Héraðsbókasafn Rangæinga

Héraðsbókasafn Rangæinga Lestur er sálinni það sem hreyfing er líkamanum Afgreiðslutími
Sumar
1. september - 31.

júní - 31. ágúst
mánudagar kl. 15.00 - 20.00
þriðjudagar - fimmtudagar kl. 15.- 18.00

Vetur
1. maí
mánudagar kl. 13.00 - 20.00
þriðjudagar - fimmtudagar kl. 13.00 - 18.00
föstudagar kl. 10.00 - 13.00

bókasafnið er opið frá kl 8.00 á skólatíma fyrir Hvolsskóla til lokunar safnsins

Nú hefst sumarfrágangur og haustundirbúningur. Því eru allar bækurnar á sumarbókamarkaðinum ÓKEYPIS í dag miðvikudaginn ...
05/08/2026

Nú hefst sumarfrágangur og haustundirbúningur. Því eru allar bækurnar á sumarbókamarkaðinum ÓKEYPIS í dag miðvikudaginn 5.ágúst og á morgun fimmtudaginn 6.ágúst og eru það síðustu dagar markaðarins :)
Bókasafnið er opið 15-18 báða dagana

Það eru 19 krakkar skráðir í sumarlesturinn en aðeins 7 hafa komið til að fá límmiða í vegabréfið sitt og aðeins 2 eru b...
28/07/2026

Það eru 19 krakkar skráðir í sumarlesturinn en aðeins 7 hafa komið til að fá límmiða í vegabréfið sitt og aðeins 2 eru búnir að komast alla leit í Grænuhlíð.
Nú eru aðeins 24 dagar til stefnu svo við hvetjum krakkana til að koma á bókasafnið og fá límmiða í vegabréfið og hjálpa Gúnda geithafri að komast frá graslausum heimahaganum til Grænuhlíðar í græna grasið :)

Þegar þú ert búin með allar bækurnar sem þú tókst með þér í sumarfríið er tilvalið að kíkja á https://rafbokasafnid.over...
20/07/2026

Þegar þú ert búin með allar bækurnar sem þú tókst með þér í sumarfríið er tilvalið að kíkja á https://rafbokasafnid.overdrive.com/
Fullt af frábærum bókum fyrir alla.
Engar sektir - bara njóta
Starfsfólk almenningsbókasafna getur oft hjálpað til við innskráningu

Skoða, fá lánaða, lesa titla úr rafbókasafninu Rafbókasafnið.

Vissir þú að allir sem hafa gilt lánþegaskírteini á einhverju bókasafni hafa aðgang að Rafbókasafninu?
07/07/2026

Vissir þú að allir sem hafa gilt lánþegaskírteini á einhverju bókasafni hafa aðgang að Rafbókasafninu?

Skoða, fá lánaða, lesa titla úr rafbókasafninu Rafbókasafnið.

Lestur er bestur...líka í sumarfríi🌞😎
01/07/2026

Lestur er bestur...líka í sumarfríi🌞😎

29/06/2026

Minnum á prjónahittinginn alla mánudaga kl. 17:30
Öll velkomin

🧶💜 Prjónahittingur á bókasafninu í kvöld kl. 18 💜🧶Það er alltaf notalegt að hittast yfir prjónunum á mánudagskvöldum, en...
22/06/2026

🧶💜 Prjónahittingur á bókasafninu í kvöld kl. 18 💜🧶

Það er alltaf notalegt að hittast yfir prjónunum á mánudagskvöldum, en í kvöld viljum við bjóða sérstaklega velkomin öll sem eru að prjóna Skjól – peysuna sem prjónuð er til styrktar Kvennaathvarfinu á Íslandi.

Það væri svo gaman að sjá hversu mörg Skjól eru í vinnslu í Rangárvallasýslu, skoða litasamsetningar og deila ráðum! 💜
Að auki er þetta frábær vettvangur til að fá aðstoð eða aðstoða, deila ráðum og brellum og njóta þess einfaldlega að eiga notalega stund saman yfir prjónum og kaffibolla. 💜🧶 ☕

Hvort sem þú ert nýbyrjuð á þínu Skjóli, komin langt á leið eða bara með allt annað á prjónunum, þá ertu hjartanlega velkomin. ✨

📚 Bókasafnið
🕕 Mánudagur kl. 18

Við hlökkum til að sjá ykkur og öll fallegu Skjólin sem eru að verða til. 🧶💜

Sumarbókamarkaðurinn er klár!Allar bækur á 200 kr. eða þú kemur með poka og fyllir hann fyrir 1.000 kr. Sérstök hilla er...
18/06/2026

Sumarbókamarkaðurinn er klár!
Allar bækur á 200 kr. eða þú kemur með poka og fyllir hann fyrir 1.000 kr.
Sérstök hilla er fyrir sérstakar bækur sem kosta 1.000 kr. stykkið (Undir bárujárnsboga, Halldór Laxnes - Úrvalsbók og Vitar á Íslandi). Það á svo örugglega eitthvað eftir að bætast við svo það er góð hugmynd að kíkja á okkur öðru hvoru í sumar :)
Afgreiðslutími:
Mánud. 15:00-20:00
Þriðjud. 15:00-18:00
Miðvikud. 15:00-18:00
Fimmtud. 15:00-18:00

Það var meeergjað gaman hjá okkur á fimmtudaginn þegar Gunnar Helgason heimsótti okkur. Hann las kafla úr bókunum "Siggi...
15/06/2026

Það var meeergjað gaman hjá okkur á fimmtudaginn þegar Gunnar Helgason heimsótti okkur. Hann las kafla úr bókunum "Siggi sítróna", "Birtingur og símabannið mikla" og svo las hann úr bókinni sem kemur út í október - rosalega spennandi. Leó og Júlía voru þau heppnu í happdrættinu og allir fengu áritun - sumir í bók, sumir á blað og sumir á hendina 🤭
Næstum því 50 gestir mættu á viðburðinn 😊
Nú hljóta allir krakkarnir að vera rosalega dugleg að lesa og koma svo á bókasafnið til að fá límmiða í vegabréfið sitt.📚📖

11/06/2026

Address

Vallarbraut 16
Hvolsvöllur
860

Opening Hours

Monday 13:00 - 20:00
Tuesday 13:00 - 18:00
Wednesday 13:00 - 18:00
Thursday 13:00 - 18:00
Friday 10:00 - 13:00

Telephone

+3544884235

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Héraðsbókasafn Rangæinga posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Héraðsbókasafn Rangæinga:

Shortcuts

Share

Category