Náttúruverndarstofnun

Náttúruverndarstofnun Náttúruverndarstofnun er ríkisstofnun og heyrir undir umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið. Stofnunin tók til starfa 1.

janúar 2025 og sinnir verkefnum sem snúa að náttúruvernd, lífríkis- og veiðistjórnun.

🕑 Veiði­tíma­bil heiða­gæsa og grágæsa hefst 20. ágúst og stendur til 15. mars, líkt og síðustu ár.▪️Heiðagæsastofninn s...
19/08/2026

🕑 Veiði­tíma­bil heiða­gæsa og grágæsa hefst 20. ágúst og stendur til 15. mars, líkt og síðustu ár.

▪️Heiðagæsastofninn stendur sterkur þótt hann hafi dregist saman frá því hann náði hámarki fyrir nokkrum árum.

▪️Töluverð óvissa hefur verið um stærð íslenska grágæsastofnsins undanfarin ár. Hefðbundnar vetrartalningar á Bretlandseyjum hafa sýnt viðvarandi fækkun síðan 2011 og samkvæmt þeim hefur stofninn ekki verið minni síðan árið 1965.

Náttúruverndarstofnun hvetur því veiðimenn eindregið til að sýna ábyrgð og gæta hófs við grágæsaveiðar. Sérstaklega er mikilvægt að veiðimenn skili upplýsingum um veiði, enda eru áreiðanlegar veiðitölur ein af grundvallarforsendum þess að hægt sé að meta áhrif veiða og tryggja sjálfbæra nýtingu stofnsins.

➡️ Nánar í frétt á vef Náttúruverndarstofnunar í athugasemd.

Skotveiðifélag Íslands Skotvís

📃 Veiði­tíma­bil hels­ingja 2026 staðfestUmhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest tillögur Náttúruverndarst...
17/08/2026

📃 Veiði­tíma­bil hels­ingja 2026 staðfest

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest tillögur Náttúruverndarstofnunar um að veiðitímabil helsingja árið 2026 verði frá 1.–20. september um allt land.

Meira í frétt í athugasemdum 👇

Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson

✨ Það er komið að því - Í dag 12. ágúst verður almyrkvi á sólu!☀️ Við minnum gesti á að kynna sér vel eftirfarandi atrið...
12/08/2026

✨ Það er komið að því - Í dag 12. ágúst verður almyrkvi á sólu!

☀️ Við minnum gesti á að kynna sér vel eftirfarandi atriði í dag:

🌖 Umferðarstýringar.
🌗 Staðsetningu salerna.
🌘 Að hafa vatn og mat meðferðis sé enging veitingasala á svæðinu.
🌑 Gefa sér nægan tíma og sýna þolinmæði, fylgja leiðbeiningum og gera ráð fyrir lengri ferðatíma en venjulega.

🌎 Göngum vel um, virðum náttúruna og tökum allan úrgang með okkur. Förum varlega, sýnum öðrum gestum tillitssemi og njótum dagsins í einstöku náttúrunni okkar

🌚 Allar frekari upplýsingar um almyrkvann má nálgast á síðunum solmyrkvi2026.is, island.is og Vegagerdin.is

🌙 Nánari upplýsingar fyrir Friðlandið Látrabjarg og Snæfellsjökulsþjóðgarði er að finna á vefnum náttúra.is og síðu þjóðgarðsins.

👷‍♀️ Einnig er hægt að fylgjast með Instragam sögum frá landvörðunum við Látrabjarg!

https://www.nattura.is/stofnunin/almyrkvi
https://snaefellsjokull.is/solmyrkvi-2026-upplysingar-fyrir-gesti

🦆 Síðastliðinn laugardag var hin árlega Hvanneyrarhátíð haldin á Hvanneyri. Hvanneyri er lítið þéttbýli í hjarta friðlan...
11/08/2026

🦆 Síðastliðinn laugardag var hin árlega Hvanneyrarhátíð haldin á Hvanneyri. Hvanneyri er lítið þéttbýli í hjarta friðlandsins í Andakíl, sem jafnframt er eitt af s*x Ramsarsvæðum Íslands og er friðlandið í umsjón Náttúruverndarstofnunar.

🌿 Náttúruverndarstofnun tók þátt í hátíðarhöldunum og kynnti verkefnið Mýrarlíf, umfangsmikið samstarfsverkefni sem miðar að endurheimt votlendis og eflingu líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Náttúruverndarstofnun er ein af sjö þátttakandi í verkefninu, sem er leitt af Landbúnaðarháskóla Íslands.

🌾 Starfsfólk Náttúruverndarstofnunar á Vesturlandi veitti gestum fræðslu um mikilvægi votlendis og kynnti jafnframt önnur friðlýst svæði á Vesturlandi.

🪺 Gestir fengu tækifæri til að sjá hvernig votlendi virkar með einföldu fræðslulíkani sem vakti mikla athygli. Þá var einnig boðið upp á tímabundin fuglahúðflúr af jaðrakan, lóuþræl og stelk. Þessar þrjár fuglategundir eru einkennistegundir Mýrarlífsverkefnisins og nutu húðflúrin mikilla vinsælda meðal yngstu gestanna.

