Hrunamannahreppur

Hrunamannahreppur Hrunamannahreppur er sveitarfélag í uppsveitum Árnessýslu. Íbúar eru um 900.
Á Flúðum búa um 500. Sveitarstjóri Hrunamannahrepps er Aldís Hafsteinsdóttir.

Hrunamannahreppur er í uppsveitum Árnessýslu og búa þar um 900 manns. Hrunamannahreppur er einnig þekktur undir nöfnunum Gullhreppurinn og Ytri-hreppur. Tengjast þessi nöfn Stóru-Laxá sem skilur að Hrunamannahrepp og Skeiða-og Gnúpverjahrepp. Hvítá aðskilur svo hreppinn frá Bláskógabyggð. Í Hrunamannahreppi er blómleg byggð. Atvinnuvegir snúast aðallega um landbúnað og er ein mesta garðyrkja lands

ins stunduð í hreppnum. En auðvitað er einnig stundaður hefðbundinn búskapur eins og nautgripa-, sauðfjár- og hrossarækt. Ekki er minni áhersla lög á þær greinar. Þéttbýliskjarni Hrunamannahrepps heitir Flúðir og býr þar um helmingur íbúa hreppsins. Á Flúðum er eina sveppaverksmiðja landsins sem sér öllu Íslandi fyrir sveppum allan ársins hring. Á Flúðum er líka eina límtrésverksmiðja landsins. Félagslíf í hreppnum er gott og eru starfrækt ýmiskonar félög í hreppnum þar sem fólk kemur saman og skemmtir sér. Í hreppnum er alltaf eitthvað um að vera og er íþróttahúsið fullsetið alla daga allan veturinn. Margir kórar er í hreppnum og það telst nánast undantekning ef fólk er ekki í kór. Í Hrunamannahreppi er boðið uppá eiginlega alla helstu þjónustu sem þarf. Þar er skóli, leikskóli, sundlaug, vínbúð, félagsheimili, matvöruverslun, veitingarstaðir, golfvellir, bar, hótel og margt fleira. Í hreppnum er nóg af tækifærum því nóg er af landi, heitu og köldu vatni. Þekktustu náttúruperlur hreppsins eru án efa Gullfoss og Kerlingarfjöll en auðvitað er fullt af öðrum flottum stöðum sem færri vita um. Hrunamannahreppur er blómlegt og lifandi sveitarfélag sem hefur upp á margt að bjóða. Jafnframt er Hrunamannahreppur elsta ósameinaða sveitarfélag landsins yfir 1100 ára samkvæmt Landnámu. Heimasíða hreppsins er www.fludir.is og netfang [email protected]
Sími: 480-6600
Þessi síða er hugsuð til þess að fræða fólk um það sem er að gerast í hreppnum og svara spurningum um hann ef einhverjar eru. Umsjónarmaður síðurnar er Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri.

Lokað verður fyrir heita vatnið við Birkihlíð og Reynihlíð í dag 12. ágúst vegna nýrra tenginga.Áætlað er að lokunin sta...
12/08/2026

Lokað verður fyrir heita vatnið við Birkihlíð og Reynihlíð í dag 12. ágúst vegna nýrra tenginga.
Áætlað er að lokunin standi yfir frá kl.11-14

Frístundamiðstöðin á Flúðum leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi til starfa í 75% starf.   Frístundamiðstöðin er a...
10/08/2026

Frístundamiðstöðin á Flúðum leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi til starfa í 75% starf. Frístundamiðstöðin er að byrja fljótlega og því bráðliggur á að ráða í þessa stöðu. Endilega skoðið hvort þetta starf geti hentar þér eða einhverjum sem þú þekkir. Endilega deilið sem víðast ....

Vilt þú starfa með börnum og ungmennum á Flúðum? Frístundamiðstöð á Flúðum leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingum til starfa. Frístun

02/08/2026

Vinsamlegast athugið…

02/08/2026

Íbúar og sumarhúsaeigendur í og við Langholtsfjall eru beðnir um að fara sparlega með kaldavatnið. Gríðarleg notkun núna um helgina gerir að verkum að vatnsstaða er óvanalega lág. Ef allir passa notkun í dag og á morgun þá ætti þetta að sleppa þokkalega.

Endilega skoðið meðfylgjandi auglýsingu, dreifið henni áfram og bendið jafnframt áhugasömum á þessa skemmtilegu stöðu.
30/07/2026

Endilega skoðið meðfylgjandi auglýsingu, dreifið henni áfram og bendið jafnframt áhugasömum á þessa skemmtilegu stöðu.

Vilt þú starfa með börnum og ungmennum á Flúðum? Frístundamiðstöð á Flúðum leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingum til starfa. Frístun

Sumarleyfi Félagsheimilið – bókasafnið verður lokað vegna sumarleyfa frá 1. júlí til og með 9. ágúst.Við óskum ykkur öll...
02/07/2026

Sumarleyfi

Félagsheimilið – bókasafnið verður lokað vegna sumarleyfa frá 1. júlí til og með 9. ágúst.

Við óskum ykkur öllum gleðilegs sumars og hlökkum til að taka á móti ykkur aftur mánudaginn 10. ágúst. ☀️📚

Takk fyrir einstaklega skemmtilegan vetur. Njótið sumarsins 🔆
Sjáumst í ágúst en þá bíður okkur góð samvera og skemmtilegir viðbuðir í Félagsheimilinu-bókasafninu okkar allra ❤️

„Hér í Hrunamannahreppi hefur byggst upp öflugt samfélag þar sem hlúð er af alúð að atvinnusköpun, menningu, íþróttum og...
18/06/2026

„Hér í Hrunamannahreppi hefur byggst upp öflugt samfélag þar sem hlúð er af alúð að atvinnusköpun, menningu, íþróttum og félagslífi íbúanna,“ segir á síðu forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur, er hún skrifar um heimsókn sína í hreppinn í tilefni 1150 ára afmælis Hrunamannahrepps er fór fram sl. helgi.

Forsetahjón tóku þátt í 1150 ára afmælishátíð Hrunamannahrepps sem fram fór á Flúðum. Þau heimsóttu einnig Gömlu laugina á staðnum, sveppabúið Flúðasveppi

17/06/2026

🇮🇸Óskum íbúum, sumarhúsaeigendum í hreppnum og gestum Hrunamannahrepps gleðilegrar þjóðhátíðar.
Njótið fjölbreyttrar dagskrár á Flúðum og munum að maður er manns gaman 🥰

Nú styttist í afmælisgleðina.  Endilega kynnið ykkur dagskrána og heimsækið Hrunamannahrepp í blíðunni um helgina.
12/06/2026

Nú styttist í afmælisgleðina. Endilega kynnið ykkur dagskrána og heimsækið Hrunamannahrepp í blíðunni um helgina.

Árið 2026 er sérstakt afmælisár í Hrunamannahreppi en þá höldum við 1150 ára afmæli sveitarfélagsins hátíðlegt með dagskrá sem spannar allt árið. Aðal afmælishátíðin verður haldin verður laugardaginn 20. júní 2026 á Flúðum og sú helgi er afmælishelgi í sveitarféla...

Address

Akurgerði 6
Hruni
845HRUNAMANNAHREPPUR

Opening Hours

Monday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Friday 09:00 - 12:30

Telephone

+3544806600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hrunamannahreppur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Hrunamannahreppur:

Shortcuts

Share