19/08/2026
Lögreglan á Suðurlandi vill vekja athygli á eftirfarandi tilkynningu frá Veðurstofu Íslands:
"Undanfarna sólahringa hefur rafleiðni í Múlakvísl farið jafnt og þétt hækkandi og er orðinn óvenju há miðað við árstíma. Leiðnimælingar segja til um magn jarðhitavatns í ám og há gildi benda til þess að lítið jökulhlaup sé í gangi. Að svo stöddu hefur vatnshæð í ánni ekki hækkað samhliða leiðniaukningunni en mögulegt er að það geti gerst á næstu dögum, eftir því hvernig atburðurinn þróast".
"Hlaup af þessari stærðargráðu eru vel þekkt í Múlakvísl. Mikil gasmengun fylgir hinsvegar hlaupinu að þessu sinni, en Veðurstofan er með gasmæli við Láguhvola sem eru um 2 km frá jökuljaðri Kötlujökuls. Í nótt mældist brennisteinsvetni (H2S) yfir heilsuverndarmörkum. Því er varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar við jökuljaðarinn.
Sólarhringsvakt VÍ fylgist áfram með mælingum á svæðinu og sendir út nýjar upplýsingar ef breytingar verða".
Lögreglan á Suðurlandi biðlar til þeirra sem eiga leið um svæðið að gæta fyllstu varúðar.