Tryggingastofnun

Tryggingastofnun Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Tryggingastofnun, Government Organization, Hlíðasmári 11, Kópavogskaupstaður.

Alltaf opið á vefsíðu okkar og Mínum síðum.
Þjónustumiðstöð Hlíðasmára 11 og símaver opin virka daga kl. 10.00 -15.00
Bókaðu tíma hjá sérfræðingi TR í gegnum Noona: https://noona.is/tryggingastofnun

Tryggingastofnun hefur innleitt auðkenningu með rafrænum skilríkjum og auðkennisappi í samskiptum við viðskiptavini. Þet...
10/07/2026

Tryggingastofnun hefur innleitt auðkenningu með rafrænum skilríkjum og auðkennisappi í samskiptum við viðskiptavini. Þetta á við þjónustu í síma, í þjónustumiðstöð og við móttöku fyrirspurna.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra skrifar grein í tilefni af 90 ára afmæli almannatrygginga á þessu...
06/07/2026

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra skrifar grein í tilefni af 90 ára afmæli almannatrygginga á þessu ári. Þar segir hann meðal annars. "Það er auðvelt að líta á almannatryggingar sem sjálfsagðar og fæst leiðum við líklega hugann að kerfinu fyrr en við þurfum sjálf á því að halda eða sjáum mikilvægi þess í gegnum vini og vandamenn. En á hverjum degi snerta almannatryggingar fólk um land allt."

Hvað gerist þegar manneskja veikist, missir starfsgetuna eða nær þeim aldri að hún getur ekki lengur treyst á atvinnutekjur til að framfleyta sér? Í dag finnst flestum líklega sjálfsagt að samfélagið standi með fólki við slíkar aðstæður en þannig hefur það ekki alltaf veri....

Nýjasti „starfskraftur“ TR er gervigreindaraðstoð sem er að störfum allan sólarhringinn og hægt er að nálgast á tr.is. H...
08/06/2026

Nýjasti „starfskraftur“ TR er gervigreindaraðstoð sem er að störfum allan sólarhringinn og hægt er að nálgast á tr.is. Hægt er að spyrja almennra spurninga til dæmis um réttindi, greiðslur og upphæðir, en ekki um persónuleg mál.

Gervigreindaraðstoðin leitar svara á vef TR og byggir svör sín á þeim upplýsingum sem eru þar. Það getur verið mjög gagnlegt að nýta hana til dæmis til að auðvelda leit að upplýsingum. Ef ekki tekst að koma með svar sem fyrirspyrjandi er sátt/ur við eru leiðbeiningar um hvernig er hægt að senda fyrirspurn í gegnum Mínar síður eða í tölvupósti til okkar.

Við hvetjum viðskiptavini okkar til að prófa að nota þessa nýju þjónustu til að afla almennra upplýsinga. Sömuleiðis að gefa okkur viðbrögð við svörum en í lok samtalsins býður hún upp á endurgjöf, þannig sjáum við hvernig hún er að standa sig. Með þessari viðbót við þjónustu okkar vonumst við til að viðskiptavinir fái skjót svör og góðar almennar upplýsingar um réttindi, umsóknir og greiðslur hjá TR.
https://island.is/s/tryggingastofnun/frett/gervigreindaradstod-tr

20/05/2026

Anna Elísabet Sæmundsdóttir, sviðsstjóri ellilífeyris fræddi fundagesti Landsfundar LEB um starf TR fyrir eldra fólk.

Samstarf TR og LEB hefur verið gott og haldnir hafa verið reglulegir fundir til upplýsinga. TR hefur einnig sent út fréttabréf til félaga eldri borgara með nýjustu upplýsingum. Ýmsar kynningar hafa verið haldnar þegar breytingar verða og einnig farið í hvað tölurnar segja um hópinn.

Segja má að eldra fólk í dag er fjölbreyttur hópur sem samanstendur af gagnrýnum og samviskusömum einstaklingum sem eru meðvitaðir um réttindi sín og skyldur. Einnig þær breytingar sem hafa átt sér stað í tæknibyltingu nútímans og reyna að gera sér far um að fylgja henni eftir en standa misvel að vígi.