💛 Náttúruverndarstofnun þakkar öllum fyrir komuna.
Við hlökkum til að sjá ykkur að ári.

Mýralíf - Peatland LIFEline
https://www.nattura.is/vernd/natturuverndarstofnun-a-hvanneyrarhatid

🌿 Í dag er alþjóðlegur dagur landvarða! 💚Á hverjum degi sinna landverðir fjölbreyttum verkefnum. Þeir taka á móti og lei...
31/07/2026

🌿 Í dag er alþjóðlegur dagur landvarða! 💚

Á hverjum degi sinna landverðir fjölbreyttum verkefnum. Þeir taka á móti og leiðbeina gestum, miðla fróðleik um náttúruna og vinna að vernd friðlýstra svæða.

Takk fyrir allt það mikilvæga starf sem landverðir vinna, hér heima og um allan heim. 🌍💚

📸 Á meðfylgjandi myndum má sjá landverði vítt og breitt um landið en flest svæði nýttu tilefnið og voru með viðburði tengda deginum og buðu sum hver líka uppá hressingu.

Fræðsludagskráin okkar er svo enn í fullum gangi en hægt er að kynna sér hana hér: https://www.nattura.is/fraedsla/fraedsludagskra

💚Náttúruverndarstofnun minnir á að frestur til að skila umsóknum er 10. ágúst næstkomandi. Auglýst er eftir umsóknum frá...
31/07/2026

💚Náttúruverndarstofnun minnir á að frestur til að skila umsóknum er 10. ágúst næstkomandi.
Auglýst er eftir umsóknum frá rekstraraðilum sem óska eftir að reka starfsemi í Vatnshelli í Snæfellsjökulsþjóðgarði og bjóða almenningi upp á skipulagðar ferðir og fræðslu í hellinum allan ársins hring í nánu samstarfi við stofnunina.

Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað rafrænt í gegnum island.is eigi síðar en 10. ágúst 2026.

Allar upplýsingar ásamt hlekk á umsóknagátt island.is er að finna í frétt hér að neðan 👇

https://www.nattura.is/stofnunin/auglyst-eftir-umsoknum-um-rekstur-vatnshellis-i-snaefellsjokulsthjodgardi

Tækifæri til bættrar veiði­stjórn­unar á ref og minkMarkmið veiðistjórnunar á ref og mink er að takmarka tjón og vernda ...
29/07/2026

Tækifæri til bættrar veiði­stjórn­unar á ref og mink

Markmið veiðistjórnunar á ref og mink er að takmarka tjón og vernda lífríki og því er mikilvægt að endurskoða veiðistjórnunaraðgerðir eftir atvikum. Náttúruverndarstofnun telur að rétt sé að skoða hvort ná megi betri árangri í veiðistjórnun á ref og mink með því að vinna heildstæðar stjórnunar- og verndaráætlanir.

Sjá nánar hér👇

Markmið veiðistjórnunar á ref og mink er að takmarka tjón og vernda lífríki og því er mikilvægt að endurskoða veiðistjórnunaraðgerðir eftir atvikum. Náttúruverndarstofnun telur að rétt sé að skoða hvort ná megi betri árangri í veiðistjórnun á ref og mink þar sem vinna ...

Örir vatnavextir við Snæfell
16/07/2026

Örir vatnavextir við Snæfell

🔴 F909 inn að Snæfellsskála er enn lokaður

Við vekjum athygli á örum vatnavexti á hálendinu þessa dagana. Vegurinn inn að Snæfellsskála fór í sundur í gær á nokkrum stöðum. Beðið er eftir því að minnki í ám til að hægt sé að lagfæra skemmdir.

Minnum á upplýsingar og fræðslu í SNæfellsstofu alla daga frá kl 10-17 og að afla sér upplýsingar um færð á vegum áður en haldið er inná hálendið. Einnig má hafa samband við landverði í Snæfell - Vatnajökulsþjóðgarður fyrir nánari upplýsingar hverju sinni í síma 842-4367.

//

🔴F909 Road to Snæfell Hut remains closed.

Travellers in the highlands are advised to be cautious due to rapidly rising water levels in rivers and streams across the highlands these days. Yesterday, sections of the road leading to Snæfell Hut were washed out in several locations. Repairs cannot begin until water levels in the rivers have receded.

Up-to-date information and advice are available daily at Snæfellsstofa Visitor Centre from 10:00 to 17:00. Travellers are strongly encouraged to check current road and weather conditions before entering the highlands.

For further information regarding current conditions in the Snæfell area, please contact the park rangers at +354 842 4367.

16/07/2026

Náttúruverndarstofnun auglýsir laust starf landvarðar á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir vetrartímabil.
Sjá frekari upplýsingar fyrir neðan 👇

Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur starfsmanna með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarða og friðlýstra svæða.

Address

Austurvegur 4
Hvolsvöllur
860

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Náttúruverndarstofnun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Náttúruverndarstofnun:

Shortcuts

Share