09/06/2026
Með byggingu brottfararstöðvar fyrir ólöglega útlendinga sem á að vísa úr landi er ekki ráðist að rót vandans heldur er enn einn búturinn saumaður í útlendingalöggjöf í landinu. Miðflokkurinn leggst ekki gegn málinu en hefur þó lýst áhyggjum af bæði fyrirséðum og ófyrirséðum neikvæðum afleiðingum þess. Miðflokkurinn hefur lýst sig fúsan til að styðja stjórnvöld með viðeigandi hætti við að vanda sem allra best til verka við stofnun brottfararstöðvar. Alla áherslu þarf að leggja á aðrar lausnir, eins og ökklaband, til þess að fylla brottfararstöðina ekki af hópum sem hafa engu að tapa á Íslandi, með tilheyrandi ófremdarástandi. Eins og áformin líta út er ástæða til að óttast að það geti orðið raunin.
Áhyggjur Miðflokksins beinast einnig að því að að plástrar af þessum toga geti valdið því að raunveruleg endurskoðun útlendingalaga þurfi enn að bíða. Um árabil höfum við setið uppi með vonlausa útlendingalöggjöf sem enginn þorir að taka til gagngerrar endurskoðunar, nema Miðflokkurinn. Því er sú staða uppi að hér dvelja 180 manns ólöglega sem forðast lögreglu og eru að sögn stjórnvalda ástæðan fyrir þessari miklu þörf á að reisa sérstaka brottfararstöð sem er sögð munu kosta 500 milljónir króna árlega en við blasir að sú tala mun hækka.
Reynslan af brottfararstöðvum frá nágrannalöndum okkar hefur verið vægast sagt skrautleg. Í Danmörku vaktar leyniþjónustan slíkar stöðvar vegna rökstudds gruns um skipulagningu hryðjuverka. Fórnarlömb nauðgana dvelja í stöðvunum með kvölurum sínum. Tíðir smitsjúkdómar og umgangur meindýra plagar vistmenn. Áætlanir um léttan og viðráðanlegan rekstur úrræðisins hverfa eins og dögg fyrir sólu, kostnaður og mannaflsþörf fer fram úr öllu valdi, og vistmenn dvelja mun lengur en lagt er upp með. Fyrr en varir er hætt við að ástandið í brottfararstöðinni geti orðið sambærilegt því sem orðið hefur í fangelsum landsins.
Við þurfum ekki fleiri plástra, við þurfum raunverulega lausn frá þessum tilbúna vanda. Ísland getur hætt að taka við umsóknum hælisleitenda sem hingað eru komnir. Alþingi g*t skrifað vond útlendingalög, Alþingi getur líka ákveðið að skrifa ný og betri lög. Það eina sem þarf er viljinn en ekki að ýta vandanum á undan sér.