fái nóg pláss.

Dæmi um umræðu um viskterfi í samhengi við loftslagsmál sem mun fara fram á COP28 er þessi viðburður sem ber heitið ,,Náttúrumiðaðar lausnir við þríþætta neyðarástandinu’’. Hér munu s*x aðilar úr mismunandi áttum ræða um hvernig vernd og endurheimt vistkerfa getur skilað árangri í baráttunni gegn loftslagsvánni, hnignun líffræðilegrar fjölbreytni og mengun.

Meðal þátttakenda í viðburðinum er Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor í vistfræði við Háskóla Íslands.

Viðburðurinn verður haldinn 9. desember n.k. kl. 09:30-10:45 og hægt verður að fylgjast með viðburðinum í beinu streymi frá COP28 hér:

Welcome to the Nordic Co-operation Nordic Pavilion, Blue zone, Opportunity petal, OA13-G3, Expo City, Dubai

Moldin í mýrinni 🌱💧Í tilefni af Alþjóðadegi jarðvegs er gaman að rifja upp þá staðreynd að mold mýra geymir um 30% þess ...
05/12/2023

Moldin í mýrinni 🌱💧

Í tilefni af Alþjóðadegi jarðvegs er gaman að rifja upp þá staðreynd að mold mýra geymir um 30% þess kolefnis sem finnst í vistkerfum heims þrátt fyrir að þekja aðeins um 3% lands á jörðinni.

En hvernig myndast mold mýranna og af hverju geymir hún svona mikið kolefni?

Þessari spurningu svaraði Sunna Áskelsdóttir, sérfræðingur, í nýlegri grein sinni í Bændablaðinu.

Greinina má lesa hér:

Mold mýra gengur undir ýmsum nöfnum s.s., mójörð, mómold, lífrænn jarðvegur eða einfaldlega mór. Mold mýranna er merkileg fyrir margra hluta sakir. Hún geymir 30% þess kolefnis sem finnst í vistkerfum heims þrátt fyrir að þekja aðeins um 3% lands á jörðinni. En hvernig myndas...

Gleðilegan Alþjóðadag jarðvegs! 💧🪱🟤♻️ Í dag er Alþjóðadagur jarðvegs og viljum við af því tilefni fagna öllu því sem hei...
05/12/2023

Gleðilegan Alþjóðadag jarðvegs! 💧🪱🟤♻️

Í dag er Alþjóðadagur jarðvegs og viljum við af því tilefni fagna öllu því sem heilbrigður jarðvegur færir okkur. Þema ársins í ár er:
jarðvegur og vatn, uppspretta lífs.

Heilbrigður jarðvegur og hreint vatn er undirstaða mikilvægra vistkerfa, matvælaframleiðslu og vellíðan mannfólks. Hlutverk þeirra er ómetanlegt og verður að vernda og viðhalda svo komandi kynslóðir njóti þess öryggis sem þær auðlindir veita okkur í dag.

Vernd jarðvegs felur í sér vernd vatnshringrásarinnar. 💧♻️

Sérstakt átak birkifrætínslu í Vesturbyggð! 🍂 Framboð birkifræs hefur verið takmarkað á flestum svæðum landsins í ár. Ve...
17/11/2023

Sérstakt átak birkifrætínslu í Vesturbyggð! 🍂

Framboð birkifræs hefur verið takmarkað á flestum svæðum landsins í ár. Vesturbyggð er þar undanskilin og því hefur verið blásið til átaks í birkifrætínslu á þremur stöðum í Vesturbyggð á morgun, laugardaginn 18. nóv.

Kl. 11:00 ætla Bíldælingar og nærsveitungar að koma saman á útsýnispallinum á varnargarðinum og njóta fræðslu og tína fræ.

Kl. 13:00 hefst dagskráin í Tálknafirði og

kl. 15:00 á Patreksfirði.

Við hvetjum öll til að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni og njóta útivistarinnar.

Nánari upplýsingar má finna í fréttinni hér að neðan 👇

Landsverkefnið „Söfnum og sáum" kallar eftir fræjum. Framboð birkifræs hefur verið takmarkað í ár að undanskyldri Vesturbyggð.

Birkivistkerfi og endurheimt þeirra🌿✨Kristín Svavarsdóttir, vistfræðingur hjá Landgræðslunni, skrifaði nýlega grein í Bæ...
16/11/2023

Birkivistkerfi og endurheimt þeirra🌿✨

Kristín Svavarsdóttir, vistfræðingur hjá Landgræðslunni, skrifaði nýlega grein í Bændablaðið um mikilvægi birkivistkerfa og endurheimt þeirra.

Þar fjallar Kristín um sögu birkivistkerfa á Íslandi frá síðustu ísöld en birki er eina innlenda trjátegundin sem myndað hefur skóga á Íslandi frá lokum síðustu ísaldar. Birkiskógar eru því einu náttúrulegu skógarnir hér á landi og njóta þeir sérstakrar verndar í lögum um náttúruvernd. Nú er þekja þeirra einungis um 1,5% landsins.

Greinin fjallar einnig um rannsóknaverkefnið BirkiVist sem stuðlar að því að endurheimt birkivistkerfa sé byggð á bestu fáanlegu þekkingu.

