Einangrunarstöðin Mósel

Einangrunarstöðin Mósel Einangrunarstöð fyrir gæludýr ! Við bjóðum uppá frammúrskarandi aðstöðu fyrir gæludýrin ykkar sem uppfylla allar nýjustu kröfur um dýravelferð.

25/07/2026

Mr handsome so proud always❤️

02/06/2026

ICELANDIC AND ENGLISH version

Sæl veriði.

Ég er alltaf að reyna að hugsa út fyrir rammann og leita leiða til að leysa þær áskoranir sem hafa komið upp varðandi flutning dýra með flugi.
Þess vegna vil ég nú bjóða upp á þjónustu við að sækja gæludýr erlendis og aðstoða við að koma þeim örugglega til Íslands.
Í samstarfi við reyndan pet agent myndi ég annað hvort fljúga eða keyra með dýrin til Hollands ,Þaðan færu þau með bíl til Billund og síðan með flugi til Íslands.
Ég veit að margir hafa lent í vandræðum með flug og flutning dýra, en með þessari leið getum við fundið örugga og áreiðanlega lausn fyrir bæði dýrin og eigendur þeirra.
Fyrir nánari upplýsingar endilega sendið skilaboð eða hafið samband í síma.
🐾

English

Hello everyone,
I am always looking for practical and reliable solutions to make pet transport to Iceland easier.
I am pleased to offer a service that helps collect pets abroad and arrange their safe journey to Iceland.
Working together with an experienced pet transport agent, I can personally accompany pets by air or road to Amsterdam. From there, they would travel by road to Denmark and then continue on to Iceland by air.
I understand that many pet owners have faced challenges with flight availability and transport restrictions, which is why I am committed to providing a smooth, safe, and stress-free alternative for both pets and their owners.
If you would like more information or discuss your pet's travel needs, please feel free to send me a message or contact me by phone.
Safe, caring, and reliable pet transport to Iceland. 🐾✈️🇮🇸

Kæru innflytjendur.Allt síðasta  ár höfum við lagt mikið á okkur til að reyna að finna lausnir á flugmálum eftir að Icel...
30/03/2026

Kæru innflytjendur.

Allt síðasta ár höfum við lagt mikið á okkur til að reyna að finna lausnir á flugmálum eftir að Icelandair hætti að flytja dýr . Margir hafa fylgst með þessari baráttu og vita að við höfum reynt allt til að finna leiðir og leita.

Það var stór áfangi þegar baráttan um að leyfa flutning í cabin gekk í gegn hjá okkur öllum, en því miður eru mörg flugfélög enn treg til að samþykkja það og staðan er því enn mjög erfið.

Núna heyrist mér að Finnair sé að hætta að taka í hold frá apríl og fram á sumar allavega sem setur okkur í enn erfiðari stöðu. Eftir því sem ég best veit eru flugfélögin sem enn taka í hold núna helst SAS, Discovery Airlines ,Neos og mögulega Austrian Airlines. Lufthansa tekur í cargo með aðstoð pet handler og einnig Air Baltic og LOT.
Discovery Airline , Finnair (Taka í cabin) ,United Airlines (líklega)

Þegar árið byrjaði ákváðum við að halda okkar áætlun án þess að taka frí, einfaldlega til að reyna að standa með fólkinu sem treystir á þessa þjónustu. Á sama tíma tók hin einangrunarstöðin ákvörðun eftir að hafa tekið frí í desember að hafa sínar dagsetningar á sama tíma og við, þrátt fyrir að við hefðum óskað eftir að það yrði alls ekki. Við héldum að þetta yrði aðeins tímabundið fram í júní, en nú hafa dagsetningar verið settar fyrir allt árið — á nákvæmlega sama tíma og hjá okkur.

Ég verð að viðurkenna að ég er bæði hissa og mjög ráðalaus yfir stöðunni. Maður reynir sitt besta til að standa með fólkinu í landinu, hjálpa og finna lausnir, en stundum líður manni eins og það sé alltaf eitthvað sem vinnur á móti.

Staðan er sú að ég get ekki breytt dagsetningunum hjá okkur þar sem það er þegar búið að bóka mjög mikið í sumar og haust.

Við óbreyttar aðstæður sé ég heldur ekki fram á að einangrunarstöðin geti gengið svona til lengdar. Það er einfaldlega ekki sanngjarnt að fólk bóki, skipuleggi og leggi í mikinn kostnað ef það er svo ekki einu sinni tryggt að flug fáist.
Þetta er ekki auðvelt að skrifa. En mér finnst mikilvægt að þið vitið stöðuna eins og hún er.

Það er ekki að loka við munum berjast áfram.

Gæludýr leyfð í Cabin ❤️❤️❤️
09/12/2025

Gæludýr leyfð í Cabin ❤️❤️❤️

Þú færð allar fréttirnar í Púlsinum

Address

Selás
Hella
851

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Einangrunarstöðin Mósel posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Einangrunarstöðin Mósel:

Shortcuts

Share

Category