Einstaklingum með ellilífeyrisgreiðslur hefur fjölgað um 10.000 á 10 árum og eru núna um 45.000. Stærsti hópurinn er milli 70-79 ára. TR er á island.is, eru líka með eigin vefsíðu, facebook síðu og LEB er með undirsíðu á leb.is um helstu atriði frá TR og vísar áfram á þeirra síðu.

Umboðsmenn frá TR hafa komið á fundi með félögum eldri borgara ef eftir því er óskað. 75% af þeim sem eru með ellilífeyri skrá sig inn á mínar síður hjá TR. 80% lesa upplýsingapósta frá TR. Í símaver TR koma inn um 100 símtöl á dag vegna ellilífeyris og 25-40 manns koma í þjónustumiðstöðina á dag.

TR hafa verið að taka út hópa og senda bréf um hugsanleg réttindi eins og heimilisuppbót eða hvort að tekjuáætlunin sé í samræmi við rauntekjur. Þegar fólk verður 67 ára fær það upplýsingabréf um hvernig er hægt að sækja um lífeyri, einnig er boðið upp á símtal og viðtöl. TR tekur þátt í starfslokanámskeiðum og fræðir hvernig á að sækja um og hverju fólk á rétt á. Þeir sem koma inn í dag eru vel upplýstir og senda umsóknir tímanlega fyrir 67 ára aldur. Hópurinn mun breytast á næstu árum, það verða sífellt fleiri sem fá minna frá TR því fólk hefur verið að safna jafnt og þétt í sinn lífeyrissjóð.

Með nýju vinnslukerfi stefnir TR á að hafa umsóknartíma og afgreiðslu á lífeyri mun styttri, frá 4-6 vikum niður í viku. Með væntanlegri tengingu við lífeyrissjóði er hægt að vera með nákvæmar upplýsingar og gera nákvæmari tekjuáætlun.

Hlusta má á upptöku af erindi Önnu Elísabetar í gegnum hlekk fyrir neðan í athugasemdum (þar má einnig finna aðra gagnlega hlekki tengda TR - meðal annars upplýsingar á síðu LEB):

Endurreikningur og uppgjör 2025 liggur fyrir.
11/05/2026

Endurreikningur og uppgjör 2025 liggur fyrir.

Árlegur endurreikningur vegna greiðslna frá TR vegna ársins 2025 liggur nú fyrir á Mínum síðum.

Á ársfundi Tryggingastofnunar (TR) sem var haldinn í dag kom fram að á árinu 2025 fengu 85.842 einstaklingar greiðslur f...
07/05/2026

Á ársfundi Tryggingastofnunar (TR) sem var haldinn í dag kom fram að á árinu 2025 fengu 85.842 einstaklingar greiðslur frá TR. Þetta er aukning í fjölda einstaklinga um 2,5% milli ára sem endurspeglar bæði lýðfræðilega þróun samfélagsins og aukna eftirspurn eftir stuðningi, sérstaklega vegna sjúkra- og endurhæfingargreiðslna. Heildargreiðslur TR námu tæplega 250 milljörðum króna á árinu. Þetta kemur meðal annars fram í ársskýrslu TR fyrir árið 2025.

Lestu alla fréttina með því að smella hér fyrir neðan:

Á ársfundi Tryggingastofnunar (TR) sem var haldinn í dag kom fram að á árinu 2025 fengu 85.842 einstaklingar greiðslur frá TR. Þetta er aukning í fjölda einstaklinga um 2,5% milli ára sem endurspeglar bæði lýðfræðilega þróun samfélagsins og aukna eftirspurn eftir stuðningi, sé...

Takk fyrir að fylgja okkur 🌷
22/04/2026

Takk fyrir að fylgja okkur 🌷

Address

Hlíðasmári 11
Kópavogskaupstaður
201

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00
Friday 10:00 - 15:00

Telephone

+3545604400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tryggingastofnun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share