Fræðist meira um áhugaverða sögu birkivistkerfa og áætlanir um endurheimt þeirra í greininni hér að neðan👇

Miklar breytingar hafa orðið á vistkerfum Íslands frá land- námi sem er reyndar í takt við náttúrusögu flestra landa. Við upphaf landnáms var ásýnd landsins ólík því sem nú er. Meðal annars er talið að birkiskógar hafi þakið um fjórðung landsins en núverandi útbreiðsla...

Hvað kemur losunarbókhald Íslands Landgræðslunni við?🌎👀Jú, Landgræðslan og Skógræktin halda utan um mikilvæg gögn um los...
15/11/2023

Hvað kemur losunarbókhald Íslands Landgræðslunni við?🌎👀

Jú, Landgræðslan og Skógræktin halda utan um mikilvæg gögn um losun og bindingu gróðurhúsalofttegunda, frá landnotkun og skógrækt, sem hluta af losunarbókhaldi Íslands. 🌿

Landgræðslan á í góðu samstarfi við aðrar stofnanir í þessum málaflokki og reyna sífellt að bæta upplýsingagjöf þessu tengdu. Nýlega tóku sérfræðingar Landgræðslunnar þátt í að skrifa grein til að útskýra muninn milli losunarbókhalds Umhverfisstofnunar og losunarbókhalds Hagstofu Íslands.

Samstarf er ávallt til bóta!🤝

Rennið í gegn um þessa stuttu og skýru grein til að glöggva ykkur á þessum flókna málaflokki:

Útreikningar stofnananna á losun gróðurhúsalofttegunda sýna ólíkar niðurstöður sem eru þó báðar réttar. Umhverfisstofnun og Hagstofa Íslands halda hvor um sig bókhald um losun gróðurhúsalofttegunda. Umhverfisstofnun tekur saman losun innan landamæra Íslands en Hagstofan frá h...

🌱Tillögur að úrbótum í endurheimt votlendis á Íslandi🌱👉 Auka fræðslu til landeigenda og sveitarstjórna👉 Hanna fjárhagsle...
15/11/2023

🌱Tillögur að úrbótum í endurheimt votlendis á Íslandi🌱

👉 Auka fræðslu til landeigenda og sveitarstjórna
👉 Hanna fjárhagslegra hvata
👉 Skerpa á lögum um náttúruvernd

Efnið að neðan er unnið upp úr skýrslu Finns Ricart Andrasonar um áskoranir og tækifæri í endurheimt votlendis á Íslandi. Skýrsluna má lesa hér: https://land.is/askoranir-og-taekifaeri-i-endurheimt-votlendis/

(📸 – Horblaðka, SÁ)

🌱Tækifæri í endurheimt votlendis á Íslandi🌱👉 Hvernig hámörkum við vistfræðilegan ávinning?👉 Hvernig valdeflum við bændur...
06/11/2023

🌱Tækifæri í endurheimt votlendis á Íslandi🌱

👉 Hvernig hámörkum við vistfræðilegan ávinning?
👉 Hvernig valdeflum við bændur?
👉 Hvaða ávinningur hlýst fyrir ferðaþjónustuna?

Efnið að neðan er unnið upp úr skýrslu Finns Ricart Andrasonar um áskoranir og tækifæri í endurheimt votlendis á Íslandi. Skýrsluna má lesa hér: https://land.is/askoranir-og-taekifaeri-i-endurheimt-votlendis/

(📸 – rauðburi, ÁH)

Meiri fróðleikur um mosa!🌿Vissir þú að:👉 Margar mosategundir vaxa i þurrum eyðimörkum og á steinum👉 Mosar vaxa í blandað...
04/11/2023

Meiri fróðleikur um mosa!🌿

Vissir þú að:

👉 Margar mosategundir vaxa i þurrum eyðimörkum og á steinum
👉 Mosar vaxa í blandaðri mosaþekju
👉 Sumar mosategundir geta haldið allt að 20 sinnum þurrvigt sinni af vatni

Lesið greinina hennar Ágústu Helgadóttur, líffræðings hjá Landgræðslunni, í heild sinni hér að neðan.

10 atriði sem þú vissir ekki um mosa!🌿👀Stórskemmtileg grein í heimildinni eftir Ágústu Helgadóttur líffræðing hjá Landgr...
01/11/2023

10 atriði sem þú vissir ekki um mosa!🌿👀

Stórskemmtileg grein í heimildinni eftir Ágústu Helgadóttur líffræðing hjá Landgræðslunni stútfull af fróðleik um mosa. Vissir þú að það vaxa um 600 tegundir mosa á Íslandi? Eða að mosar hafa hvorki rætur né æðakerfi?

Fyrir fleiri fróðleiksmola um mosa hvetjum við ykkur til að lesa greinina hér að neðan👇

Ágústa Helgadóttir líffræðingur hefur ástríðu fyrir mosa og útskýrir hvað er svona merkilegt við þessar sérstæðu plöntur.

Address

Gunnarsholt
Hella
851

Telephone

+3544883000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Landgræðslan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Landgræðslan:

Share