Hveragerði

Hveragerði Hveragerði ~ Blómstrandi bær Þorpsmyndun hófst í Hveragerði árið 1929, Hveragerðishreppur var stofnaður 1946 og varð bæjarfélag 1987. Þann 1.

janúar 2024 voru íbúar Hveragerðis 3265 talsins.

https://www.vedur.is/um-vi/frettir/jardskjalftahrinan-vestan-vid-hengil-i-renun
04/06/2026

https://www.vedur.is/um-vi/frettir/jardskjalftahrinan-vestan-vid-hengil-i-renun

Dregið hefur úr jarðskjálftahrinunni sem hófst að morgni 31. maí vestan við Hengil. Alls hafa um 1500 skjálftar mælst, sá stærsti 4,5 að stærð þann 1. júní og þrír aðrir yfir 3 að stærð. Stærsti skjálftinn fannst víða á Suðvesturlandi og bárust um 150 tilkynningar til ...

Veðurstofan fjallar hér um skjálftahrinuna sem nú stendur yfir í Henglinum. Starfsfólk Hveragerðisbæjar er í góðum og st...
02/06/2026

Veðurstofan fjallar hér um skjálftahrinuna sem nú stendur yfir í Henglinum.

Starfsfólk Hveragerðisbæjar er í góðum og stöðugum samskiptum við Almannavarnir og sérfræðinga Veðurstofu Íslands vegna náttúruvár. Ekki er tilefni til sérstakra viðbragða vegna stöðunnar að svo stöddu.

Upplýsingum verður komið til almennings eftir þörfum og mun Veðurstofan gefa út nánari upplýsingar um alla atburði s.s. jarðskjálfta, á sínum samfélagsmiðlum. Þar geta áhugasamir fylgst með þróun mála.

Veðurstofa Íslands vinnur nú að nánari greiningu á gögnum um jarðskjálftahrinuna og gefur út frekari upplýsingar um hana á næstu dögum.

Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar er komin á Instagram (blomstrandidagar) - sjá hlekk í ummælum hér fyrir neðan. Einnig er ...
22/05/2026

Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar er komin á Instagram (blomstrandidagar) - sjá hlekk í ummælum hér fyrir neðan.

Einnig er Hveragerðisbær á Instagram (hveragerdi.is) - einnig í hlekk hér fyrir neðan.

Fylgist með á Instagram. 📸

Í sumar verður settur upp minninga- og söguveggur á bókasafninu í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar.Átt þú skemm...
22/05/2026

Í sumar verður settur upp minninga- og söguveggur á bókasafninu í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar.

Átt þú skemmtilega bernskuminningu, sögur af fólki sem setti svip sinn á samfélagið eða stutta frásögn tengda Hveragerði sem þú ert til í að deila?

Endilega takið þátt og sendið inn skemmtilegar sögur og frásagnir. Nánari upplýsingar í hlekk í ummælum. 👇

Nú styttist í þjóðhátíðardaginn okkar, 17. júní. Líkt og síðustu tvö ár þá verður Varmahlíðarhúsið opið áður en hátíðahö...
21/05/2026

Nú styttist í þjóðhátíðardaginn okkar, 17. júní.

Líkt og síðustu tvö ár þá verður Varmahlíðarhúsið opið áður en hátíðahöldin hefjast fyrir þau sem klæðast þjóðbúningi. Þar er hægt að hjálpast að með skotthúfur og fleira sem fylgir búningunum. Það er því tæpur mánuður til stefnu til að fægja silfrið og gera búninginn kláran fyrir þjóðhátíðina. 🇮🇸

Í dag var nýtt aðalskipulag undirritað.
15/05/2026

Í dag var nýtt aðalskipulag undirritað.

Tímamót voru í vinnu við gerð aðalskipulags Hveragerðisbæjar í dag þegar Ólafur Árnason frkv.stj. skipulags hjá HMS og uppalinn Hvergerðingur mætti á bæjarskrifstofuna til þess að undirrita nýtt aðalskipulag ásamt Pétri Markan bæjarstjóra.

Útboð - Sorphirða í Hveragerðisbæ 2026 – 2029
11/05/2026

Útboð - Sorphirða í Hveragerðisbæ 2026 – 2029

Verkið felst í söfnun úrgangs úr sorp og endurvinnsluílátum við öll heimili og stofnanir í Hveragerðisbæ auk þjónustu við gámastöð sveitarfélagsins sem felst í leigu á gámum, flutningi á móttökustöð ásamt afsetningu á öllum úrgangi.

Pallborðsumræður allra framboða í Hveragerði fara fram í Grunnskólanum í Hveragerði þriðjudaginn 12. maí kl. 20:00. Sýnt...
11/05/2026

Pallborðsumræður allra framboða í Hveragerði fara fram í Grunnskólanum í Hveragerði þriðjudaginn 12. maí kl. 20:00.

Sýnt verður frá pallborðsumræðunum í beinu streymi á Youtube síðu Hveragerðisbæjar. Hlekkur á streymið er í ummælum hér fyrir neðan.

Úthlutun leikskólavistunar fyrir haustið 2026 - sjá frétt
11/05/2026

Úthlutun leikskólavistunar fyrir haustið 2026 - sjá frétt

Í dag 11. maí og á morgun 12. maí mun foreldrum þeirra barna sem úthlutað hefur verið leikskólaplássum í fyrri úthlutun, berast póstur á island.is.

Address

Breiðamörk 20
Hveragerdi
810

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00

Telephone

+3544834000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hveragerði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share