29/07/2026
Nú styttist í að umsóknarfrestur vegna Skúnaskralls – barnamenningarhátíðar Norðurlands vestra renni út, en tekið verður við umsóknum til og með 10. ágúst.
Listafólk, menningarstofnanir, félagasamtök, skólar og aðrir sem hafa áhuga á að standa fyrir viðburðum fyrir börn og ungmenni eða með börnum og ungmennum eru hvött til að senda inn umsókn.
Umsóknarformið má finna í fyrstu athugasemd.