22/05/2026
Yfirlýsing frá L-listanum:
L-listinn lýsir yfir fullum stuðningi við kjörstjórn Hrunamannahrepps. Núna hefur D-listinn sótt það fast að fari fram endurtalning vegna mögulegs ágalla í talningu. Umboðsmenn L-listans urðu ekki varir við neina ágalla við talningu atkvæða. En þegar þessi beiðni kom var okkar afstaða skýr. Við treystum kjörstjórn til að afgreiða málið og ef hún samþykkir endurtalningu leggjumst við ekki á móti því. Núna hefur kjörstjórn ákveðið að fara í endurtalningu. Við hörmum það hvernig D-listinn gengur fram enda þyrfti að vera um meiriháttar ágalla á framkvæmd talningar að ræða til að niðurstaða kosninga myndi breytast.